Baldur - 18.04.1945, Blaðsíða 3
B A L D U R
39
BALDUR (Vikublað)
Árgangur kostar 10 krónur
Gjalddagi 1. júlí
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Halldór Ólafssori
Ritstjórn og afgreiðsla:
Odda, Isafirði,
Pósthólf 124
Breytt tilhögun á
ferðum Djúpbátsins
Á bæj arstjórnarfundi IX. þ.
m. var samþykkt tillaga frá
bæjarráði um að fara þess á
leit við Djúpbátsfélagið, að það
kaupi lítinn bát til að annast
mj ólkurflutninga frá önund-
arfirði.
Samþykkt þessi er svar við
bréfi, er bæj arstj órn hafði bor-
ist frá oddvita sýslunefndar
Vestur-lsafjarðarsýslu, þar
sem hann, samkvæmt sam-
þykkt sýslunefndarinnar á
fundi hennar í vetur, óskar
eftir samstarfi við bæjarstjórn
Isafjarðar um vikulega mjólk-
urflutninga frá önundai'firði,
þann tima árs, sem Breiðadals-
heiði er ekki bílfær.
1 sambandi við þetta mál
fluttu þeir, Haraldur Guð-
mundsson og Högni Gunnars-
son svohljóðandi tiliögu:
„Bæjai'stjóm samþykkir að_
kjósa 3ja manna nefnd til að
skipuleggja i samstarfi við
Djúpbátsstjórn ferðir Djúp-
bátsins með tilliti til árstíða, og
þá séi'staklega það fyrir augum
,að fækka / hinum óhóflega
mörgu viðkomustöðum í Djúp-
ferðum, en fjölgun á Vestur-
ferðum, og tií Norðui'hafna. Þá
mætti athuga í því sambandi
sérstakar mjólkui'ferðir“.
Tillaga þes^i var samþykkt
með öllum greiddum atkvæð-
um, en af einhverjum dular-
fullum ástæðum, sem forseti
bæj arstj órnar veit sennilega
einn hvei'jar eru, vár nefndin
ekki kosin á fundinum, sem þó
var sjálfsagt og eðlilegt að
gera.
En livað sem því líðui', þá
er hér hreyft miklu nauðsynja-
máli. Tilliögun sú, sem nú er
á rekstri Djúpbátsins er með
öllu ótæk. Með því að láta bát-
inn snatta svo að segja heim á
hvers manns hlað, taka fei'ðir
hans um Djúpið óhæfilega
langan tima og vei’ða mjög
dýrai’, ekki sízt þegar um er
að ræða eyðslufrekt skip, eins
og Fagranesið.
Þó svo kunni að vera, að
þessir mörgu viðkomustaðir
Djúpbátsins séu einhverjum
Djúpbænda til hagræðis, þá
ber á það að lita, að lang flest-
um, sem bátinn þurfa að nota,
er að þeim hið mesta óhagræði.
Það eru t. d. ekkert séi’lega
hagkvæmar samgöngur, þegar
það tekur fast að því eins lang-
an tíma að ferðast liér milli
Isafjai'ðar og Inn-Djúpsins
eins og héðan til Reykjavíkur
með Esju, beina leið.
Það ætti líka að vera auð-
velt að ákveða viðkomustaði
Djúpbátsins þannig, að allir
mættu vel við una, þó að þeim
fækkaði mikið frá því sem nú
er, og hagnaðui’inn sem af því
leiddi myndi líka fljótt koma
í ljós, bæði fyrir Djúpbátsfé-
lagið og þá, sem við það skipta.
Um mjólkurflutningana er
það að segja, að hér i blaðinu
hefur verið á það bent, að eina
leiðin, sem nú er fyrir hendi,
til þess að fá góða neyzlumjólk
til bæjarins, er að hafa lítinn
bát til mjólkui’flutninga milli
Isafjarðar og nærliggjandi
sveita. Þyrfti sá bátur að háfa
kælirúm, svo hægt sé að verja
mjólkina skemmdum, þegar
heitt er í veðri á sumrin. Eðli-
legast væri að Djúpbátsfélag-
ið hefði þessa mjólkurflutn-
inga á hendi, og er nauðsyn-
legt að þetta mál verði ná-
kvæmlega athugað, þegar
stjórn pjúpbátsfélagsins og
hin væntanlega nefnd frá bæj-
arstjói’n Isafjarðar fara að
ræðast við um breytta tilhögun
á ferðum Djúpbátsins.
------0-------
Jón Sveinsson (Nonni)
látinn.
Séra Jón Sveinsson (Nonni)
andaðist í Köln í Þýzkalandi 1.
nóvember í haust.
Jón Sveinsson fór bai’n að
aldri utan á vegum franzks
prests kaþólsks, sem dvaldi
hér á landi um skeið. Nam
hann allan sinn lærdóm er-
lendis, tók jmsar vígslur ka-
þólskra og gekk í reglu Jesú-
ita. Starfaði hann mikið fyrir
þá í-eglu. Hann útbreiddi mjög
þekkingu á Islandi og íslenzk-
um nrálum erlendis og flutti
þúsundir fyrirlestra um það
efni
Hér á landi er Jón Sveins-
son frægastur fyrir Nonnabæk-
ur sínar. Þær hafa verið þýdd-
ar á fjölda erlendra tungu-
mála.
Verzlunin Bræðraborg
er 40 ára í dag.
Einum fantinum færra.
Fregnir herma að Hermann
Göi-ing marskálkur hafi fyrir
nokkru framið sjálfsmorð.
BALDUR
óskar öllum lesendum sín-
um nær og fjær gleðilegs sum-
ars.
300 krónup
fær sá greiddar, sem gefið
getur lögreglunni upplýsingar
um þann eða þá, sem valdið
hafa skemmdum á sumarbú-
stöðum í Tungudal nú nýlega.
-* t
t
» f
$ GLEBILEGT SUMAR! $
t t
X X
$ Þökk fyrir veturinn!
❖ |
R í k i s s k i p. f
t
I
t
l
GLEÐILEGT SUMAR! Í
4
t
t
f .
Þökk fyrir veturinn!
Loftleiðir H. f. t
t
t
i Y
t
t '$
| GLEÐILEGT SUMAR! |
t t
k Matthías Sveinsson. t
t t
t t
t v x
t - t
t t
A ♦!♦
GLEÐILEGT SUMAR! t
V
ö. Kárason.
Y
♦%
Y
t
.*♦
V.X«!mX"X":“X"M"!..K"X"X"X"X“K"!..X"X"K"X"X";“X“X"X“X,K,,X"X. »!•
4 t
X ♦:♦
Tl
GLEÐILEGT SUMAR!
H. f. Njörður.
I
t
t
t
?
t
t
t
t
♦:♦
I
I
t
t
t
t
t
t
t
t
|
% t
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦•♦♦^♦♦^♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦^♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦^
GLEÐILEGT SUMAR!
Kaupfélag ísfirðinga.
Kaupmenn og kaupfélög
á Vestfjörðum.
Verzlun J. S. Edwald hefur tekið að sér umboðssölu
á öllum framleiðsluvörum okkar, og mun nú og framveg-
is afgreiða þær beint frá vörugeymslu sinni með sama
verði og verksmiðjan selur þær í Reykjavík.
Með því að kaupa framleiðsluvörur vorar, sem viður-
kenndar eru fyrir gæði, í gegnum umboð vort á ísafirði,
sparið þér með öllu:
1. ) Framflutningskostnað í Reykjavík;
2. ) Flutningskostnað til Isafjarðarhafnar;
3. ) Uppskipun á ísafirði.
Vörulisti vor og verðskrá verður send yður. Allar
nánari upplýsingar gefur umboðshafirín: Verzlun J. S.
Edwald, Isafirði, símar 245 og 45.
Reykjavík, 9. apríl 1945.
Chemia h/f.
(efnagerð).