Baldur - 22.01.1946, Side 1
ÚTGEFANDI: SÖSIALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR
XII. ÁRG.
ísafjörður, 20. janúar 1946
3. tölublað.
Fnllyrðing íhaldsins um að það fái fjóra
menn kosna er YÍsvitandi blekking.
*
Isfirðingar vilja ekki einræði
mannsins, sem barðist gegn
þjóðinni í sjálfstæðismálinu.
Mannsins, sem spáði íslenzka lýðveldinu hrakspám.,
I sumarkosningunum 1942 fékk það 433 atkvæði og
431 atkvæði í haustkosningunum sama ár.
Til þess að fá 4 menn kosna þarf það a. m. k. 580 at-
kvæði.
Hverjum dettur í hug að íhaldið, málsvari stórgróða-
valdsins, höfundur gerðardómslaganna, flokkur heildsal-
anna, bæti við sig 150 atkvæðum? . *
Hin raunverulega barátta stendur um það hvort
Haukur Helgason verður kosinn í bæjarstjórn eða
hvort einræðisbrölt Hannibals Valdimarssonar á að
halda áfram.
I áróðri sínum undanfarnar
vikur hefur íhaldið haldið því
mjög á lofti, að það hefði
mikla möguleika á að fá fjóra
menn kosna. Þetta er visvit-
andi blekking, visvitandi vegna
þess, að Sigurður Bjarnason og
aðrir úr forystuliði ihaldsins
vita ósköp vel, að til þess að
fá fjára menn kosna, þarf að
auka atkvæðamagn flokksins
úr 431 atkvæði við siðustu
kosningar upp í a. m. k. 580
atkvæði — og þeim er ljóst, að
slík atkvæðaaukning er útilok-
uð. Hún er útilokuð vegna
þess, að alþýða manna treystir
ekki flokki stórgróðavaldsins,
hún hefur ekki gleymt ' að
Sjálfstæðisflokkurinn var, á-
samt Framsóknarflokknum,
höfundur gerðardómslaganna,
en með þessum illræmdu lög-
um var alþýðan gerð að á-
nauðugum þrælum stórgróða-
mannanna. Slík atkvæðaaukn-
ing er útilokuð vegna þess, að
alþýðu manna er nú orðið ljóst,
að þótt hluti af íhaldsflokkn-
um vilji nýsköpun atvinnu-
tækjanna, þá vill hann þó fyrst
og fremst, að hin nýju tæki
lendi i höndum stórgróðavalds-
ins. Samanber það að báðir
ráðherrar flokksins eru á móti
frumvarpi Nýbyggingarráðs
um lækkun vaxta og útvegun
hagkvæmra lána til þeirra,
sem ekki eru fjárhagslega
sterkir, en vilja taka þátt í ný-
sköpunaráformum þjóðarinn-
ar.
Af öllu þessu er útilokað, að
alþýðumenn, sem nú hafa
snúið haki við krötunum,
vegna svika þeirra, gangi i lið
með íhaldinu. Þeir hljóta að
kjósa með Sósíalistaflokknum.
Þeir kjósa með Sósíalista-
flokknum vegna þess, að það
voru verkalýðssamtökin, und-
ir forustu Sósíalistaflokksins,
sem brutu gerðardómslögin á
bak aftur. Og i kosningunum
steindrap alþýðan þennan
gerðardómsóvætt afturhalds-
ins með hinum glæsilegu kosn-
ingasigrum, er hún veitti Sósi-
alistaflokknum.
I krafti þessara sigra hefur
verkalýðurinn um land allt
fengið grunnlaun sin hækkuð
— starfsmenn hins opinbera
fengið laun sín bætt stórum
með nýjum launalögum. Og
síðast en ekki sízt, vegna þess-
ara kosningasigra Sósialista-
flokksins situr nú að völd-
um athafnasamasta ríkisstjórn,
sem vinnur að stórkostlegum
nýsköpunaráformum — og það
var Sósíalistaflokkurinn, sem
fyrstur allra flokka, lagði
grundvöllinn að þessum áfomi-
um og benti á leiðir til þess að
gera þau að veruleika.
Sósíalistaflokkurinn er
flokkur fólksins — flokkur
framtíðarinnar, þess vegna
kjósa ísfirðingar frambjóð-
endur hans, kjósa B-listann.
--------------o-------
Kynnið ykkur bæjarmála-
stefnuskrá Sósíalistafélags
Isafjarðar.
HANNIBAL VALDIMARS-
SON hefur reynt að koma
þeirri skoðun inn hjá fólki, að
það sé persónuleg árás á sig
þegar minnst er á afstöðu hans
i sjálfstæðismálinu, hvernig
hann samkvæmt eigin yfirlýs-
ingu greiddi þá atkvæði og
lagði ofur-kapp á að fá aðra
til að gera slíkt liið sama. Það
eru alger ósannindi að hér sé
um persónulega árás a,ð ræða.
Það hefur aldrei verið ráðist á
Hannibal fyrir það hvernig
hann sjálfur greiddi atkvæði i
sjálfstæðismálinu heldur fyrir
hitt, að hann rak ofstækisfull-
an áróður fyrir þvi að almenn-
ingur greiddi atkATeði gegn
lýðveldisstofnun á Islandi, og
beitti í þeim áróðri opinheru
blaði sem hann þá stjórnaði í
umboði alþýðusamtakanna á
Vestfjörðum, blaðinu Skutli.
SKUTULL frá þessum tima
er órækust sönnun þess að hér
er farið með rétt mál og full-
kominn ástæða er til þess að
fólk gleymi ekki afstöðu
Hannibals í þessu stórmáli.
Blað eftir blað,, allt frá því
fyrst er verulega farið að ræða
um að íslendingar noti þann
skýlausa rétt, sem þeim var
gefinn í sambandslögunum um
uppsögn sambandsins við Dani
og stofnun lýðveldis, hamast
Hannibal gegn því að þessi
réttur sé notaður. Hann velur
stjórnarskrá lýðveldisins hin
háðulegustu orð. Hann líkir
hvatningarorðum islenzkra
stjórnarvalda til íslenzku þjóð-
arinnar, um að standa samein-
uð í þessu mikilvæga og ör-
lagaríka máli, við nazistaáróð-
ur. Bjarkarlaufin þrjú, sem i
sambandi við lýðveldiskosning-
arnar voru seld til ágóða fyrir
alþjóðlegt nauðsynja- og við-
reisnar-mál, Sandgræðslusjóð,
verða í hans augum eins og
eikarlauf Hitlers. Þó kastar
fyrst tólfunum i Skutli sem út
kom fyrsta kjördag lýðveldis-
kosninganna, 20. mm 1944. Það
blað er skrifað af svo brjáluðu
ofstæki gegn helgasta máli ís-
lenzku þjóðarinnar, að slíkt
hefur aldrei sézt áður og á
vonandi aldrei eftir að sjást í
íslenzku blaði í framtiðinni.
I ÞESSU BLAÐI eru allar
aðferðir notaðar til þess að
villa um fyrir þjóðinni. I grein,
sem ber hina glæstu fyrirsögn:
„Þetta er játningin mín“, er
slegið á þá strengi að alþýðan
hafi ávallt barist fyrir réttum
málsstað og ekki gefist upp eða
hikað í þeirri baráttu. En
Hannibal fullyrðir þó að bar-
átta hans gegn því að lýðveldi
verði stofnað á Islandi, sé þó
langtum mikilvægari og rétt-
ari. Hann segir: „Það er sann-
færing mín að málstaðurinn
hafi aldrei verið betri, en sá,
sem ég nú berst fyrir, og að
baráttan hafi aldrei verið jafn
mikilvæg fyrir framtíðina. En
veittu því athygli vestfirzk al-
þýða (Leturhreyting H. V.) að
baráttan hefur aldrei verið
jafn miskunarlaus og hörð og
sú barátta, sem ég nú stend í
og þessvegna vænti ég þess og
treysti því að þú látir mig ekki
standa einan í henni er að [ok-
um dregur'. (Leturbreyting
Baldurs).
Hér er svo ákveðið sem
Frarah. á 4. síðu.
B-Iistinn er listi Sósíalistaflokksins á Isa-
firði og Bolungarvík. — ísfirðingar — Bol-
víkingar