Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.1984, Page 8
FRÉTTIK ))
í
SMÁ-
AUGLÝSINGAR
BÍLL TEL SÖLU
Til sölu er Fiat 127, árgerð
1980. Lipur og léttur. Snatt
íjölskyldubíll. - Sá fljótasti í
bænum (sjá lögregluskýrslur)
Upplýsingar í síma 2118
TEL NIÐURRIFS
Til sölu og niðurrifs er
Sunbeam árg. ‘75. Bíllinn er
gangfær.
Upplýsingar að Kirkju-
vegi 15 á kvöldin.
KVENMENN
ÓSKAST
Eru einhverjar á lausu.
Erum í hönk. - Hafið sam-
band við einhvern okkar,
Eiki blómó
Jói Henna
Sigþór Ingvars
P.S. Verðum til sýnis í
hornbásnum á Skansinum
milli kl. 12 og 01 á síðasta
vetrardag.
SPORTBÁTUR
Sportbátur til sölu. Flug-
fiskur. - Með 75 ha Chrysler.
A góðum vagni. Með VHF
talstöð, útvarpi og fleiru.
Upplýsingar í síma 2182
og 2162.
BÍLL TIL SÖLU
Til sölu er Toyota Cressida
módel 1980. - V-1897. -
Ekinn 45.000 km. Sjálf-
skiptur.
Upplýsingar í sima 1741.
EINN MEÐ ÖLLU
Til sölu er Chevrolet
Concours, árgerð 1977. Er
með öllum græjum, veltistýri,
sjálfskiptur, og fleira og fleira.
Þann 18. apríl verður hún
Helga á Felli 38 ára gömul.
Hún ber aldurinn nokkuð vel
eða hvað sýnist ykkur. Helga ;
býður til veislu á afmælis-
daginn (um kvöldið).
Allir velkomnir.
Vinir og vandamenn
ATH.
Ég ætla að senda prúðu og
stilltu vinunum, Davíð og
Geira, afmæliskveðju. Þeir
eiga afmæli 17. og 22. apríl.
Til hamingju með 18. og 19.
árið, elskurnar mínar.
Maja
þekktur kokteill ,,Alexander“
gerður úr koníaki, rjóma og
fleira góðgæti. Þeir tveir
drykkir, sem ráku lestina,
voru svo „Manhattan“,
blandaður úr viskíi, vermút
og fleiru og „Red Lion“,
uppistaðan gin og appel-
sínusafl.
Mjög reyndust dómararnir
hafa misjafnan smekk og það
sem einum þótti best, þótti
öðrum lakast. Eitt voru þó
dómendur sammála um, að
það væri allt að því synd og
skömm að hverfa á brott frá
nær fullum glösum, og létu sig
þó hafa það flestir hverjir og
gengu jafngóðir út og þeir
kornu inn.
KOKTEILKEPPNI
Fyrir nokkru var
háð nokkuð sérstök keppni á
Skansinum og stóðu Fréttir
fyrir henni. Fimm valinkunn-
ir menn úr bænum voru
fengnir til að bragða á
jafnmörgum drykkjum og
skera úr um það, hver
drykkjanna væri þeim helst
að skapi. Það voru þeir
Guðmundur Þ. B. Olafsson,
Magnús Sveinsson, Sigurgeir
Jónsson, Stefán Runólfsson
og Þorgeir Baldursson, sem
taldir voru hvað dómbær-
astir á þessa hluti og að auki
líklegastir til að rúlla ekki út
af í miðjum klíðum, en slíks
munu dæmi úr áramóta
samkvæmum.
Það var um hálfellefuleytið
á fimmtudagskvöld, sem þeir
mættu galvaskir til leiks á
Skansinum og voru drykk-
irnir bornir fram fyrir þá með
hæfilegu millibili, ásamt
vænum skammti af köldu
vatni milli atriða. Allt voru
þetta nokkuð þekktir drykkir
(þó fengu dómararnir ekki að
vita nöfn þeirra fyrirfram) og
skyldu þeir gefa þeim stig eftir
gæðum frá einum og upp í
fimm stig. Af þessum fimm
drykkjum voru þrír „kok-
teilar“ og tveir „langir
drykkir“. Svo fór að löngu
drykkirnir fengu flest stig og
urðu raunar hnífjafnir, þann-
ig að greiða þurfti um þá
atkvæði aftur. Þá sigraði
„Apollo“ naumlega. Apollo
er alþekktur drykkur, fyrst
gerður um 1970 og inni-
heldur romm, bananalíkjör
og Parfait amour, fylltur upp
með seven-up, að auki kirsu-
ber og sítróna. I öðru sæti var
svo drykkur að nafni „Frosty
Amour“ og er uppistaðan í
honum romm og aprikósu-
líkjör, ásamt skvettum af hinu
og þessu. I þriðja sæti var svo
Tuskur
Við viljum minna alla
krakka á, að ef við fáum
hreinar léreftstuskur frá
ykkur, þá getið þið fengið
renninga frá okkur. Gáið
nú að, hvort mamma
hendir einhverju lérefti í
vorhreingerningunni.
Eyjaprent
MIDl NUMER 0020 00
' L
w
Koattspytoufáð í.B.V.
Knattspyrnuráðs Í.B.V
VíNMNGAfeBRU. Vurðtnsel
1. f>. Fisihöf vtrfeotyeki á kr. 3b.0Q0 27Ö.OOÓ
7.-16. FiUíHf hfjomtiSíkjaskápar a kr. 7.9.000 2Mi OðO
17. 31. hsherfmðautyarpstáekt á kr 8.700 130.500
32. 40. Físhwr vasatiisko a kr. 2.700 24.300
40 vioningar að varðmajti kr. 654.800
irð kr. 100.00
Drogið á Sfómannadagínn 1984
Sparssjoöof | vv;"— " "
>Oyfj skst: rrmar: óf:> Vest«n»«r>»»yts V.* jlS
Nú er knattspyrnuráð IBV að hleypa af stokkunum glæsilegu
happdrætti. Eins og sjá má á miðanum hér fyrr ofan, verður
verðmæti vinninga kr. 654.800 og allt glæsileg Fisher
hljómtæki og video. Með þessu happdrætti í byrjun
knattspyrnuvertíðar, vonast knattspyrnuráð til þess að geta
fengið aðeins upp í þau dýru ferðalög, sem eru framundan í
sumar hjá IBV.
HJÁ OKKUR FÆRÐU
I PASKAMATINN
Leikhúsferð Snótar:
Ákveðið hefur verið að fara í leikhúsferð 10. - 13.
maí 1984. Nánari upplýsingar eru gefnar á
skrifstofunni í síma 2770 eftir páska.
Nefndin
Þökkum innilega þá miklu vináttu og samúð, sem
okkur var sýnd við andlát og minningarathöfn unnusta
míns og sonar okkar
Engilberts Eiðssonar.
i
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd systra og annarra ástvina
Sólveig Aðalbjörnsdóttir,
Eiður Marinósson, Sigurborg Engilbertsdóttir.
Þökkum innilega þá miklu vináttu og samúð, sem
okkur var sýnd við andlát og minningarathöfn
eiginmanns míns, föður okkar og sonar,
Vals Smára Geirssonar.
Drottinn blessi ykkur öll.
Fyrir hönd systkina og annarra ástvina,
Linda Aðalbjörnsdóttir,
Aðalbjörn Þ. Valsson, Anna Dóra Valsdóttir,
Geir Gre'tar Pétursson, Anna Baldvinsdóttir.
Verslunarhúsnæði
v/Bárugötu
Til sölu, nýbygging á 2. hæðum við göngugötuna.
Besta verslunaraðstaða.
Upplýsingar hjá Arnari H . Gestssyni
s-75234