Fréttir - Eyjafréttir - 24.05.1984, Page 2
Fkl Tl Ih lÍFKÉrrÍR f| FEEIHEIIFRÉTTIK J
^ ... fúTS NI —-'A . ....v>«' I ' I ' s/A
Heföbundm lireins-
unarvika að hefjast
Vikuna 27. maí til 2. júní
1984, verður heíðbundinn
hreinsunarvika. Bæjarbúar eru
hvattir til að taka virkan þátt í
hreinsuninni og stuðla þannig að
fegrun umhverfisins.
Eins og undanfarin ár, mun
bæjarsjóður hafa vörubifreiðar í
akstri um bæinn t:l að Ijarlægja
rusl. Þeim aðilum, sem þurfa að
koma frá sér rusli, eru beðnir að
safna því saman utan lóðar-
marka, þar sem aðgengilegt er
að hirða það og ganga þannig frá
því,að ekki sé hætta á að það
fjúki.
Jafnframt er boðið upp á að
íjarlægja bílhræ og aðra stærri
hluti.
Æskilegt er að lóðarhafi eða
fulltrúi hans, verð viðstaddur
hreinsunina.
Þeim, sem sjá um flutning á
brennanlegu rusli, er bent á
sorpbrennsluna austur á hrauni.
Bílhræjum og öðru óbrennan-
legu rusli, skal ekið í Helga-
fellsgryíju. Annars staðar á
Eyjunni er með öllu óheimilt að
henda rusli.
Eftirfarandi skipulag verður
viðhaft:
Mánudagur, 28. maí: Svæðið
frá hraunjaðri til og með Skóla-
vegi neðan Kirkjuvegar.
Þriðjudaginn 29. maí: Svæðið
frá Skólavegi til og með 111-
ugagötu.
Miðvikudaginn 30. maí: Svæð
ið ofan Kirkjuvegar.
Föstudaginn 1. júní: Vestur-
bærinn.
Ættarmót
Ættingjar Guðrúnar Jóns-
dóttur og Jóns Vigfússonar,
Túni Vestmannaeyjum, halda
ættarmót laugardaginn 30. júní
í Njálsbúð, Vestur-Landeyjum.
Ætlast er til að mætt verði um
hádegi á laugardag. Ef fólk hefði
hug á að tjalda á föstudagskvöld,
er þarna ágætis aðstaða til
tjöldunar. Ef veður leyfir ekki
útiveru, er Samkomuhúsið mjög
rúmgott og þá er hægt að halda
sig innan dyra.
Nánari upplýsingar gefa
Guðjón Hjörleifsson, sími 2548
og Vilborg Guðjónsdóttir í
síma 91-74977.
Allar nánari upplýsingar
verða veittar í síma 1093, föstu-
daginn 25. maí og fyrrgreinda
daga, milli kl. 14.00 og 17.00.
Eru allir bæjarbúar hvattir til
að nota helgina til lóðarhreins-
unar og nýta þetta tækifæri, til
koma frá sér rusli og öðru því,
sem lýti er á umhverfinu og taka
þannig virkan þátt í hreins-
uninni og stuðla að fegurra
umhverfi.
Fyrlrspiim
til skrif-
stofustjóra
bæjarixis
Blaðinu hefur borist eftir-
farandi fyrirspurnir til skrif
stofustjóra bæjarins.
1. Hverjir voru 10 hæst laun-
uðustu starfsmenn bæjarins á
síðasta ári.
2. Hverjir njóta bílastyrks, sem
vinna hjá bænum, og á hvaða
forsendum er sá bílastyrkur
gefinn, og hvað er hann hár.
Saknað
svara
Undanfarnar vikur haí'a fyr-
irspurnir til hinna ýmsu yfir-
valda og félagasamtaka hér í bæ,
birst á síðum blaðsins. Því miður
hefur fátt verið um svör af
einhverjum ástæðum.
Blaðið Iteinir þeim tilmælum
til þeirra, sem fyrirspurnirnar
hafa beinst til, að þeir grípi nú
pennann í hönd og svari þessum
fyrirspurnum hið fyrsta, því þær
eru settar fram í von um svör.
Þeir sem fengið hafa fyrir-
spurnir og ekki svarað eru:
1. Lífeyrissjóður Vestmanna-
eyinga.
2. Rafveitan.
3. Veitustofnun.
4. Herjólfur og í dag er fyrir-
spurn til skrifstofustjóra bæj
arins.
Útgerðamenn -
skipstjörar!
Þeir, sem ætla að panta mat á laugardaginn fyrir
Sjómanndag, í Samkomuhúsinu eða Alþýðuhúsinu,
vinsamlegast pantið fyrir miðvikudaginn 30. maí í
síma 2702.
SJÓMANNADAGSRÁÐ
Skólaslútt
Skólar eru nú sem óðast að
ljúka störfum. S.l. tvær helgar
héldu Barnaskólinn og Hamars-
skólinn skóladag, og var þar
haldin sýning á verkum nem-
enda og farið í ýmsa útileiki,
hjólað og sprellað.
Má með sanni fullyrða, að
margur nemandinn og kennar-
inn er farinn að hlakka til
áreynslulítils sumarfrís. Krakk-
arnir í 4. og 7. bekk ætla að halda
sitt slútt með pomp og prakt og
tjútta og tralla og breika(?) í
Félagsheimilinu þann 24. maí
milli kl. 21.00 og 23.30.
MAGNABÚÐ
AUGLTSIR:
SÍMI1488
Háþrýstislöngur og tengi (fittings).
FJÖLBREYTT ÚRVAL!
MÁLNINGAVÖRUR
Garðsláttuvélar frá BLACK & DECKER
í úrvali.
Hildbrandar hefja hildi
sína um helgina
Góðir Vestmannaeyingar og
aðrir Vestmannaeyingar. Loks-
ins gefst ykkur kostur á<-að hið
frábæra lið Hildibranda leika
sinn fyrsta leik, undir stjórn
þjálfarans, Sigurðar Sveinssonar
og fyrirliðans, Einars Ottós
Högnasonar.
Þetta verður stór stund fyrir
bæjarfélagið, þar sem þessi
leikur telst fyrsti 4. deildar-
leikurinn, sem leikinn verður hér
í Vestmannaeyjum. Og í því
tilefni verður vel vandað til þessa
leiks, jafnt innan sem utan vallar
og ættu því allir að fá eitthvað
við sitt hæfi. Meðal annars
verður boðið upp á bjargsjg en
okkar frábæri sigmaður, Óskar
S. mun etja kappi við bergið.
Hildibrandabombunni verður
skotið upp, ef veður leyfir?
Vörukynning. Gústi mun
leika af fingrum fram, öll börn fá
glaðning en hinir eldri fá
hressingu. I seinni hálfleik, kaffi
og meðlæti. Lúðrasveitin mun
heiðra okkur með nærveru sinni,
þá má jafnframt geta þess, að
vistfólki Hraunbúða hefur verið
boðið á þennan leik og mun rúta
ná í fólkið hálftíma fyrir leik.
Heiðursstúku þessa leiks,
skipa Henni heildsali, Stebbi
Run, Einar Fidda og Óli bæjó.
Þá má að lokum geta þess, að
aðgöngumiðarnir gilda sem 10%
afsláttarmiðar á Bjössabar
þennan dag.
Allir á völlinn og sparið
ekki köllin.
Áfram Hildibrandur.
IT"
estmannaeyja
BlÓ
Fimmtudagur
24. maí:
Klukkan 8
TOOTSIE
Þessi frábæra
grínmynd sýnd í
allra síðasta sinn.
Af sérstökum ástæðum
verður myndin
ekki sýnd aftur.
I
. %£
MR,
RWA
Klukkan 10
MR. MOM
HERRA MAMMA
Grínmynd, sem
allsstaðar hefur
slegið í gegn.
Það skal tekið fram
að þetta er ekki
myndin: „Pabbi tekur
til“, sem hefur verið
vinsæl
á videóleigunum
hér í bæ.
Sunnudagur,
27. maí:
Klukkan 2:
DRAUGASAGA
Stórskemmtileg
barnamynd.
Klukkan 5:
REYKUR
EÐA BÓFI III
Með hinum óborgan-
lega Jackie Gleason
í aðalhlutverki.
GANDHI
Klukkan 8.30:
GANDHI
Margföld Óskars-
verðlaunamynd.
Athugið
breyttan sýningartíma
Erlend ummæli:
Sjáir þú aðeins eina
kvikmynd á þessu
ári, veldu þá
Gandhi.
Hækkað verð.