Baldur - 24.05.1946, Page 1
UTGEFANDI: SÖSIALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR
XII. ÁRG.
Æskulýðsfylking
— félag ungra sósíalista —
stofnað hér á Isafirði.
— Hvað segir þú mér af
þingstörfunum ?
— Þar er af miklu að taka.
En óhætt er að fullyrða, að
þessa kjörtímabils verður
minnzt sem hins merkasta í
sögu landsins.
Er þá fyrst að minnast stofn-
unar lýðveldisins og live giftu-
samlega hún tókst, þrátt fyrir
óheppilega andstöðu jTnissa ó-
happamanna. Þessi andstaða
var sem betur fer kveðin niður
af þjóðinni á svo eftirminni-
legan óg glæsilegan hátt að
einsdæmi eru í veraldarsög-
unni. Þjóðin sýndi það í júni
1944, að þegar sjálfstæði Is-
lands er í veði, þá stendur hún
einhuga saman.
Engu minna er þó um vert
það, sem síðar hefur skeð, eft-
ir myndun núverandi ríkis-
stjórnar, á sviði nýsköpunar-
innar.
Eins og þú manst var útlitið
ekki glæsilegt í atvinnumálum
þjóðarinnar 1944. Þá fór með
völdin utanþingsstjóm, sem sá
engin úrræði önnur en lækkun
kaups til atvinnustéttanna. Sú
stjórn vildi enga aukningu at-
vinnutækjanna í landinu og sá
ekkert frariiundan annað en
hrun og kreppu. Þegar við só-
síalistar hótuðum að flytja
vantraust á hana, þá lagði hún
fram dýrtiðarfrumvarp sitt,
en í því var gert ráð fyrir alls-
herjar launalækkun og lækk-
un á afurðaverði.
— Hvernig stóð á því að
ekkert varð úr myndun svo-
nefndrar vinstri-stj órnar, sem
mikið var rætt um eftir síð-
ustu alþingiskosningar?
— Já, það er rétt, að um
slika stj órnarsamvinnu var
iflikið rætt á sínum tima. Eft-
ir síðustu kosningar fóru fram
samningar milli Framsóknar,
Alþýðuflokksins og okkar sósí-
alista um myndun stjórnar, en
úr því varð ekkert. Eftir
margra mánaða samningaum-
leitana slitum við sósíalistar
þeim samningum, eftir að
Framsókn hafði sett það fram
sem skilyrði sitt fyrir stjórnar-
þátttöku, að allsherjar kaup-
lækkun yrði framkvæmd. Að
því skilyrði gátum við sósial-
istar auðvitað ekki gengið.
Alþýðuflokkurinn tjáði sig
aftur á móti reiðubúinn til
stjórnarsamuinnu þrátt fyrir
þetta sldlyrði.
Eins og þú manst var olckur
sósíalistum mjög legið á hálsi
fyrir þessi samnirigsslit, bæði
í blöðum Framsóknar og Al-
þjrðuflokksins. Við vissum auð-
vitað hvaða áhættu þetta hafði
í för með sér fyrir okkur, en
við hikuðum þó ekki. Okkur
var ekki unnt að bregðast svo
umbj óðendum okkar, að ganga
að slíkum skilyrðum.
Og svo /fengum við utan-
þingsstjórnina, sem sat þangað
til 21. okt. 1944, að núverandi
stjórn var mynduð.
— Hverjir áttu frumkvæðið
að núverandi stj órnannynd-
un?
— Það vorum við sósíalistar,
og er þáttur Einars Olgeirsson-
ar þar mestur. Þjóðinni hafði
fram að þessum tíma safnast
óhemju fé erlendis. Lá þá
beint við að nota þetta fé þarin-
ig að það kæmi þjóðarheild-
inni að sem mestum notum, að
það yrði ekki notað sem
eyðslueyrir, eða látið liggja ó-
notað. Kom Einar fram með
þá hugmynd, að þessar inn-
stæður okkar erlendis skyldu
eingöngu notaðar til kaupa á
nýj um framleiðslutækj um, svo
að þjóðin sæi fram á bættan
hag í stað þess hruns, sem aft-
urhaldið hafði boðað.
Sýndi Einar fram á það í
ræðu og riti, að þessi hug-
mynd hans væri framkvæman-
leg og meira en það, að hér
væri um það eina rétta að
ræða, sem gera skyldi.
— Hvernig var þessari hug-
mynd Einars tekið?
— Henni var tekið illa í
fyrstu.
Sjálfstæðisblaðið Vísir taldi
það glæp, að hugsa til þess að
kaupa framleiðslutæki áður en
kaup lækkaði.
Framsóknarblöðin tóku í
sama streng, og Jón Arnason,
sem nú er bankastj óri'Lands-
bankans, lagði til að féð skyldi
ávaxtað með því að lána það
út erlendis.
— Hvernig tók Alþýðuflokk-
urinn hugmyndinni?
— Alþýðublaðið taldi það
synd, ef blöðin létu ræðu Ein-
ars Olgeirssonar fara svo fram
hjá, að hennar væri ekki
minnst. Hún ætti það sannar-
lega skilið að geymast til minn-
ingar um „hlægilegasta. skýja-
glópinn og tungum j úkasta
hræsnarann“, sem sæti hefði
átt á Alþingi. — Já, svo mörg
voru þau orð Alþýðublaðsins
og að visu miklu fleiri.
En þrátt fyrir þessar illu
undirtektir tókst okkur sósíal-
istum þó að sannfæra forráða-
menn Sjálfstæðisflokksins um
réthnæti þessarar hugmyndar,
sem svo varð grundvöllur und-
ir stefnu ríkisstj órnarinnár.
Alþýðuflokkurinn varð einn-
ig aðili að stjórninni en ekki
ætlaði það að ganga harm-
kvælalaust. — Hann reyndi
það, sem hann gat, til þess
að koma í veg fyrir mynd-
un stjórnarinnar. Og áhuginn
var ekki meiri en það, að af
tuttugu og fimm miðstjórnar-
mönnum flokksins greiddu
einir ellefu atkvæði með þátt-
töku flokksins í stjórninni, tíu
greiddu atkvæði á móti og
fjórir sátu hjá. Enda hefur
allur blaðakostur flokksins
Framh. á 4. síðu.
ísafjörður, 24. maí 1946
14. tölublað.
Miðvikudaginn 22. þ. m. var
stofnuð hér á Isafirði Æsku-
lýðsfylking — félag ungra sósí-
alista. Stofnendur voru 18.
Á fundinum fór fram kosn-
ing stjórnar, en hana skipa:
Formaður: Guðm. M. Guð-
mundsson.
Varaformaður: Ásgeir Ingv-
arsson.
Meðstjórnendur: Þorgerður
Sigurgeirsdóttir, Guðmundur
Gunnlaugsson og Rafn Gests-
son.
Til vara: Helga Helgadóttir
og Margrét Guðmundsdóttir.
Er ánægjulegt til þess að
vita, að nú skuli hafa verið
hafizt handa um stofnun félags
ungra sósíalista. Enda þótt
hópurinn sé ekki fjölmennur í
byrjun, þá mun það sýna sig,
að þetta er vísirinn að öflug-
um samtökum ísfirzkrar æsku,
sem munif ótrauð vinna að
hagsmunum og stefnumálum
sósíalista.
„Kosningasigri Sósíalistaflokksins 1942 er það
að þakka að ástandið hér á landi er eins
gott og raun ber vitni um“.
Viðtal við Signrð Thoroddsen, alþingismann.
Sigurður Thoroddsen, alþingismaður er ^addur hér
í bænum þessa dagana. Baldur hefur átt stutt viðtal við
hann um það helzta er gerzt hefur í íslenzkum stjórn-
málum, síðasta kjörtímabilið, og þá sérstaklega um stjórn- -
arsamstarfið og þær miklu framkvæmdir, sem nú eru á
dagskrá.
Sjálfstæðisflokkur-
inn klofinn.
Vísis-lið Sjálfstæðisflokksins
hefur nú látið verða af þeirri
hótun sinni að kljúfa Sjálf-
stæðisflokkinn og stofna nýtt
stjórnmálafélag „Félag óháðra
Sjálfstæðismanna“, í Reykja-
vík. Er talið víst að þetta félag
muni koma fram með sérstak-
an lista við Alþingiskosning-
arnar í sumar og verður Björn
Ólafsson heildsali efsti maður.
Það er þá orðin staðreynd,
að bæði Sj álfstæðisflokkurinn
og Framsóknarfl. ganga
klofnir til kosninga í sumar og
samkomulagið innan Alþýðu-
flokksins hangir á bláþræði,
þar sem vitað er að harðar
deilur standa nú innan flokks-
ins um framboð í Reykjavík,
og óvíst hvernig þeim likur.
Landsmálafund heldur Sig-
urður S. Thoroddsen, fram-
bjóðandi Sósíalistaflokksins
á Isafirði, í Templarahúsinu
ld. 8/2 í kvöld. Umræður að
framsöguræðu lokinni.