Baldur


Baldur - 01.03.1946, Síða 1

Baldur - 01.03.1946, Síða 1
MIKILSVERÐ AÐSTOÐ RÍKISINS í TOGARAKAUPAMÁLINU. Dwight D. Eisenhower. Áki Jakobsson atvinnumálaráðherra heldur fund um togarakaupamálið með bæjarfulltrúum og þingmönnum í kaupstöðum utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar og flytur tillögu til þingsáíyktunar um að ríkið ábyrgist gegn öðrum veðrétti lán fyrir 1/6 af kaupverði þeirra togara, sem keyptir verða af bæjarfélögum öðrum en Reykjavík og Hafnarfirði. Verður þessi aðstoð ríkisins vafalaust til þess að mörgum bæjarfélögum, sem að öðr- um kosti hefðu ekki getað eignast togara, verður það nú mögulegt. Bæjarfulltrúar og alþingismenn, sent sátu fundinn, voru sammála um nauðsyn þess að tillaga atvinnumála- ráðherra verði samþykkt. Það er«áhugamál okkar Is- firðinga að hingað komi togar- ar, og verði þessi þingsálykt- unartillaga samþykkt má telja alveg víst að það takist, svo framarlega sem við við erum sjálfir samtaka í málinu og þeir, sem möguleika hafa til þess, vilja eitthvað á sig leggja. ------0----- Þegar innrásinni í Evrópu var frestað. „Svartasti dagur í sögunni“ að áliti Eisenhowers. Síðastliðinn sunnudag hélt Áki Jakobsson, atvinnumála- ráðherra fund með bæjarfull- trúum í ’kaupstöðum utan Reykj avíkur og Hafnarfj arð- ar, sem þá voru staddir i Reykjavik, ásamt þingmönn- um viðkomandi lcjördæma. Tilefni fundarins var að ræða möguleika fyrir því, að þessi bæjarfélög gætu eignast einhverja af þeim togurum, sem keyptir verða hingað til lands frá Bretlandi. Héðan frá Isafirði mættu á fundinum Haukur Helgason varabæj arfulltrúi Sósialista- flokksins, Sigurður Bjarnason forseti bæjarstjórnar Isafjarð- ar og þingmaður kjördæmis- ins, Finnur Jónsson. I umræðum, sem urðu á fundinum, kom það í Ijós, að þau bæjarfélög, sem þarna áttu fulltrúa, hafa mikinn hug á að eignast einn eða fleiri af þeim togurum, sem keyptir verða frá Bretlandi og hafa sótt um kaup á þeim. Hinsveg- ar er fjárhagur flestra þeirra þannig, að þau geta ekki keypt þá af eigin ramleik, jafnvel þótt frumvarp Nýbyggingar- ráðs um að Fiskveiðasjóður láni % kaupverðsins verði samþyldct. Atvinnumálaráðherra skýrði fundarmönnum frá því, að hann mundi flytja á Alþingi þingsályktunartillögu þess efn- is, að bæjarfélög utan Reykja- víkur og Hafnarfjarðar fengjú ríkisábyrgð fyrir 1/6 af kaup- ^'erði hvers togara gegn öðrum veðrétti í skipunum. Sé gert ráð fyrir að Fiskveiðasjóður láni % kaupverðsins, verður útkoman sú, ef þingsályktun- artillaga atvinmimálaráðherra verður samþykkt, að bæjarfé- lögum verður gert mögulegt að eignast togara með því að leggja fram ca. 250 þúsundir króna af kaupverði skipsins. I greinargerð með þessari þingsályktunartillögu er sýnt fram á nauðsyn þess, að bæj- arfélögum víðsvegar um land- ið verði gert kleyft að eignast hina nýju togara og þessum fljótvirku og arðsömu fram- leiðslutækjum þannig dreift sem víðast, en ekki öll keypt til Reykjavíkur og Hafnar- f j arðar. Á þann hátt væri lagður grundvöllur að heilbrigðu og traustu atvinnulífi í þessum hæjarfélögum og þar með sköpuð skilyrði til fólksfjölg- unar þar, í stað fólksfækkunar eins og nú er. En til þess að þetta megi takast, er á það hent, að fátæk bæjarfélög geti ekki hjálpar- laust lagt fram 700 þús. króna eða meira til kaupa á einum togara og verði rikið því að hlaupa undir bagga, eins og gert er ráð fyrir í þingsálykt- unartillögunni. Verði þessi þingsályktunar- tillaga Áka Jakobssonar, at- vinnumálaráðherra, samþykkt, sem telja má víst, er enginn efi á því, að möguleikar fyrir okkur Isfirðinga og aðra., sem við svipaðar fjárhagsástæður húa, til að eignast einn eða fleiri togara, verða miklu meiri en þeir hafa verið hing- að til. Það er þessvegna áreiðanlegt að þessar aðgerðir ríkisins i togarakaupamálinu, sem hér eru ráðgerðar að tilhlutan at- vinnumálaráðherra, hljóta að vekja almenna ánægju hæði hér á Isafirði og annarstaðar á landinu. Stjórnmálafréttaritari Lund- unabladsins Daily Worker hef- ur nýlega skýrt frá þuí að Eisenhower hershöfðingi hafði litið svo á að vel gæti svo far- ið, að 22. júlí V.)hc2 yrði nefndur „svartasti dagur í sögunni“. Það var þennan dag, sem brezka samsteypustjórnin neit- aði endanlega beiðni Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna um að gera innrás í meginland Evrópu á því ári. Blaðið Sunday Express hirti 3. febr. útdrátt úr dagbók Harry Butcher kapteins, sem var ráðunautur Eisenhowers hershöfðingj a um flotamál og mjög náinn samstarfsmaður hans. I þessum dagbókarút- drætti er ófögur lýsing á and- stöðu brezku stj órnarinnar gegn innrásarfyrir-ætlunum Bandaríkj astj órnar. — Meðal annars er þar sagt að breska. stjórnin hafi jafnvel beitt sér gegn smávægilegri árás á frönsku ströndina, sem átti að gera til þess að rugla Þjóð- verja, og að hún hafi verið í óðaönn að gera áætlanir um að flytjá stj órnarsétrið frá London til Kanada. Ennfremur er þar staðfest, að ekki aðeins æðstu herforingjar Bandaríkjanna (og þá auðvit- að Sovétríkjanna) hafi verið fylgjandi innrás um þetta leyti, heldur einnig herforingjar Breta. Tuttugasta og annan júní skrifar Butcher í dagbók sína, að samkomulag um innrás eða árás á frönsku ströndina muni nást þann dag. Daginn eftir frétti hann við morgunverðinn, „að Bretar hafi algerlega hafn- að uppástungu um að gera inn- rás þetta ár“. Þá var það, sem Eisenhower lét í ljós álit sitt um „svartasta dag sögunnar“. Hér var það stefna Churchills og Bevins, sem varð ofan á. Sérstaklega hafði Bevin verið mótfallinn því að Bretland eyddi herafla sínum til slíkra hernaðaraðgerða. ------0------ Dagsbrúnarverkfallið. Þann 22. febrúar hófst í Reykjavík verkfall í almennri verkamanna vinnu, þar sem ekki höfðu þá náðst samning- ar um kröfur verkamannafé- lagsins Dagsbrún. I Hafnarfirði hafði einnig verið boðað verkfall þennan sama dag, en sapiningar tók- ust áður en til þess kom. Fengu Hafnfirzkir verkamenn ca. 8% grunnkaupshækkun eða 15 aura hækkun á klst. í almennri dagvinnu og nokkra hækkun á öðrum liðum. Aðalkröfur Dagsbrúnar eru þessar: Grunnkaup í almennri dag- vinnu hækki úr kr. 2,45 í kr. 2,75. Vinna sem greidd hefur verið með kr. 2,75 á klst. hækki i kr. 2,90. Þungavinnutaxti hækki í kr. 3,20 (kol, salt, sement). Mánaðarkaup verka- manna og pakkhúsmanna verði kr. 535,00 og bifreiða- stjóra kr. 560,00 grunnlaun. öll yfirvinna verði greidd með 100% álagi, þ. e. að eftir- vinnutaxti, sem verið hefur, verði afnuminn. Félagið leggur áherzlu á að verkamenn verði ráðnir fyrir mánaðarkaup. Samningaumleitanir fara stöðugt fram milli deiluaðila, en samningar hafa enn ekki tekist.

x

Baldur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.