Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.1984, Síða 12
FRÉTTIR
Illa
mætt
Það vekur furðu hversu
áhugalausir bæjarbúar eru
um bæjarmálefni þau er
koma til kasta bæjarstjórnar.
Annað gæti manni virst af tali
manfia á götum úti.
A síðasta bæjarstjórnar-
fundi, sem haldinn var í
Hallarlundi skv. venju, voru
6 manns mættir þegar flest
var, fyrir utan bæjarstjórn.
Astæða er til að hvetja
bæjarbúa til að sýna þessum
málum meiri áhuga í orði
jafnt sem á borði, því að
aðhalds er þörf í bæjarmálum
sem og öðrum.
Fréttir
mikið
lesnar
Það vakti ánægjulega at-
hygli tíðindamanna Frétta á
síðasta bæjarstjórnarfundi,
að F réttir voru mikið lesnar af
bæjarfulltrúum. Gripu þeir
gjarnan í blaðið ef þeim
leiddist og hæstvirtur fulltrúi
Alþýðuflokksins virtist hafa af
því nokkra raun hverjir skrif-
uðu í blaðið.
Til glöggvunar fyrir þá sem
vilja vita, skal á það bent, að
allar greinar sem ekki eru
undirritaðar, skulu eignaðar
ábyrgðarmanni, hvort sem
hann hefur skrifað þær eða
ekki.
Ritstjórn
ALLT
Á
HULDU
Eins og bæjarbúum mun
eflaust kunnugt, þá stendur
nú yíir taka myndarinnar
Enemy mine hér í Eyjum.
Allt er mjög á huldu um
tilurð þessarar myndar, hvað
hún kostar og þvíumlíkt.
Við höfum ítrekað reynt að
grennslast fyrir um hvernig
gengur og þ.h. en aldrei orðið
ágengt og verið vísað á
einhvern sem virðist hafa það
að atvinnu að vera ekki við.
Okkur telst þó til, að laugin
títtnefnda hafi verið eitthvað
vandamál vegna afskipta
sjávarfalla af því hvort hún á
að ver full eða tóm.
Sá sem lék Kunta Kinte í
sjómvarpsmyndaflokki sem
nefndist ROOTS leikur eitt
af aðalhlutverkunum og er
staddur hér á eyjunni. Mun
þetta vera fyrsti Óskarsverð-
launahafinn sem stígur fæti
sínum á Heimaey og erum við
að sjálfsögðu upprifin af því.
Af öðrum leikendum er
það að segja, að skrímslið er í
bútum einhversstaðar á eyj-
unni og mun væntanlega
koma fram á sjónarsviðið
áður en yfir lýkur. Aðrar
stjörnur halda sig annars-
staðar.
Vegurinn inn að Prestum
kemur og fer eins og ílóð og
fjara og léttvínsneysla á eyj-
unni hefur aukist.
Vindvélar einar tvær hafa
Foxarnir komið með með sér
og eru menn að velta því fyrir
sér hvort það standi til, að
beita þeim uppí og reyna að
skapa logn með því móti.
Miðvikudagurinn
18. aprfl -
Síðasti vetrardagur
LOKSINS LOKSINS er vetur á enda og
sumar að byrja. Síðasti dansleikur
vetrarins er á Skansinum á miðviku-
daginn síðasta vetrardag. Fyrir þá,
sem ætla út að borða minnum við á alla
\frábæru réttina, sem við bjóðum úr nýja|
eldhúsinu, Já og svo má
minna á Skansölið líka.
Músikin verður í höndunum á
Dadda en hann lofar góðu stuði.
Skundaðu
a
Skansinn
og
skelltu
þér
í dansinnf
Annar í páskum
Páskapartý
Annar í páskum og allir orðnir leiðir á að
elda, ekki satt. Það er þó enginn ástæða til
að fá sér ekki góðan mat fyrir því. Þið
komið bara til okkar á Skansinn og látið
okkur gæla við bragðlaukana. - Pantið
ykkur borð í síma 2577 og málið er leyst. -
50. hver gestur sem kemur í páska-partýið , ^
fær stærðar páskaegg og allir sinn skammt
af Ijöri.
Við á Skansinum óskum Vestmannaeymgum
öllum á láði, sem legi, gleðilegra páska og
gleðilegs sumars.
TANGINN
SRAR
Gæðavara
á gððn verði