Baldur - 25.06.1946, Page 1
UTGEFANDI: SÖSIALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR
XII. ÁRG.
ísafjörður, 25. júni 1946
19. tölublað.
Sjómenn eru miklu meira afl
i íslenzku þjóðliíi en þeir gera
sér ljóst. •
Niðurlag ræðu Áka Jakobssonar, atvinnumálaráðherra í
lióí'i sjómannadagsins að Hótel Borg.
Það er að bera í bakkafull-
an lækinn að hrósa sjómönn-
um okkar fyrir starf sitt, enda
munu þeir ekkert kæra sig um
slíkt. Hitt er nauðsynlegra fyr-
ir þjóðina, að hver einstakling-
ur geri sér ljóst, að þjóðin á
mikið undir starfi sjómann-
anna. Um 90% af gjaldeyri
þjóðarinnar er aflað fyrir
sj ávarafurðir. Það þýðir, að
9/10 hlutar af öllum þeim
margvislegu vörum, þörfum og
óþörfum, sem fluttar eru til
landsins, eru keyptar fyrir
verðmæti, sem fiskimennirnir
hafa flutt á land. Það er holt
fyrir hvern einstakling að
minnast þess ætíð, er hann
gengur í búð og kaupir nauð-
synjar sínar eða kaupir sér
eitthvað annað sér og sínum til
stundar gamans, að það er
fiskimaðurinn, sem stritar, oft
og tíðum slorugur og lúinn úti
á fiskimiðum Islands og far-
maður, sem siglir um úthöfin
i misjöfnu veðri, sem gerðu
honum kleift að kaupa þessar
vörur í búðinni. Það er líka
holt fyrir verkamenn og iðn-
aðarmenn í landi, að minnast
þess í hvert sinn, er þeir ganga
til vinnu sinnar, að áhöldin,
sem þeir vinna með og efnið,
sem þeir vinna úr, er keypt
fyrir verðmæti, sem sjómaður-
inn hefur aflað þjóðinni. Menn
viðurkenna þetta að vísu al-
Framhald á 4. síðu.
Þjódin krefst svars.
Á framboðsfundinum 19. þ. m. spurði Sigurður Thoroddsen þá
Finn Jónsson og Kjartan Jóhannsson um þeirra eigin afstöðu og
flokka þeirra til þess, að önnur ríki fái hernaðarbækistöðvaf hér
á landi til lengri eða skemmri tíma og til dvalar ameríska hersins
á Islandi.
Hvorugur þeirra gaf skýr svör. Finnur Jónsson vitnaði í álykt-
un Alþýðuflokksins um utanríkismál, sem ekki var birt fyr en 14.
þ. m. þegar flokkurinn sá sér ekki annað fært, vegna þeirrar al-
mennu mótmæla-öldu, sein risin var gegn öllum landsöluagent-
ura innan Alþýðuflokksins og annar staðar.
En þessi ályktun kemur ekki að eins seint fram, heldur er
hún loðin og þar er alls ekki minnst á afstöðu flokksins til dval-
ar setuliðsins hér á landi.
Kjartan Jóhannsson svaraði, að lán eða leiga hernaðarbæki-
stöðv hér á landi kæmi ekki til mála Á FRIÐARTlMUM.
Loðið svar og blekkjandi, þar sem gefið er til kynna, að til
mála geti komið að bjóða hér bækistöðvar á ófriðartíma, eða
semja fyrir fram við erlend ríki um afnot herstöðva hér á landi.
Við öðru var heldur ekki að búast af manni, sem hefur verið
fengið það auma hlutskipti að vera atkvæðabeita, til þess að koma
landsölumanninum Birni Ólafssyni, heildsala, inn á Alþingi Is-
lendinga.
Isfirðingar! Þið látið þessum frambjóðendum ekki líðast slík
undanbrögð. Þið og öll íslenzka þjóðin, krefjist skýlausra svara.
Þið vitið, að þessir menn eru studdir til framboðs af flokkum,
sem báðir eru klofnir í þessu stórmáli og eiga innan sinna vé-
banda landsölumenn.
Þið vitið líka, að Sósíalistaflokkurinn hefur einn allra flokka
tekið ákveðna og einl\uga afstöðu gegn afsali landsréttinda.
Hvert atkvæði, sem fellur á Finn eða Ivjartan eykur þá liættu,
að íslenzkt land verði afhent erlendu ríki.
Hvert atkvæði, sem Sigurður Thoroddsen fær, tryggir Islend-
ingum yfirráð í landi þeirra um alla framtíð.
X Sigurður Thoroddsen.
Isfirðingar kjósa Sigurð Thoroddsen.
Góðu heilli urðu sósialistar
svo sterkir hér á Isafirði í
kosningunum 1942, að Sigurð-
ur Thoroddsen varð landkjör-
inn þingmaður. — Alþýðan
mun eignast þar ágætan
fulltrúa, sem reynslan hefur
sýnt, að aldrei skerst úr leik
i hagsmunabaráttu hennar eða
þegar um er að ræða velferða-
mál þessa héraðs.
Hann hefir aldrei og mun
aldrei verða til sölu, fyrir livað
sem i boði er, hvorki embætti
né fríðindi, þetta megum'við
öll vita og því getum við treyst.
Ötrauður fylgir hann fram
stefnu sósíalismans og er ófá-
anlegur til að beygja af og
víkja úr vegi fyrir íhaldi og
auðvaldi, heldur gerir hann
kröfur til þess. að við alþýðu-
fólkið fáum okkar rétt i mann-
félaginu, bæði til ráða og dáða,
og að afmáður verði möguleik-
arnir fyrir heildsala, og ann-
arskonar svindlaralýð, að liafa
fjöldann sér að féþúfu.
Ennþá eru þetta kröfur, sem
barist er fyrir.
Isfirðingar, gerið ykkar til
þess að ekki þurfi að gera.
kröfur, heldur sé hægt að hef j a
framkvæmdir.
Gerið það, sem í ykkar valdi
stendur til þess að auka fylgi
sósíalista, og því sterkari, sem
þeir verða, því nær markinu
kemst þjóðin — því marki að
útrýma óréttlætinu og siðspill-
ingunni í þjóðlífinu.
Kj ósið Sigurð Thoroddsen.
Þar styðjið þið góðan mann,
sem berst fyrir góðu málefni.
Sósíalisma á Islandi.
En til þess að hann komist
á í framtíð, þá verðum við,
kjósendur góðir, að vinna í
nútíð.
Þessar kosningar eru áfangi
á brautinni.
Leggið stein í götu íhaldsins
hvort heldur það kemur í gerfi
Alþýðu- eða Sjálfstæðisflokks.
Leggið góðu málefni lið. Það
gerið þið með því að kjósa *
Sigurður Thoroddsen
Helgi Ketilsson. •
Hvað getum við af
þessu lært?
Skutull segir: „Ihaldið, sem
nú kallar sig Sjálfstæðisflokk,
er höfuðóvinur alþýðunnar“.
Þetta er rétt að því leyti að
innan vébanda S j álfstæðis-
flokksins eru hvorttveggj a,
bæði umbótamenn á borð við
umbótamenn Alþýðuflokksins
og líka hið svartasta íhald og
andstæðingar allra umbóta og
sósíalisma. Þótt flokkurinn
gangi einn til kosninga, er
hann samt innbyrðis sprung-
inn. Eins er það með Alþýðu-
flokkinn. Hann er sjálfum sér
sundurþykkur. Þar er frjáls-
lyndi og íhald, sem berjast um
völd innan flokksins og virð-
ist eftir framboðum að dæma,
að íhald flokksins hafi þar
tögl og hagldir. Morgun-
blaðið, aðalmálgagn Sjálfstæð-
isflokksins', segir: „Höfuðand-
stæðingar okkar eru kommún-
istar“. En þegar það talar um
kommúnista á það við sósíal-
ista, gegn þehn beitir það
vopnum sínum, blekkingum,
lygi og rógi, frekar en á móti
nokkrum öðrum flokki. Það
telur sósíalistana ekki eiga til-
verurétt, vera óalandi og óferj-
andi, en viðurkennir tilveru-
rétt annara andstæðinga sinna.
Hvað getum við af þessu
lært?
Við, sem erum sósíalistar,
allir þeir, sem eru í virkilegri
andstöðu við íhaldið, í hvaða
flokki, sem það er, við eigum
að vera með sósíalistum, við
hljótum að kjósa með þeim.
Við vitum, að þeir eru ekki
hálfvolgir andstæðingar í-
haldsins, þeir eru höfuðand-
stæðingar þess.
Allir andstæðingar íhaldsins,
k j ósið
Sigurð Thoroíidsen.
II. K.
-------0-------