Baldur


Baldur - 07.04.1945, Blaðsíða 1

Baldur - 07.04.1945, Blaðsíða 1
UTGEFANDI: S ÓSIALIST AFÉLAG ISAFJARÐAR XI. ÁRG. ísafjörður, 7. apríl 1945 9. tölublað. Stórkostleg aukning íiskibátaílotans. Rikisstjórnin ákveður smiði 50 fiskibáta innanlands. Fær loíorð fyrir 55 nýjum Svíþjóðarbátum. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að láta byggja 50 fiski- báta í skipasmíðastöðvum hér innanlands og á smíðinni að vera lokið á næstu 1—2 árum. Helmingur bátanna verður 35 tonn að stærð, en hinn helmingurinn 55 tonn. Ennfremur hefur ríkisstjórnin fengið loforð um út- flutningsleyfi á 55 fiskiskipum frá Svíþjóð til viðbótar þeim, sem áður hefur verið samið um. Sveinn Björnsson sjálfkjörinn forseti. Þrír stjói'nmálaflokkar, — Sjálfstæðisflokkurinn, Alþ<rðu- flokkuriníx og Fi’amsóknai’- flokkurinn hafa tilkynnt að þeir munu styðja Svein Bjöi’nsson, l'oi-seta, við l'oi'seta- kjörið í sumar. Sameiningar- flokkur alþýðu — Sósíalista- flokkurinn — hefur hinsvegar lýst því yfir, að hann styðji ekki kosningu núverandi for- seta, en muni þó ekki liafa mann í kjöri gegn honum að þessu sinni. 1 greinai’gei’ð flokksins fyrir þessari afstöðu er meðal ann- ars tekið fram: Sósíalistaflokkurinn er ekki fylgjandi kosningu núverandi loi’seta, en mun ekki beita sér fyi'ir framboði gegn honum af eftirgreindum ástæðum: 1 fyrsta lagi: Fjöldasamtök þjóðarinnar hafa ekki séð á- sta'ðu til þess að koma sér saman um frainlxjóðanda og Sósíalistaflokkurinn álítur nú sem fyrr að eigi sé brýn ástæða fyrir flokkinn að grípa frám fyi’ir hendur þeirra. I öðru lagi: Samstai’fsflokk- ar Sósíalistaflokksins í ríkis- stjói’n, Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn, hafa á- kveðið að standa að framboði núverandi lörseta — og sér Sósíalistaflokkurinn ekki á- stæðu til þess að fara að lieyja kosningaharáttu, þar sem þess- ir samstarfsflokkar stæðu önd- verðir, þar eð slíkl væri óheppilegt gagnvart þeirri þjóðai’einingu, scm þarf - að vei’a og er að myndast um stefnu ríkisstjói’narinnar. I þriðja lagi: Dt á við er það nokkur kostur, meðan lýðveldi vort er að festast í sessi, að sýna þá þjóðareiningu, er fram kemur í því að forseti lýðveld- isins sé sjálfkjörinn. Dt frá þessum forsendum á- kvað því miðstjórn Sósíalista- flokksins á fundi sínum 22. mai’z að bjóða eigi fram af hálfu flokksins til forseta- kjörs að jjessu sinni. -------0------ Barnamessa verður í Isafj arðarkirkj u á morgun kl. 11 f. h. Alrnenn messa kl. 2 e. h. Bátar þessir verða seldir ein- staklingum og lelögum eða bæjar- og sveitarfélögum. Ný- byggingarráð tekur á móti til- boðum i bátana og annast af- hendingu þeirra. Auglýsir Ný- byggingarráð liér i blaðinu í dag eftir tilboðum í þá báta, sem byggðir verða innanlands. Átvinnumálaráðuneytið mun hinsvegar seníja við skipa- smíðastöðvarnar um smíði þessara báta og annast fram- kvæmdir, er þar að lúta. Aðal- tilgangurinn með þessum heild- ar-sanmingum er að koma skipasmíðastöðvunum af stað með smíðarnar, ogr einnig eru ineiri möguleikar á að fá skip- in ódýrari ef samið er um byggingu þeirra allra í einu, heldur en ef samið væri um smíði livers einstaks skips. Drn verð á þessum skipum er allt óákveðið ennþá. Fyrir nýár í vetur barst atvinnu- málaráðuneytinu tilboð frá öll- um helztu sldpasmíðastöðvum innanlands, um smíði á skip- uni frá 27—80 smálestir að stærð, fyrir kr. 7500 á smálest að undanskildu kaupverði véla og spila. Tilboð þetta var mið- að við það, að niinnst 2 bátar yrðu smíðaðir á hverri stöð. Miðað við Svíþjóðarbátana er þetta mjög hátl verð, en gera má ráð fyrir að því megi þoka nokkuð niður, þegar samið er um smíði svona margra skipa og sama skipasmíðastöðin getur halt fleiri báta sömu gerðar í siníðum í einu. Þá má gcra ráð fyrir að skipasmíðastöðvarnar geri sér far um að smíða báta þessa eins ódýrt og tök eru á, með því myndu þær tryggja sér atvinnu við smíði þeirra skipa i framtiðinni, sem ann- ars yrðu keypt inn frá útlönd- um. Væntanlegir kaupendur þess- ara skipa geta gert ráð i'yrir að fá út á 1. veðrétt liskveiða- sjóðslán að upphæð 3000 kr. á smálest, ennfremur styrktar- lán, vaxtalaust, að upphæð 100 þús. kr. á hvern bát, út á 3. veðrétt. Það, sem til vantar, verða kaupendur svo að leggja sjálfir fram, og taka til þess lán út á 2. veðrétt, cf þeir þurla. Verður að gera ráð fyrir að lánstofnanir verði fúsar til að veita lán í þessu skyni. Þessi stórhuga ákvörðun rík- isstj órnarinnar, um smíði 50 fiskibáta innanlands og kaup á 100 fiskibátum frá Svíþjóð, með þeim, sem áður voru pant- aðir þaðan, er ekki aðeins þýð- armikil fyrir aðalatvinnuveg landsmanna, fiskveiðarnar, — hcldur einnig fyrir skipasmíða- stöðvarnar og atvinnu við skipasmiðár, því talið er að við smíði þessara skipa verði fullnotuð öll byggingarafköst allra innlendra skipasmíða- stöðva. Vonandi semst svo um bygg- ingu þessara skipa, að allir megi vel við una, kaupendur skipanna, skipasmiðastöðvarn- ar og þar með allir landsmenn. Og áreiðanlega gerir rikis- stjórnin ráðstafanir til að það megi takast. 0------- 361 farþegi með flug, vélum h. f. Loftleiða í marzmánuði. Dmboðsmaður h. f. Loftleiða hér á Isafirði, Þorleifur G u ðmundsson, framkvæmd ar- stjóri, liefur sent blaðinu eftir- farandi frétt: Flugvélar h. f. Loftleiða fluttu í marzmánuði samtals 361 farþega, ög allmikið af pósti. Flogið var til lsafjarðar, Flateyrar, Þingeyrar, Bíldu- dals, Patreksfjarðar, Ingólfs- fjarðar, Djúpuvíkur, Hólma- víkur og til ýmsra staða við Breiðafjörð. — Ennfremur sjúkraflug austur að Lóni í Kelduhverfi í Norður-Þing- eyjarsýslu. Til Siglufjarðar voru farnar nokkrar ferðir. INIilIi Isafjarðar og Reykjavík- ur voru fluttir 146 farþegar. Þegar þess er gætt, að að- eins tvær ferðir voru farnar frá 1. marz til 14. marz, má telja árangurinn af fluginu í mánuðinum góðan, þegar liöfð er í huga sú fádæma ótið, sem verið hefir. ------0------- Grímur Jónsson, útvegsbóndi í Súðavík, varð sextugur 4. þ. m. Miiiningarathöfn uni þá sem fórust með Dettilössi iór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík 27. marz s.l., jafnframt lör fram útför þeirra Davíðs Gíslasonar, 1. stýrimanns, Jóns Bogasonar, lirj'ta, og Jóhannesar Sigurðssonar, búrmanns. Séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup, flutti minningar- ræðuna. Dómkirkjukórinn söng undir stjórn Páls Is- óllssonar. Strengjahljómsveit Tónlistarfélagsins lék. Guðmundur Jónsson söng einsöng og Þórarinn Jónsson lék á liðlu. Athöfninni var útvarpað. Ilér í bænum blöktu fánar í liálfastöng meðan á minningarathöfninni stóð.

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.