Baldur


Baldur - 06.02.1946, Blaðsíða 1

Baldur - 06.02.1946, Blaðsíða 1
Bæjarfulltrúar vinna saman sósíalista og sjálfstæðismanna semja um að að brýnustu framfaramálum bæjarfélagsins. Fulltrúar Alþýðuflokksins vildu ekki vera með Aðdragandi málefnasamn- ings þess, sem gerður liefur verið á milli bæjarfulltrúa Sósíalistaflokksins og S j álf- stæðisflokksins er í stuttu máli þessi: 1 bæjarmálastefnuskrá sósí- alista, sem borin var inn á bvert heimili bér á Isafirði bálfum mánuði fyrir kosning- ar, var því lýst yfir, að flokkur^ inn væri fús til samstarfs við hverjar þær félagsheildir og livern þann einstakling, sem af heilum liug vildi vinna að framgangi stefnuskrárinnar, — sem eingöngu fjallaði um nauðsgnlegar framkvæmdir í bænum. Orði'étt stendur svo í stefnuskránni: „Sósíalistafélag Isafjarðar lcggur liérmeð fram bæjar- málastefnuskrá sína fyrir næsta kjörtímabil og lýsir því jafnframt yfir, að ísfirzkir sósíalistar eru fúsir til sam- starfs við hver þau félagssam- tök og einstaklinga, sem af heilum hug vilja vinna að framgangi hennar“. 1 framsöguræðu þeirri, sem Haukur Helgason flutti fyrir hönd sósíalista á fyrri borgara- fundinum svo og margoft í um- ræðunum á 1 báðum borgara- fundunum var þessi yfirlýs- ing endurtekin. Höfuðástæðan fyrir þessari mikilvægu yfirlýsingu sósial- ista var hið hörmulega ástand í atvinnumálum, húsnæðismál- um, vatnsveitumálum, hafnar- málum o. s. frv., sem ríkti hér í bænum eftir 24 ára stjórn kratanna einna á bæjarfélag- inu, og sem bezt kom fram í skýrslum bæjarstjórans fyr- verandi, Alþýðuflokksmanns- ins Jóns Guðjónssonar. Töldu og telja sósíalistar að hið eina, sem hægt væri að gera til að ráða bót á þessu ástandi væri að skapa jafnvægi í stjórn bæj- armálanna — og æskilegast væri, að allir þrír flokkar tækju böndum saman. Væri slíkt mjög eðlilegt með tilliti til þeirrar samvinnu, sem ætti sér stað um stjórn landsins. Eins og kunnugt er fóru kosningarnar á þann veg, að kratar misstu meiriblutaað- stöðu sína, fengu 4 menn kjörna, sjálfstæðismenn 4 menn og sósíalistar einn mann kjörinn. Þurfti því samsteypu tveggja eða þriggja flokka til að gera bæjarstjórnina starf- hæfa. Síðari hluta mánudags- ins, 28. janúar s. 1. sneri þvi Sigurður Bjarnason, efsti mað- ur á lista sjálfstæðismanna, sér til Haraldar Guðmundssonar og Hauks Helgasonar og óskaði að umræður yrðu uppteknar og vísaði jafnframt til yfirlýsing- ar sósíalista, sem að ol'an er getið. — Bráðabirgðaviðræður hófust að kvöldi sama dags og var þcim baldið áfram frá morgni næsta dags, þriðjudags- ins, en bæjarstjórnarfundur hafði verið boðaður miðviku- daginn, 30. jan. s. 1. Sigurður Bjarnason og Baldur Jobnsen mættu af bálfu sjálfstæðis- manna en þeir Haraldur Guð- mundsson og Haukur Helgason af hálfu sósíalista. Á þriðjudagskvöldið hafði verið samið um drög að mál- efnasamningi, sem er birtur hér á eftir, og var í öllum meg- inatriðum byggt á bæjarmála- stefnuskrám flokkanna. Málefnasamningur. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins og bæjarfulltrúi Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins — lýsa því yfir, að þeir hafa komið sér saman um svofelldan málefna- samning fyrir í hönd farandi kjörtímabil: Atvinnumál. 1 atvinnumálum telja flokk- arnir það meginviðfangsefnið að auka fjölbreytni framleiðsl- unnar og koma þar með í veg fyrir að atvinnuleysi skapist. Unnið verði að eftirtöldum framkvæmdum: 1. Bærinn stofni til togaraút- gerðar á hlutafélagsgrundvelli, og eigi hann méirihlutann af hlutafénu, en atvinnufyrir- tækjum og einstaklingum í bænum sé gcfinn kostur á þátt- töku í fyrirtækinu. 2. Hraðað verði sem mest undirbúningi og framkvæmd- um fyrirhugaðs fiskiðj uvers. Otgerðarfyrirtækjum og ein- staklingum í bænum sé gefinn kostur á þátttöku i stofnun þess. Að öðru leyti verði að þvi stefnt að efla sem mest, beint eða óbeint, útgerð vélbáta í bænum. Hafnarmál. Framkvæmdar verði svo fljótt, sem verða má aðkallandi endurbætur og nýbyggingar hafnarmannvirkj a, svo sem stækkun uppfyllingarinnar við Bátahöfnina, dýpkun hennar og innsiglingarinnar um Sund- in. Allar framkvæmdir í hafnar- málum séu miðaðar við það að skapa útgerðinni í bænum, og siglingum til hans, sem bezta. aðstöðu. Húsnæðismál. Nú í vetur verði safnað ná- kvæmum skýrslum og yfirlit fengið um ástand i húsnæðis- málum bæjarbúa. — Fram- kvæmdir í þeim málum verði fyrst og fremst byggðar á vænt-' anlegri löggjöf frá Alþingi, samkvæmt frumvárpi þvi um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum, sem nú liggur fyrir Alþingi. Bærinn greiði sem mest má verða fyrir einstaklingum, sem ráðast vilja í ibúðarbygg- ingar, t. d. með fyrirgreiðslu um innlent byggingarefni. Reynist ekld mögulegt á þeim grundvelli, sem að ofan er nefndur, að bæta úr liúsnæð- isskortinum í bænum, ráðist bærinn í byggingu íbúðarhúsa, eftir þvi sem fjárhagur hans leyfir. Verði þær íbúðir seldar einstaklingum með kostnaðar- verði, eða leigðar. Heilbiigðismál. Sett verði á stofn heilsu- verndarstöð með samvinnu Sjúkrasamlags, bæjar og rík- is, sem hafi það höfuðverkefni að koma í veg fyrir sjúkdóma og annast eftirlit með heilsu- fari á víðtækari grundvelli, en hingað til hefur verið. Iþrótta- og skóiamál. Lokið verði við skólabygg- ingar þær, sem nú eru í smíð- um. Sundhöllin og íþróttahús- ið verði starfrækt í náinni sam- vinnu við íþróttafélög, skóla og samtök sjómanna með það fyr- ir augum að þessar menningar- stofnanir komi að sem fyllst- um notum fyrir almenning í bænum. Að öðru leyti verði unnið að því að bæta húsakost barna- skólans og iðnskólans, og und- irbúa stofnun sjómannaskóla í samráði við sj ómannasamtök- in. Rekstur bæjarfélagsins. Hafist verði handa um mal- bikun eða steypu nokkurra að- algatna bæjarins. I sambandi við gatnagerðina verði hafnar endurbætur á vatnsveitukerf- inu, og jafnframt unnið að þvi að tryggja bæjarbúum nægi- legt vatn. Flugvélabraut og flugskýli verði byggt á komandi sumri og þar með sköpuð bætt að- staða til flugsamgangna við bæinn. I raforkumálum vei’ði stefnt að virkjun Dynjanda hið allra fyrsta. — Nónvatnsvirk j uninni verði lokið og sérfróðrar að- stoðar leitað um hvernig hún bezt geti komið að gagni. Það sem talið hefur verið hér að framan, verði fram- kvæmt eftir því, sem fjárhag- ur bæjarins frekast leyfii'. Stjórn bæjarins. Kosin verði 3ja manna nefnd, einn af hverjum flokki, til þess að rannsaka og gera tillögur um hagkvæmari og ó- dýrari rekstur bæjarstofnana. Ráðinn verði bæjarstjóri með verkfræðilega þekkingu, ef kostur er á. Þetta er sá málefnasamn- ingur, sem Alþýðuflokknum var boðið að gerast aðili að. En þetta er niðurlag þess samnings, sem síðar var endan- lega gerður milli Sjálfstæðis- flokksins og Sósíalistaflokks- ins. Starfaskipting. Forseti og fyrri varaforseti bæjarstjórnar séu kosnir úr hópi sjálfstæðismanna, en 2. varaforseti sé fulltrúi Sósíal- istaflokksins. Flokkarnir kjósi saman í all- ar nefndir bæjarstjórnar og aðrar þær nefndir, er bæjar- stjórn kýs. Sósíalistaflolckurinn hafi fulltrúa í öllum þenn nefnd- um, er hann óskar. Bæjarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins og bæjarfulltrúi Sameiningar- flokks alþýðu — Sósíalista-

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.