Baldur


Baldur - 26.01.1946, Qupperneq 1

Baldur - 26.01.1946, Qupperneq 1
ÚTGEFANDI: SÖSIALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR XII. ÁRG ísafjörður, 26. janúar 1946 5. tölublað. Kosið verður um það, hvort bæjarstjórn eigi að hafa forystuna i atvinnu- og húsnæðismálum. Kosið er á milli öryggis og öryggisleysis. ------------------------------------ Hirðisbréf Finns Jónssonar. Höfundur skóbótagreinarinnar ávarpar tsfirðinga. Stefna sósíalista er að tryggja að allir bæjarbúar, sem vinnufærir eru, geti stundað nytsama og arð- bæra atvinnu, og að þeir geti búið í íbúðum, sem upp- fylla nútíma kröfur um hollustuhætti og þægindi. Sósíalistar telja, að því að- eins verði hægt að tryggja þetta, að bæjarstjórnin hafi forystuna í atvinnu og hús- næðismálum bæjarins. Bæði íhald og kratar þykjast hafa sömu stefnu, en íhaldið vill ekki að bæjar- stjórnin hafi forystuna — heldur einkaframtakið. — Hvað þýðir það? Það þýðir fullkomin óvissa hjá allri al- þýðu manna um lífsafkomu sína — það þýður atvinnuleysi t. d. ef skip í einstaklingseign yrðu flutt nt úr bænum — það þýðir gróði fárra einstaklinga á kostnað fjöldans. Og kratarnir hafa sýnt með 24 ára stjórn sinni, að þeir hvorki geta né vilja framkvæma þessa stefnu, sem þeir þykjast hafa. — Staðreyndirnar tala sínu máli: „Ástandið í húsnæðismál- um bæjarins er hörmulegt“, segir bæjarstjórinn. Þetta er hverju orði sannara um á- standið i dag eftir 24 ára stjórn kratanna. En ekki er ástandið allsstað- ar jafn hörmulegt. Bæjarsjóð- ur og Hafnarsjóður eiga. hús, nokkuð mörg hús. Þar á meðal eitt, sem kostað hefur 62 þús- und kr. í viðhald og endurhæt- ur undanfarin 5 ár. En þar býr líka Finnur, þegar hann er í bænum, og Birgir, bæjarfull- trúi. Bærinn á líka Dagheimilið, Hlíðarhús, Vallarhorg o. fl. I dag'er flotinn ísfirzki minni en hann var fyrir 20 árum og í dag er „ástandið í húsnæðis- málum bæjarins hörmulegt“ að sögn bæjarstjórans, og seg- ir hann það dagsatt. ISFIRÐING AR í Nú kjósið þið á milli ör- yggis eða óvissu. Nú kjósið þið um það, hvort bæjar- stjórnin á að hafa forystuna í atvinnu- og húsnæðismál- um — eða hvort allt á að reka á reiðanum. Kjósið með atvinnu — en gegn atvinnuleysi. Kjósið með skipulagningu framleiðslunnar — en gegn skipulagsleysi. Kjósið með ykkur sjálf- um og börnum ykkar — en ekki gegn ykkur og börnum ykkar. Kjósið B-listann Kjósið Sósíalistaflokkinn. hús. Viðhaldið og endurbæt- urnar á öllum þessum húsum til samans er margfalt minna en á íbúðarhúsi pabbans og pabbadrengsins. En þarna búa líka einstaklingar, fleiri tugir talsins, sem aðeins eru „hátt- virtir“ rétt fyrir kosningar — en þeim svo gleymt strax eftir kosningar. 62 þúsundir í íbúð Finns og Birgis, örfáar þúsundir í íbúðir fjöldans. Þetta er nú jafnaðarmennska, sem seg- ir sex. -------o------ Finnur Jónsson birtir hirð- bréf til ísfirzkra kjósenda í Skutli 23. janúar s.l. I þessu hréfi, sem hann nefnir: Avarp til ísfirðinga, ræðir hann bæj arstj órnarkosn- ingarnar og skorar á gamla samherj a og vini að kj ósa lista Alþýðuflokksins. Hann lýsir þar með mörgum og fögrum orðurn störfum og stefnu krat- anna í bæjarmálum Isafjarðar undanfarin tuttugu og fjögur ár, segir áð meirihluta stjórn Alþýðuflokksins hafi „gefist vel“. „Stefna Alþýðuflokksins reynzt Isfirðingum holl“. Innan um þetta skrum um ágæti kratanna hæði hér á Isa- firði og um allan heim, dreifir hann svo, á sinn sérstæða finnslega hátt margtugnum ó- sannindum um, að sósíalistar, kommúnistar, sem hann nefn- ir svo, hatist við allar félags- legar umbætur og vilji halda alþýðunni i svelti, til þess að örva byltingarhæfni hennar. Fyrir tíu árum síðan, ná- kvæmlega sama mánaðardag og Skutull hirtir þetta ávarp Finns Jónssonar nú, eða 23. janúar 1936, hirti sama blað einnig hirðhréf til isfirzkrar alþýðu frá jjessum sama manni. Það hirðsbréf bar yfir- skriftina: Er ástæða til að æðrast? en hlaut meðal al- mennings nafnið skóhótagrein- in hans Finns. Á þessum árum svarf at- vinnuleysi og l'járskortur,-sem því fylgdi, mjög að ísfirzkum verkalýð. Ekki vegna harðinda eða aflabrests, heldur vegna öngþveitis auðvaldsskipulags- ins, heimskreppunnar, sem þá hafði þjakað verkalýðinn um nokkur ár. Alþýðuflokkurinn undir for- ustu Finns Jónssonar stóð gjör- samlega ráðþrota. Flokkurinn, sem Finnur Jónsson segir ís- firzkum kjósendum nú, að allt- af hafi gefist vel og reynzt Is- firðingum hollur, 'gat þá, þrátt fyrir 14 ára meirihluta stjórn í bænum að baki, ekkert ann- að gert en látið aðalleiðtoga sinn ávarpa lýðinn og segja: „Nú er hart í ári og kveink- ar sér margur sem von er, en ýmsir virðast halda að svo kegri um þvert hak að aldrei rétti við aftur. Með þeim tækj- um sem til eru í landinu, ættu vandræðin þó ekki að verða mjög langvinn og oft hefur litið miklu ver út (en) nú með- an aðstæðan til bóta var miklu örðugri“. Síðan er af mikilli kostgæfni tekin dæmi úr bók Þorvaldar Thoroddsen Árferði á Islandi i þúsund ár, er lýsa hörmung- um þjóðarinnar á mestu nið- urlægingar- og hörmungar- tímum hennar, þegar erlend kúgun og hallæri af náttúru- völdum svarf svo að, að fólk lagði sér skóbætur til munns eða dó úr hungri. Og til hvers var verið að rifja þessar hörmungasögur upp fyrir atvinnulausu og hálf- soltnu verkafólki? Það var gert til þess að sýna, því, að oft hefði sorfið fastar að, og þessvegna væri ekki ástæða til að æðrast, þótt ekkert væri framundan nema áframhald- andi eymd. Slík voru bjarg- ráð aðalforingja Alþýðuflokks- ins á lsafirði, þegar virkilega reyndi á. Fólkið átti ekki að æðrast þótt rotið og úrelt þjóð- skipulag skapaði því atvinnu- leysi og sult. Það átti að þegja og bíða þess að allt batnaði af sjálfu sér. Dásamleg barátta fyrir hugsj ónum j af naðar- stefnunnar. Finnst ykkur ekki. Þessu hirðisbréfi Finns Jóns- Framh. á 2. siðu. Einu sinni seldi Hagalín sjálfum sér og nokkrum öðrum heildsölum niðursuðuverksmiðjuna. Nú er stórgróði af rekstri hennar og rennur hann m. a. í vasa Hagalíns. Hefði bæjarsjóði veitt af þessum gróða? Þetta eru nii j afnaðarmenn, sem segja sexl

x

Baldur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.