Baldur - 03.10.1945, Síða 1
UTGEFANDI: SÓSlALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR
XI. ÁRG.
ísafjörður, 3. okt. 1945
28. tölublað.
Hneyksli Stefáns Jó-
hanns og Claesens.
Trúnaðarbrot þeirra Stefáns
Jóhanns Stefánssonar, for-
manns Alþýðuflokksins, og
Arents Claessens, heildsala, i
sambandi við íslenzk-sænska
viðskiptasamninginn og stofn-
un Sölumiðstöðvar sænskra
framleiðenda, hefur vakið ó-
hemju athygli um land allt.
1 vonleysi þess manns, sem
finnur kaldan gust almennrar
fyrirlitningar næða um sig,
hefur Stefán Jóhann vaðið
elginn i Alþj'ðublaðinu að
undanförnu, og reynt að verja
gerðir þeirra félaga. En þrátt
fyrir öll reykskýin, sem þar
er þyrlað upp, verður öllum
ljóst eftir lestur þessa vaðals,
að hvert einasta atriði af því,
sem blöð Sósíalistaflokksins
hafa sagt um þetta mál, er
sannleikur, og meira að segja
koma þar ýmsar frekari sann-
anir i ljós.
Eftirfarandi staðreyndir
standa óhaggaðar þrátt fyrir
allan þennan vaðal Stefáns
Jóhanns í Alþýðublaðinu.
1) Þeir Stefán Jóhann gefa
íslenzku ríkisstjórninni rangar
upplýsingai' um skilning
sænsku ríkisst j órnarinnar á
samningnum. Þeir Stefán Jó-
hann segja enn þann dag í
dag, að samningurinn innifeli
aðeins heimild til kaupa á hin-
sænsku vörum, en hið sanna
er, að samningurinn skuld-
bindur íslenzku ríkisstjórnina
til að veita innflutnings- og
gjaldeyrisleyfi fyrir sænskum
vörum, ef nokkur innlendur
aðili óskar eftir slíkum leyf-
um, samanber þau beinu fyrir-
mæli, sem viðskiptamálaráð-
herra gefur viðskiptaráði um
að veita slík leyfi. I bréfi sínu
til ráðsins segir ráðherrann,
að skuldbindingin sé „fortaks-
laus“.
2) Það er ekki nóg með það,
að þeir Stefán Jóhann og Ar-
ent Claessen skuldbinda ís-
lenzka ríkið til að kaupa hin-
ar ýmsu vörutegundir i grun-
samlegum hlutföllum, t. d. ís-
skápa fyrir 600 þús. kr., en
hinsvegar varahluti í bátavél-
arfyriraðeinslðO þús. kr., rak-
blöð fyrir 350 þús. kr. (þótt 5
ára birgðir séu fyrir í land-
inu) en hinsvegar bátavélar
fyrir aðeins einá miljón og
500 þús. kr. (þótt mikill hörg-
ull sé á slikum vélum) heldur
er samningurinn þannig, að
þeir Stefán Jóhann gera eng-
an fyriruara gagnvart kaup-
um á sænskum vörum, en
sænsku samninganefndamenn-
irnir gera fyrirvara gagnvart
hverri einni einustu vöruteg-
und, sem þeir vilja kaupa af
okkur. M. ö. o. Þeir Stefán
Jóhann segja: Við skulum
kaupa þetta og þetta af ykkur
Svíum algerlega skilyrðislaust.
En Svíarnir segja: Við skulum
kaupa þetta og þetta af ykkur
Islendingum, ef okkur semur
um verð og gæði.
Stefán Jóhann reynir að
verja þetta einkennilega val á
innflutningsvörum með þvi að
fullyrða, að þeir, samninga-
nefndarmennirnir hafi „yfir-
leitt“ farið „eftir þeirri inn-
kaupaáætlun, sem Samninga-
nefnd utanríkisviðskipta hafði
gera látið og upplýsingum
Viðskiptaráðs“.
Baldur hefur öruggar heim-
ildir fyrir því, að þetta eru
ósannindi. Viðskiptaráð lét í
ljós óskir sínar um kaup á
nokkrum vörutegundum, ^vo
•sem vélum, tunnum, timbri,
pappir, (það síðasttalda í
miklu minni mæli en sam-
ið var um) en minntist hins-
vegar aldrei á kaup á rak-
blöðum, ísskápum og fleiru
þess háttar.
Það má því með margfalt
meiri sanni segja, að þeir
Stefán Jóhann fóru „yfirleitt“
alls ekki eftir upplýsingum
Viðskiptaráðs.
3) Stofnun Sölumiðstöðvar-
innar frægu er undirbúin í
Svíþjóð áður en þeir Stefán
og Claessen ganga frá þessum
dæmalausa samningi. Það hef-
ur Stefán Jóhann sjálfur upp-
lýst, og ennfremur, að hann
hafi þekkt „lítilsháttar per-
sónulega“ og komið „nokkrum
sinnum á heimili“ þess manns,
sem ákveðið var að færi til Is-
lands, „til þess að kynna sér
á hvern hátt yrði bezt greitt
fyrir sölu á sænskum vörum
til Islands“.
1 fyrstu var ráðgert að leita
til einhvers „áður stofnaðs
firma“ á Islandi, en eftir dvöl
Stefáns Jóhanns í Svíþjóð er
horfið frá því ráði, og þegar
sendimaðurinn kemur hingað
fær hann Stefán Jóhann til
þess að gangast fyrir stofnun
Sölumiðstöðvar sænskra fjram-
leiðenda.
Undarlegt ef Stefán Jóhann
hefur ekki vitað um þessar
fyrirætlanir, og enn undar-
legra ef ekkert „áðUr stofnað
firma“ hefur ekki viljað taka
hin sænsku umboð.
4) Sölumiðstöðin hefur skap-
að sér einokunaraðstöðu fyrir
50 stærstu fyrirtækin i Sví-
þjóð.
5) Formaður nefndar þeirr-
ar, sem gekk frá samningun-
um í Svíþjóð heitir Stefán Jó-
hann Stefánsson.
Nefndin samdi á þann hátt
að stórhætta er íslenzkum
hagsmunum.
Formaður Sölumiðstöðvar
sænskra framleiðenda heitir
líka Stefán Jóhann Stefánsson.
Einokunaraðstaða sölumið-
stöðvarinnar skapar henni
stórkostlegan heildsalagróða.
Að lokum skal svo litilshátt-
ar vikið að afstöðu Skutuls
til þessa máls.
Þetta málgagn heiðarleikans
og hreinskilninnar, sem þyk-
ist vera, hefur nú tekið á-
kveðna afstöðu með þessu
hneyskli. Blaðið ver þá Stefán
og Claessen með yfirlýsingu
forsætisráðherra, þar sem seg-
ir að nefndarmennirnir hafi
haft fullt umboð ríkisstj órnar-
innar til að undirskrifa samn-
inginn og enginn ágreiningur
hafi verið innan ríkisstjórnar-
innar um samninginn nema
út af tunnukaupunum.
En nú greiddu ráðherrar
Sósíalistaflokksins atkvæði
gegn því að þeir Stefán Jó-
hann fengju fullt umboð, og
þó svo hefði ekki verið, þá er
engin leið að verja þá félaga
með því, að þeir hafi haft fullt
umboð allrar ríkisstjórnarinn-
ar, þegar það er nú .sannað
að þeir gáfu ríkisstj órninni
rangar upplýsingar um efni
samningsins í veigamiklum at-
riðum.
Hversu mjög sem Skutull
reynir að dylja afbrot Stefáns
Jóhanns og félaga með þessari
yfirlýsingu og lygum um
sænska málmiðnaðarmenn, þá
standa þeir’ alltaf jafn ber-
strípaðir, en ritstjóri Skutuls
afhj úpar sj álfan sig sem arg-
asta hræsnara eða hugleys-
ingja, sem tekur afstöðu með
hvaða ósóma sem er þegar
flokksmenn eiga í hlut. Reynd-
ar þarf engum að koma slíkt
á óvart.
Flosi Þórarinsson
starfsmaður á viðgerðar-
stofu Ríkisútvarpsins, andað-
ist í Reykjavík 28. september
s.l. í afleiðingu af bifreiðaslysi,
er varð með þeim hörmulegu
afleiðingum, að hann missti
þegar meðvitund og raknaði
aldrei til lifs aftur.
Flosi var fæddur hér á Isa-
firði 22. marz 1923, sonur Þór-
arins Á. Þorsteinssonar gull-
smiðs og Sigríðar Ásgeirsdótt-
ux*. Hann var hinn mesti efnis-
piltur, prýðilega gáfaður og
einstakur völundur og hugvits-
•maðui'.
Með hinu skyndilega fráfalli
lians, er þungur harmur kveð-
inn að móðir hans og föður
og öllum skyldmennum hans
og vinum.
------0------
Alþýðuflokksmenn
skora á Stefán Jóhann
að segja af sér for-
mennsku f Alþýðu-
flokknum.
Baldur hefur það fyrir satt
að á fundi i félagi Alþýðu-
flokksstúdenta hafi komið
fram áskorun á Stefán Jóhann
um að segj a af sér formennsku
í Alþýðuflokknum.
Tillagan var barin niður
með harðri hendi og kom þvi
aldrei til atkvæða.
En það, að hún kemur frarn,
sýnir Ijóslega hve x-eiðin yfir
liinu hneykslanlega trúnaðar-
broti Stefáns Jóhanns er al-
menn, og jafnvel lians eigin
flokksmenn skammast sín fyr-
ir að hafa hann fyrir fonnann
llokks síns. Og eru þeir sann-
arlega menn að meiri, sem
slíka sómatilfinningu liafa.
------0
Gunnar Jóhannsson
formaður verkamannafélags-
ins „Þróttur“ á Siglufirði, átti
50 ára afmæli 1. þ. m. Gunn-
ar er einn af ötulustu baráttu-
mönnunx íslenzkrar alþýðu.
Hann hefur alla tíð skipað sér
i fremstu raðir íslenzkra sósi-
alista og var stofnandi bæði
Kommúnistaflokksins og Sam-
einingai'flokks alþýðu — Sósí-
alistaflokksins.
Baldur færir Gunnai'i þakk-
ir fyrir ötult starf í þágu ís-
lenzkrar alþýðu og óskar hon-
urn allra heilla.