Búskapur hins opinbera 1995-1996 - 01.11.1997, Page 16
Umfang hins opinbera í þjóðarbúskapnum má meta á ýmsa vegu. Algengast er að
mæla heildartekjur eða heildarútgjöld þess í hlutfalli við landsframleiðslu. En fleiri
mælikvarðar koma til greina. Hér eru nefndir Qórir mælikvarðar að auki:
a. Framleiðsla hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu. Á árinu 1996 nam
verg landsframleiðsla um 484 milljörðum króna, en landsframleiðsla er summa
vöru og þjónustu sem framleidd er í landinu á einu ári og notuð er til neyslu,
fjárfestingar eða útflutnings. Meginhluti þessarar framleiðslu á sér stað í
einkageiranum, en hið opinbera hefur hins vegar staðið að framleiðslu á 16,8% af
landsframleiðslu ársins 1996, og þá einkum þjónustu, eins og réttar-, fræðslu- og
heilbrigðisþjónustu.
b. Vinnuafl íþjónustu hins opinbera sem hlutfall af heildarvinnuafli. Á árinu 1996
voru heildarársverk í landinu áætluð um 127,5 þúsund. Af þeim voru 25,8 þúsund
unnin í þágu hins opinbera eða um 20,2% af heildinni.
Mynd 33 Umfang hins opinbera 1996, mismunandi mælikvarðar í
hlutfalii við VLF.
Opinber afheildarvinnuafli Samneysla Samneyslaog Heildartekjur Heildargjöld
flamleiðsia fjárfesting
c. Samneysla og fjárfesting hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu. Þessi
mælikvarði sýnir þann hluta landsframleiðslunnar sem fer til endanlegra nota á
vegum hins opinbera. Á árinu 1996 námu samneysluútgjöldin 100,4 milljörðum
króna eða sem svarar 20,7% af landsframleiðslu. Fjárfestingarútgjöld voru hins
vegar 3,2% af VLF.
d. Heildartekjur og heildarútgjöld hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu. Á
árinu 1996 námu heildartekjur hins opinbera 178,1 milljörðum króna eða 36,8% af
landsframleiðslu. Óbeinir skattar stóðu fyrir ríflega helmingi heildartekna, en
beinir skattar fyrir tveimur fimmtu hlutum teknanna. Á sama ári námu heildar-
útgjöld um 185,8 milljörðum króna án afskrifta eða 38,4% af VLF.
14