Baldur - 24.11.1945, Blaðsíða 1
UTGEFANDI: SÓSIALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR
XI. ÁRG.
ísafjörður, 24. nóv. 1945
34. tölublað.
Togarakaupamálið :
Það er skýlaus krafa ísfirðinga að hing-
að komi togarar.
Hvernig „Alþýðuflokksmenn horfa fram
og undirbúa kaup tveggja dieseltogara“.
Vítavert athafnaleysi kratanna í málinu
má ekki hindra framgang þess.
Bæjarbúar þurfa að fylgjast
vel með því, sem gerist í tog-
arakaupamálinu.
Isfirðingar þurfa togara.
Það er bæði nauðsynlegt og
eðlilegt, að togarar séu gerðir
út héðan úr bænum. Nauðsyn-
legt vegna þess að í dag, eftir
aldafjórðungsstjórn kratanna
á bæjarfélaginu, eru atvinnu-
tækin, sem eru grundvöllurinn
undir lífsafkomu Isfirðinga,
bátarnir, algjörlega ónógir og
meginþorri þeirra þannig, að
ekki henta til róðra héðan, sbr.
Dísirnar og Stjörnurnar. Eðli-
legt er það að gera út togara
héðan frá Isafirði vegna þess
að skamrnt undan landi liggja
fengsælustu fiskimið veraldar-
innar.
Togarar eru stórvirkustu og
arðbærustu atvinnutækin, sem
þjóðin á. Að meðaltali aflar
hver togarasj ómaður allt að
því þrem sinnum meir en hver
sjómaður gerir að meðaltali
á vélbátunum. Ef við Isfirðing-
ar fengjum togara, þá myndu
allir atvinnuhættir hér breyt-
ast frá því sem nú er. Stórum
meiri afli myndi berast á land,
atvinna myndi aukast, afkoma
manna batna.
I sumar, sem leið, ritaði ég
grein í Baldur, sem nefndist
Togaraseljendur — togara-
kaupendur. I grein þessari
rakti ég nokkuð afskipti krata-
meirihlutans í bæjarstjórninni
að togaraútgerð héðan úr bæn-
um. Minnti ég á, að þeir ásamt
þrem bæjarfulltrúum íhalds-
ins, hefðu seinnt á árinu 1941
(þegar gróðatímabil íslenzka
togaraflotans var hafið) selt
togarann Skutul út úr bænum
fyrir lítið meira fé en þá ný-
lega hafði verið greitt í klöss-
un á togaranum. Minnti ég á,
að þeir Hagalín og Hannibal,
sem mest börðust fyrir sölunni
(og meira að segja vildu selja
skipið kratabróður sínum í
Reykjavík fyrir um 200 þús-
und krónum minna) hefðu
varið Skutulssöluna með því
að segja: „Engin framtið fyrir
togaraútgerð héðan úr bæn-
um“.
Loks lét ég í ljós gleðilega
undrun mína í greininni yfir
þeirri hugarfarsbreytingu, sem
átt hefði sér stað hjá krötun-
um, þar sem þeir þá nýlega
höfðu pantað tvo togara. Þótt-
ist ég þar sjá ákveðið sam-
band á milli þessarar togara-
pöntunar og væntanlegra bæj-
arstj órnakosninga.
Hannibal Valdimarsson skrif-
aði grein í blað sitt, 25. ágúst,
og átti grein þessi að vera
svar til mín. I einni af feit-
letruðum fyrirsögnum sínum
segir Hannibal m. a.: „Alþýðu-
flokksmenn horfa fram og
undirbúa kaup tveggja diesel-
togara...“.
Nú skal ég skýra bæjarbú-
um frá þessum „undirbúningi“
kratanna og hvað annað hefur
gerst í þessu máli. Hinn 12. þ.
m. birtist í blöðum og útvarpi
tilkynning frá Nýbyggingar-
ráði viðvíkjandi hinum 30 tog-
urum, sem Ríkisstjórn Islands
hefur af miklum dugnaði fest
kaup á í Bretlandi. I tilkynn-
ingu þessari segir m. a. að
endurnýja þurfi allar eldri
umsóknir um togarana, að hin-
ar nýju umsóknir þurfi áð ber-
ast fyrir 1. des. n. k., að um-
sækjendur þurfi að setja
bankaábyrgð fyrir kaupverði
togaranna en hinsvegar geta
þeir látið umsóknir sínar vera
háðar því skilyrði, að mjög
veruleg og hagkvæm stofnlán
fáist, en þar mun vera átt við
lán allt að þrem fjórðu hlut-
um eins og frumvarp Nýbygg-
ingarráðs gerir ráð fyrir.
Kratameirihluti bæj arstj órn-
arinnar, sem hefur fram-
kvæmdavaldið í höndum sér,
gerir ekkert í málinu
frá því að samþykkt er í júlí
s.I. að festa kaup á tveim tog-
urum. Engar tilraunir eru t. d.
gerðar til þess að fá fjármagn,
enda þótt vitað sé, að enginn
peningur er til i bæjarkassan-
um. Nú skyldi maður halda að
þetta framkvæmdavald hefði
skjótt brugðið við þegar til-
kynning Nýbyggingarráðs
barst hinn 12. þ. m. En það
er öðru nær. Hver dagurinn
líður af öðrum, og er þó
skammt til stefnu, og ekkert
er gert. Að morgni þess 19. þ.
m. skrifuðum við bæjarfulltrú-
ar sósíalista bréf það, sem liér
fer á eftir. Afhenti ég bréfið á
skrifstofu bæjarstjóra klukkan
rúmlega eitt sama dag.
Bréfið var þannig:
Isafirði, 19. nóv. 1945.
Eins og yður er að sj álfsögðu
kunnugt um, hr. bæjarstjóri,
pöntuðu þeir bæj arfulltrúarn-
ir, Guðmundur Gíslason Haga-
lín og Grímur Kristgeirsson,
hjá Nýbyggingarráði síðastlið-
ið sumar tvo af þeim togurum,
sem Ríkisstjórn Islands var að
leita fyrir sér um kaup á frá
Bretlandi og/eða Svíþjóð. Um-
sókn sína sendu nefndir bæjar-
fulltrúar fyrir hönd Bæjar-
stj órnar Isafj arðarkaupstaðar
enda þótt engin samþykkt um
togarakaup hefði verið gjörð.
Hinsvegar var áður vitað, að
fulltrúar Sósíalistaflokksins i
bæjarstjórninni voru eindreg-
ið fylgjandi því, að bæjar-
stjórnin beitti sér fyrir útgerð
togara héðan úr bænum. Á
fundi bæjarstjórnarinnar hinn
25. júli s.l. var svo samþykkt
að stofna til bæjarútgerðar um
ofangreinda tvo togara, ef þeir
fengjust keyptir. Var þar með
liætt úr formgalla þeim, sem
var á umsókn nefndra tveggja.
bæjarfulltrúa. Þar á eftir mun-
uð þér, hr. bæjarstjóri, hafa
staðfest umsóknina með bréfi
til Nýbyggingarráðs.
Með tilvísun til ofanritaðs
leyfum við undirritaðir bæjar-
fulltrúar Sósíalistaflokksins
okkur að vekja athygli yðar,
hr. bæjarstjóri, á tilkynningu
frá Nýbyggingarráði, sem birt-
ist i dagblöðum Reykjavíkur
um miðjan þennan mánuð,
viðvíkj andi umsóknum um
togara þá, sem Ríkisstjórn Is-
lands hefur nú fest kaup á í
Bretlandi. 1 tilkynningu þess-
ari er m. a. skýrt frá því, að
endurnýja þurfi fyrri umsókn-
ir um togarana. og ennfremur,
að allar umsóknir þurfi að
vera komnar í hendur Nýbygg-
ingarráðs fyrir 1. des. n. k.
Með því að okkur er eigi
kunnugt um, að bæj arstj órnin
eða þér liafið annað aðhafst
en um getur i fyrstu málsgrein
hér að ofan, en hinsvegar vit-
að að ýmsar ráðstafanir þarf
að gera í viðbót — m. a. öflun
fjár — og ennfremur að
skamur tími er þar til umsókn-
arfrestur er liðinn, þá leyfum
við okkur, hr. bæjarstjóri, að
fara þess á leit við yður, að
þér mjög bráðlega kajlið sam-
an fund í Bæjarstjórn Isafjarð-
ar og að á þeim fundi verði
togarakaup bæjarins tekin til
umræðu.
Virðingarfyllst,
Haukur Helgason.
Jón Jónsson.
Seint sama dag, —
eða eftir að bæjarstjóri
og kratameirihlutinn er
búinn að fá bréfið,
rumska þessir herrar við. Sím-
talað er við bankastjórn Út-
vegsbankans í Reykjavík og
beðið um bankaábyrgð. Tveim
dögum siðar er svo fundur
haldinn i bæjarstjórninni. Var
togaramálið til umræða og
urðu um það snarpar deilur.
Við sósíalistar lögðum fram til-
lögu þess efnis, að þriggja
manna nefnd, einn frá hverj-
um flokki, yrði send til
Reykjavíkur til að leita aðstoð-
ar lánsstofnana og ennfremur
hafa tal af Ríkisstjórn Islands
og Nýbyggingarráði ef þurfa
þætti. Þótti okkur vænlegar að
liafa mann frá hverjum flokki,
þvr ekki þótti okkur undanfar-
andi aðgerðir — eða réttar
sagt: aðgerðarleysi — krat-
anna benda til þess, að þeir
væru mjög eindregnir í mál-
inu.
Á fundinum upplýsti Hanni-
bal Valdimarsson að neitandi
svar hefði borist frá Otvegs-
bankanum þá um morguninn.
Þykist ég vita að svarið varð
á þann veg vegna þess, að far-
ið var fram á ábyrgð á heild-
arandvirði togaranna en ekk-
ert fé lagt fram af bæjarfélag-
inu sjálfu. En ekkert fé er
hægt að leggja úr bæjarsjóði
vegna þess að hann er tómur.
Og þar finnast ekki peningar
vegna þess að Skutull var seld-
ur, vegna þess, að þeir, sem
með völdin fara, í þessu bæjar-
félagi, kunna hvorki að stjórna
þessu bæjarfélagi né fjármál-
um. Sbr. það, sem aðalkratinn
Hannibal sagði í umræðunum
á bæj arstj órnarfundinum:
„Það er ekki í samræmi við
Framh. á 4. siðu.
V