Baldur - 16.11.1945, Side 3
a
B A L D U R
131
BALDUR
(Vikublað)
Árgangur kostar 10 krónur.
Gjalddagi 1. júlí.
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Halldór Ólafsson frd Gjögri.
Ritstjórn og afgreiðsla:
Smlðjugötu 13.
Sími 80. — Pósthólf 124.
Skiðaskóli á Isafirði.
Skíðafélag Isfirðinga lét i
fyrri viku sprengja nokkra
stóra steina fyrir utan Stórurð-
arhrygginn og ruddi þar með
úr vegi torfæru, sem á hverj um
vetri hefur hindrað að þarna
væri hægt að stunda skíða-
íþróttir.
Fyrir þessa framtakssemi
Skiðafélagsins, geta bæjarbú-
ar hér eftir stundað skíðaí-
þróttir svo að segja, við hús-
hliðina hjá sér og einnig verð-
ur nú auðveldara en áður, að
kenna á skiði i barnaskólan-
um og öðrum skólum hér í
bænum, en það yrði nemend-
um áreiðanlega bæði til gagns
og skemmtunar og þeim tíma
vel varið, sem til þess færi.
En i þessu sámbandi er rétt
að vekja athygli á því, að það
er viðurkennt af íþróttafull-
trúa ríkisins og fjölda annara
dómbærra manna, að hvergi
á landi hér eru betri skilyrði
til þess að stunda skíðaíþrótt-
ir en einmitt hér á Isafirði og
að hér eigi að vera skíðaskóli
fyrir allt landið.
Þessi skilyrði er sjálfsagt að
nota. En til þess þarf sameig-
inlegt átak allra bæjarbúa, og
þá aðallega Skíðafélagsins og
annara íþróttafélaga, sem
sjálfsagt er að hafi samvinnu
um framkvæmdir, þó að Skiða-
félagið hefði þar forystu.
Það, sem gera þarf til þess
að hér sé hægt að starfrækja
myndarlegan skíðaskóla, sem
allir landsmenn eiga aðgang
að, er fyrir það fyrsta að
ljúka við skíðaveginn upp á
Seljalandsdal, en til þess vant-
ar aðeins herzlumuninn, og
byggja nýjan skíðaskála á
dalnum, auk ^ansra annara
framkyæmda, sem nauðsyn-
legar eru vegna íþróttarinnar.
Vitanlega kostar þetta mikið
fé. En nú væri ríkinu skylt að
styrkja slíkan skóla að veru-
legu leyti. Bæjarsjóður ætti
líka að láta eitthvað af mörk-
um og bæta þar með fyrir það,
að hann hefur enn ekki látið
eyrisvirði til Skíðafélagsins,
þrátt fyrir það að félagið hef-
ur haft með höndum ýmsar
framkvæmdir sem bæjarbúar
hafa notið góðs af, og meira
að segja bærinn sjálfur, sem
notaði skíðaveginn mikið, þeg-
ar vatnsveitan var lögð og
sparaði sér þar með stór fé.
Aðalfjármagnið yrði þó að
koma frá almenningi í gjafa-
vinnu, fjárframlögum og á
annan hátt.
Svo framarlega sem allir
Húsnæðismálið.
Framhald af fyrstu síðu.
nú þegar fyrir um lán til bygg-
inga á 30—36 ibúðum, 3—4
herbergi að stærð, ásamt þæg-
indum.
Hús þessi séu tvær hæðir og
4 íbúðir i hvoru þeirra, og
hverjar tvær íbúðir saman um
inngang.
Ibúðir þessar verði seldar
við kostnaðarverði, eftir að
byggingu þeirra er að fullu
lokið. Greiðsluskilmálar séu
þeir, að kaupendur taki að sér
að greiða þau lán, sem hvíla á
viðkomandi íbúðum, enda hafi
bæjarstjórn komið lánunum
svo fyrir, að þau jafngildi hag-
kvæmustu byggingarlánum,
sem völ er á.
Sá hluti byggingarkostnaðar,
' sem liggur i innlendu bygg-
ingarefni (möl, sandi, muln-
ing) komnu á byggingarstað,
svo og vinnu skurðgröfu, ef
notuð er við kjallaragröft, skal
færður á sérstakan reikning,
og eigi krafist greiðslu eða
vaxta á þeim kostnaðarlið fyrr
en viðkomandi íbúð hefir ver-
ið greidd niður i fasteigna-
matsverð. Upphæðin sé hins
vegar tryggð með þriðja veð-
rétti i viðkomandi íbúð“.
Haraldur Guðmundssort.
Jón Jónsson.
Á þessu stigi málsins er ekki
ástæða til að fara mörgum orð-
um um þessar tillögur, til þess
gefst sennilega tækifæri, þeg-
ar nefndin hefur sagt álit sitt
á þeim og komið með sínar til-
lögur. Þó verður ekki hjá því
komist að benda nú þegar á
þá galla sem eru á tillögum
Alþýðufloklcsmanna, sérstalc-
lega livað viðkemur bygging-
unni við Sundstrætið. I fyrsta
lagi er það, að staðurinn er í
alla staði mjög óheppilegur,
vegna þess hve landrjani er
þar lítið, meðan ekki hefur ver-
ið fyllt upp út á rifið. I öðru-
lagi er það mjög fráleit hug-
mynd að byggja blokk af
þriggja hæða húsum, eins og
þarna er ætlunin að gera, þar
leggjast á eitt í þessu máli þá
er hægt að framkvæma- það.
Og það er fullkomlega þess
vert.
Iþróttakennsla er talin mjög
mikilsverður liður í öllu upp-
eldisstarfi og skíðaíþróttin
hlýtur að vera þar í fremstu
röð, bæði vegna þess hve holl
og skemmtileg hún er og al-
menningur á hægara með að
stunda hana en flestar aðrar
íþróttir. En það er einmitt
aðaltilgangur allrar íþrótta-
kennslu, að íþróttirnar verði
stundaðar af almenningi, hon-
um til heilsubótar og skemmt-
unar, en ekki af nokkrum lit-
völdum, til þess að pressast
við að setja einhver met, þó
að það geti stundum verið
gott.
sem sex fjölskyklur yrðu um
sama inngang og mætti búast
við að því fylgdu ýmsir örðug-
leikar og árekstrar. Þá yrði
heldur ekkert eftirsóknarvert
að búa uppi á hæsta lofti i
slíkri byggingu, minnsta kosti
ekki fyrir barnmargar fjöl-
skyldur, en búast mætti við að
það yrðu einmitt þær, sem
öðrum fremur lentu í þeim i-
búðum. I þriðja lagi er það
mjög hæpinn búhnykkur að
ætla að selja íbúðirnar óinn-
réttaðar, vegna þess að megin-
hlutinn, um það bil tveir þriðju
hlutar, af byggingarkostnaðin-
um er einmitt innréttingin og
hún verður ekki unnin nema af
fagmönnum svo í lagi sé; þámá
telja víst, að nokkur dráttur
yrði hjá sumum að innrétta að
fullu sínar íbúðir, þegar aðrir,
aftur á móti, gætu lokið við
sínar að öllu leyti strax, og
geta allir séð hver óþægindi
geta af því stafað í sambygg-
ingu eins og þessari. Þar að
auki gerði slik tilhögun bygg-
ingarnar raunverulega miklu
dýrari en ef allt væri unnið af
einum og sama aðila þegar i
stað, og hætta á að verkið yrði
mjög misjafnlega vel af hendi
leyst.
Það mundi því reynast erf-
itt, nema fyrir þá, sem veruleg
fjárráð hafa, að eignast þessar
íbúðir.
Þessi atriði, sem hér er drep-
ið á, sýna að tillagan er sá
gallagripur að því verður ekki
trúað að óreyndu, að nefndin
leggi til að farið verði inn á
þessa braut í byggingarmálum.
Um tillögu sósíalista gegnir
allt öðru máli. Þar er gert ráð
fyrir raunhæfu átaki af hálfu
bæjarfélagsins til þess a,ð bæta
úr því hörmungar ástandi, sem
nú rikir í húsnæðismálum. En
vitað er, að í dag — eftir aldar-
fjórðungs stjórn kratanna eru
fleiri hundruð Isfirðingar, sem
húa í íbúðum, sem ekki eru
mannabústaðir.
Fyrst og fremst má benda á
þann hluta tillögunnar, sem
fjallar um að sá hluti bygg-
ingarkostnaðar, sem liggur í
innlendu byggingarefni, komnu
á byggingarstað, og væntanleg
vinna skurðgröfu, verði færð-
ur á sérstakan reikning og eigi
krafist greiðslu og vaxta af
þeim kostnaðarlið, fyr en við-
komandi íbúð hefur verið
greidd niður í fasteignamats-
verð.
I öðru lagi verða íbúðirnar
seldar við kostnaðarverði, eft-
ir að byggingu þeirra er að
fullu lokið.
I þriðja lagi er gert ráð fyr-
ir þvi i tillögu sósíalista að
tvær fjölskyldur verði um inn-
gang, í stað sex fjölskyldna,
eftir tillögu Alþýðuflokksins.
Síðan. framanskráð er ritað,
hefur þetta gerst í málinu:
Auka-bæ j arstj órnarfundur
var haldinn í fyrradag, til þess
að kj ósa mann i húsnæðisbygg-
ingarnefndina i stað Böðvars
Sveinb j arnarsonar, sem sagt
hafði af sér störfum í nefnd-
inni sökum anna. Það hafði
nefnilcga gleymst að tala við
Böðvar, áður en hann var kos-
inn. Hann var ekki einu sinni
spurður, hvort hann hefði vilja
eða ástæður til að starfa í
nefndinni, enda þótt vitað væri
að störf hennar hlytu að verða
mikil og tímafrek. Sýnir þetta
eitt meðal annars flaustur og
yfirborðshátt Alþýðuflokks-
fulltrúanna í þessu máli og
hversu það er illa undirbúið
og vanhugsað frá þeirra hendi.
Á fundinum báru sjálfstæð-
ismenn fram sömu tillögu og á
fundinum 7. nóvember, að
nefndin yrði skipuð 5 mönn-
um, svo að tryggt væri að allir
flokkar ættu þar fulltrúa. Jafn-
framt lýsti Halldór Halldórs-
son því yfir, að sjállstæðis-
menn mundu ekki taka þátt í
kosningu í nefndina, ef tillaga
þeirra yrði feld. Fulltrúar
sósíalista lýstu stuðningi sín-
um við tillögu sjálfstæðis-
manna um fjölgun í nefndinni,
en Alþýðuflokksfulltrúarnir
voru ekki á þvi að víkja frá
fyrri ákvörðun sinni og var til-
lagan feld með 5:4 atkvæðum.
Allharðar umræður urðu á
fundinum. Deildu sósíalistar
hart á Alþýðuflokksmenn fyr-
ir aðgerðaleysi þeirra og svik
i húsnæðismálunum á undan-
förnum árum og sýndu fram á
hvernig þeir nú ætluðu að slá
sig til riddara fyrir kosning-
arnar með þessum vanhugsuðu
tillögum sem þeir hafa lagt
fyrir nefndina. Einnig lýstu
þeir þvi yfir, að þeir mundu
gera allt, sem í þeirra valdi
stæði til þess að húsnæðismál-
ið fengi viðhlýtandi lausn og
því gera uppástungu um mann
í nefndina, til ])ess að geta
fylgst með gerðum hennar og
fylgt fram tillögum sínum, sem
vísað hefur verið til hennar.
Að loknum þessum umræð-
um, var Þórarinn Jónsson kos-
inn í nefndina, eftir tillögu
sósíalista. Aðrir voru ekki í
kjöri og varð hann þvi sjálf-
kjörinn.
Hér verður látið staðar num-
ið um þessi mál. Áreiðanlega
gefst tækifæri til að ræða þau
síðar. Má vera að þá komi sitt-
hvað í ljós, sem mönnum er
hulið nú. En það verður að
segjast nú þegar, að ekki dug-
ar að flana að framkvæmdun-
um í þessu máli, enda þótt ein-
hverjir bæjarfulltrúar telji
það vænlegt til fylgisauka við
næstu kosningar. Mál eins og
])etta þarf að leysa með sam-
eiginlegu átaki allra bæjarbúa.
Og það situr vissulega illa á
þeim flokki, sem i áratugi
sveikst um allar aðgerðir i hús-
næðismálum bæjarins, að ætla
að slá um sig með tillögum
eins og þessum, núna rétt fyr-
ir kosningarnar.