Baldur


Baldur - 24.02.1945, Qupperneq 1

Baldur - 24.02.1945, Qupperneq 1
UTGEFANDI: SÖSlALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR XI. ÁRG. ísafjörður, 24. febrúar 1945 5. tölublað. Dr. Friðgeir Olason læknir og fjðiskylda hans. Nokkur minningarorð. Dr. Friðgeir Ólason og fjölskylda hans. Það numu áreiðanlega vera fáir Islendingar, sem ekki urðu harmi og hryllingu lostnir, er það fréttist, að eitt af skipum íslenzka flotans, e/s Goðatoss, liefði verið skotinn i kaf af þýzkum kafbát 10. nóv. s. 1., og það rétt upp við strendur landsins — innan íslenzkrar landhelgi — þegar skammt var eftir til ákvörðunarstaðar. Meðal þeirra, er létu lífið við þennan hörmulega atburð, voru dr. Friðgeir Ölason, lækn- ir, kona hans, Sigrún Sigurðar- dóttir Briem, læknir, og börn þeirra þrjú: Óli Hilmar, Sverr- ir og Sigrún. Dr. Friðgeir Ólason ólst upp hér á Isafirði frá því hann var innan fermingaraldurs og þar til hann hafði lokið námi hér á landi, og er þvi vonum seinna, að þessa ágæta drengs og fjölskyldu hans sé minnzt i isfirzku blaði. Dr. • Friðgeir Ólason var fæddur í Skj aldar-Bj arnarvík i Strandasýslu 3. desember 1912, sonur hjónanna óla G. Halldórssonar, nú kaupmanns í Rvik, og Valgerðar Guðna- dóttur, sem þar bjuggu þá. Innan fermingaraldurs flutt- ist hann með foreldrum sínum hingað til Isafjarðar og ólst hér upp. Að loknu barna- og unglingaskólanámi hér fór hann í Menntaskólann á Akur- eyri og lauk stúdentsprófi 1932. ínnritaðist hann þá í lækna- deild Háskóla Islands og lauk kandidatsprófi í læknisfræði 1938. Þann 17. október 1936 kvænt- ist dr. Friðgeir Sigrúnu Briem, er þá stundaði einnig læknis- fræðinám við háskólann. Frú Sigrún var fædd í Reykjavík 22. febrúar 1911, dóttir Sigurðar Briem fyrv. póstmálastjóra og konu hans Guðrúnar Isleifsdóttur, prests í Arnarbæli. Hún stundaði nám við Kvennaskólann í Reykja- vík og tók ung burtfararpróf þaðan. Nokkru síðar sigldi hún til Parisar og var þar einn vet- ur. Þegar heim kom vann hún um skeið á póstmálaskrifstof- unni í Reykjavik. Árið 1933 hóf hún náms- braut að nýju. Þá um vorið tók hún gagnfræðapróf við Menntaskólann í Reykjavík og stúdentspróf við sama skóla vorið eftir. Innritaðist síðan í læknadeild Háskóla Islands og tók kandidatspróf 1940. Að háskólaprófi loknu gegndi Friðgeir um tíma héraðslækn- isstörfum í Reykdælahéraði i Suður-Þingeyjarsýslu. — Gat hann sér þar góðan orðstí sem atorkusamur og ágætur læknir, og þar fann hann upp meðal við lambablóðsótt, sem reynst hefur ágætlega og bægt þeim vágesti frá dyrum íslenzkra bænda. Frú Sigrún aðstoðaði mann sinn við læknisstörfin þar nyrðra, jafnhliða húsmóður- störfum og háskólanámi. Eftir dvölina í Þingeyjar- sýslu fluttu þau hjónin aftur til Reykjavíkur og gegndi Friðgeir kandidatsstörfum við sjúkrahús þar, unz þau, sum- arið 1940, sigldu til Ameríku til framhaldsnáms. Þau dvöldu fyrst í New York og Canada, en tvö sið- ustu árin vestra voru. þau í Bandaríkj unum. Frú Sigrún vann sem kandi- dat og aðstoðarlæknir við ýms sjúkrahús vestra og kynnti sér jafnframt barnalækningar, en Friðgeir lagði stund á fjör- efnarannsóknir, og í september s.l. varði hann doktorsritgerð í fræðigrein sinni við Harward háskóla og hlaut mikið lol' fyrir. Þau Sigrún og Fx-iðgeir eign- uðust 3 börn: óla Hilmar, 7 ái-a, Sverrir, 2x/2 úrs, og Sig- rúnu, 5 mánaða. Þetta fáoi'ða yfirlit um ævi dr. Fi’iðgeirs sál. ólafssonar sýnir, að hann átti að baki sér mik- inn og glæsilegan náms- og starfsferil. Hann lét sér ekki ixægja þá fræðslu, sem hann fékk hér heinxa, hann vildi afla sér meiri og víðtækai’i þekkingar í fræðigi-ein sinni og gerði það með þeirn glæsi- lega árangri, að hann ávann sér lof einnar frægustu menntastofnunar Bandai'í k j - anna. Séi'hvei’t þjóðfélag hlýtur að gei’a sér milclar og glæsilegar vonir um slíka ixienn og fagna því að fá notið starfskrafta þeirra. En sú villimennska, sem á undanförnum árum hefur of- sótt og drepið niður alla mann- úð og menningu, þar sem hún hefur náð til, sem tortimir mannslífum í stað þess að bjarga mannslífum, greip hér inn í með miskunai’lausri morðhendi. Fyrir tilverknað þeirrar villimennsku fékk íslenzka þjóðin ekki notið starfskrafta þessara ungu og efnilegu lækn- ishjóna. Fámenn þjóð, eins og vér Islendingai', má ekki við slík- um missi. En það er ekki aðeins himx glæsilegi náms- og stai’fsfei’ill dr. Fi’iðgeii’s sál. ólasonai’, senx veldur því, áð hann Framhald á 4. síðu. Dettifoss sökt. Fimmtán manns, þriggja farþega og 12 skip- verja, saknað. Á skipinu voru þrjátíu og einn skipverji og fjórtán farþegar. Sú hörmulega fi’egn barst hingað í gærkvöldi, að e/s Dettifoss hefði verið sökt nálægt Ii’landi. Ekki hafa enn borist nákvæmar fregnir urn tildrög þessa höi’nxulega atburðar, en búast nxá við, að hann hafi gei’zt af hernaðarvöldum. Þeir, sexn fórust, voru þessir: Farþegar: Vilboi'g Stefánsdóttir, hjúkrunarkona. Berta Zoéga, frú. Guðrún Jónsdóttir, skrifstofustúlka. Skipvei'jar: Davið Gestsson, 1. stýrimaður. Jón Boga- son, bryti. Jón Guðmundsson, bátsmaður. Guðmundur Eyjólfsson, háseti. Hlöðver Asbjöi’nsson, háseti. Ragnar G. Ágústsson, háseti. Jón Bjai’nason, háseti. Stefán Hin- i’iksson, kyndari. Helgi Laxdal, kyndai’i. Ragnar Jakobs- son, kyndari. Þau fara nú að gerast ærið tíð og stór höggin, sem lxöggvin eru i íslenzka kaupskipaflotann af völdum þessa ófriðar. Og þeir eru orðnir hörnxulega margir Is- lendingarnir, sem látið hafa lífið fyrir þeirri villi- nxennsku, sem nú veður uppi í heinxinum. öll íslenzka þjóðin er harnxi lostin af þessum sorg- lega atburði.

x

Baldur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.