Hagtíðindi - 01.01.1950, Side 16
12
H AQTÍÐI NDI
1950
tvær færðir. 1948 var ferðatalan tæpl. 93 þús., en þar af var meir en J/4
hluti á Ieiðinni milli Reyhjavíkur og Hafnarfjarðar, því að þar voru farnar
72 ferðir á dag.
Farþegatalan hefur vaxið mikið, einkum á stríðsárunum. Hæst komst
hún í stríðslokin (1945) upp í 1 !/2 miljón. Síðan hefur hún aftur lækkað
nokkuð og var 1.3 milj. 1948. Þar af var tala farþega milli Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar 923 þús. eða um 70 °/o af allri farþegatölunni.
Farþegakílómetrar táknar þá vegalengd, er farþegarnir hafa ferðazt
alls. Er hún betri mælikvarði á farþegaflutningana heldur en farþegatalan,
þar sem hún tekur tillit til þess, hve langt menn ferðast. Þessi tala náði
hámarki 1945, er hún komst upp í rúml. 35 !/2 miljón km. Síðan hefur
hún aftur farið lækkandi og var 1948 rúml. 29 milj. km. Af þessari síð-
ustu tölu kemur um 30 °/o á leiðina milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.
Vegna þess hve leiðin er stutt, gætir hennar miklu minna hér heldur en
í farþegatölunni.
Fargjöldin á sérleyfisleiðunum námu alls 6 3/4 milj. kr. árið 1948 eða
um 23 au. á hvern farþegakílómetra að meðaltali. Árið 1935 voru far-
gjöldin alls um !/2 milj. kr. eða um 6 au. á hvern farþegakílómetra að
meðaltali.
Ríkisprentsmiðjan Qutenberg.