Baldur


Baldur - 08.06.1946, Side 1

Baldur - 08.06.1946, Side 1
UTGEFANDI: SÖSIALISTAFÉLAG ISAF JARÐAR XII. ÁRG. ísafjörður, 8. júní 1946 16. töiublað. Hræðilegasti húsbruni sem orðið heíir á Isafirði. Fimm manns, hjón, unglingspiltur og tvö börn brenna inni. Húsið Fell, eign Finnbjörns Finnbjörnssonar, málara- meistara, brann til kaldra ltola á hér ub bil einni klukku- stund, og ennfremur brann allt, sem brunnið gat, svo að ekki standa nema sviðnir steinveggirnir í húsunum Hafn- arstræti 4, eign Þórðar Jóhannssonar úrsmiðs, og Hafnar- stræti 6, eign Einars Guðmundssonar og Kristjáns Tryggvasonar, klæðskerameistara. Fimm manns brunnu inni, einn iiiaður fótbrotnaði og öðru fólld, sem bjó á Felli, tókst með naumindum að bjarga út um glugga hússins, en allar eigur þess, smáar og stórar, brunnu inni. I húsunum Hafnarstræti 4 og 6 tókst aðeins að bjarga litlu einu af varningi, sem var í verzlunum á neðstu hæð húsanna, og húsmunum þeirra, er þar bjuggu, en meiri- partur af því, sem þar var inni, varð eldinum að bráð, og það, sem bjargaðist, var meira og rninna eyðilagt. Þá urðu ennfremur talsverðar skemmdir af eldi og vatni á húsinu Hafnarstræti 8, eign Elíasar Kærnested, skósmíðameistara, og gluggar sprungu í bókaverzlun Jón- asar Tómassonar í Hafnarstræti 2. Eignatjón af völdum þessa hræðilega bruna er talið að nemi minnst 2—3 milj. króna, og eftir hann eru 10 fjöl- skyldur og 7 einhleypir menn, eða samtals 56 manns húsnæðislausir. * Aðfaranótt mánudagsins 3. júní, klukkan liðlega 5 varð þess vart, að eldur var laus í liúsinu Fell við Hafnarstræti hér í bænum. Slökkviliðið var þegár kallað á vettvang, en áð- ur en það gat við nokkuð ráð- ið var Fell orðið alelda og eld- urinn kominn í sambygging- uiia andspænis þvi við götuna. Brann þar allt, sem brunnið gat, laust og fast, í tveimur búsum, nema eitthvað lítið af varningi og innanstokksmun- um, sem tókst að ná út á síð- ustu stundu. Þriðja húsi í sam- byggingunni tókst með naum- indum að verja og ennfremur liús Ágústajr Leóssonar og hús Elíasar Pálssonar, sem standa ofan og neðanverðu við Fell, sömu megin við götuna, en þessi bús skemmdust nokkuð af eldi og vatni. Eldurinn var svo magnaður í Felli, að talið er að húsið hafi verið orðið alelda á stundar- fjórðungi og á hérumbil einni klukkustund var það brunnið til kaldra kola. Eins og fyrr er sagt, brunnu fimm manns inni, og voru það þessir: / Hjónin Sigurvin Veturliða- son, sjómaður, 29 ára, og kona bans, Guðrún Árnadóttir, 25 ára. Þau hjónin voru nýkom- in heim af skemmtun sjó- mannadagsins, en tveimur liörnum, sem þau áttu, hafði verið komið fvrir annarsstað- ar. Hennann A. Bjarnason, verzlunarmaður, 17 ára, Sig- ríðiir B. Bjarnadóttir, 4 ára, og Bjarney Sveinsdóttir, 9 ára. Var sú síðastnefnda aðkom- andi í húsinu. öðru fólki, sem bjó á Felli, varð með naumindum bjargað á nærklæðunum einum. Einn maður, Jóhann M. Guð- mundssan, vélstjóri, fótbrotn- aði um leið og hann stökk út úr eldimun. Þórólfur Egilsson, • rafvirki, sem bjó á miðhæð- inni, stöklc út um gluggann á herbergi sínu á staur, sem stóð . þa r fyrir framan, og tókst á þann liátt að komast niður. Þá fótbrotnaði einn maður, Matthías Sveinsson, kaupmað- ur, er hann var að vinna að hj örgunarstarfi. Fleiri meidd- ust ekki verulega, en átakan- legt var að heyra angislai'vein þeirra, er vissu ástvini sína brenna þarna inni, og munu þeir seint ná sér eftir þennan hræðilega atburð. Á Felli bjuggu eftirtaldar fjölskyldur og einstaklingar, sem hjörguðust úr brunanum: Arne Sörensen úrsmiður, kona hans Sigríður Árnadóttir og 4 börn þeirra. Ásgeir Sigurðsson verkamað- ur, kona hans Anna Her- mannsdóttir og 1 barn þeirra. Aðalsteinn Sigurðsson verka- maður, kona hans Marta Markúsdóttir og 4 börn þeirra. Sigurlaugur Sigurlaugsson sjómaður, kona hans Karitas Rósinkarsdóttir og 5 börn þeirra. Hermann Jóhannsson sjó- maður, kona hans Aðalfríður Friðriksdóttir. — Fósturhörn þeirra tvö, sem bjuggu hjá þeim, brunnu hæði inni eins og fyrr er sagt. Kristján Kristjánsson verka- maður, móðir hans Elísabet Hermannsdóttir og systir Sig- ríður Kristj ánsdóttir. Ennfremur bjuggu þar þess- ir einstaklingar: Jón Stefánsson verkamaður, Jóhann M. Guðmundsson vél- stjóri, Þórólfur Egilsson raf- virki, Þorgerður Gestsdóttir saumakona og systkinin Þór- unn Benjamínsdóttir og Birgir Benjamínsson, en þau voru hvorugt heima. Dvelur hún nú í Noregi, en hann er á ferð með nemendum Gagnfræða- skóla,ns. I Hafnarstræti 4 hjuggu þessar fjölskyldur: Þórður Jóhannsson úrsmið- ur, kona hans Kristín Magnús- dóttir og 6 börn þeirra. Sóley Þorsteinsdóltir, ekkja, móðir hennar Þorlaug Bene- diktsdóttir og 4 börn. I Hafnarstræti 6 bjuggu þessar fjölskyldur: Kristján Trvggvasön, klæð- skeri kona hans Margrét Finn- bjarnardóttir og tvær dætur þeirra. Einar Guðmundsson klæð- skeri, Þuriðpr Vigfúsdóttir kona hans og tvær dætur þeirra. Jónína Jónsdóttir, Guðhjörg Halldórsdóttir og Arndís Þor- valdsdóttir. Það eru því samtals 10 l jöl- skyldur alls 49 manns og 8 einstaklingar sem eru húsnæð- islausir eftir þennan hræði- lega eldsvoða. Auk þess brunnu þarna eftirtaldar verzlanir og verk- stæði. I Felli verzlun Ágústs Leós- sonar, málningarverzlun Finn- björns Finnbjörnssonar og rafvirkj averkstæði Júlíusar Helgasonar. I Hafnarstræti 4 Verzlun Böðvars Sveinhjarnarsonar, úrsmíðaverkstæði og verzlun Þórðar Jóhannssonar og Hár- greiðslustofa Elínar Magnús- dóttur. 'I Hafnarstræti 6 klæðskera- verkstæði og verzlun Einars Guðmundssonar og Kristjáns Tryggvasonar og húsgagna- vinnustofa Jóns Kristjánssonar bólstrara. Um upptök eldsins hefur ekkert komið í ljós annað en það, að telja má víst að fyrst hafi kviknað í forstofunni á miðhæð hússins og eldurinn lireiðst þaðan út með svo skjótri svipan, að það er með öllu óskiljanlegt. Fólkið, sem lijargaðist, komst allt út um glugga, og munaði svo mjóu að eldtungurnar stóðu út um gluggana um leið og það var sloppið út. Tilraun var gerð til að komast inn um glugga á efstu hæð, til ])ess að bjarga því fólki, sem bránn inni, en herbergin voru eitt eldhaf og útilokað að komast inn, nema að kosta til fleiri mannslífum. Sem dæmi þess, hve eldur- inn hefur brotist út um lnisið á skömmum tíma, má geta þess, að kl. liðlega 5 gengu þeir lögregluþjónarnir Jón A. Jóhannsson og Halldór Jón- Framhald á 3. siðu.

x

Baldur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.