Baldur


Baldur - 25.06.1946, Síða 1

Baldur - 25.06.1946, Síða 1
UTGEFANDI: SÖSIALISTAFÉLAG ISAFJARÐAR XII. ÁRG. ísafjörður, 25. júni 1946 19. tölublað. Sjómenn eru miklu meira afl i íslenzku þjóðliíi en þeir gera sér ljóst. • Niðurlag ræðu Áka Jakobssonar, atvinnumálaráðherra í lióí'i sjómannadagsins að Hótel Borg. Það er að bera í bakkafull- an lækinn að hrósa sjómönn- um okkar fyrir starf sitt, enda munu þeir ekkert kæra sig um slíkt. Hitt er nauðsynlegra fyr- ir þjóðina, að hver einstakling- ur geri sér ljóst, að þjóðin á mikið undir starfi sjómann- anna. Um 90% af gjaldeyri þjóðarinnar er aflað fyrir sj ávarafurðir. Það þýðir, að 9/10 hlutar af öllum þeim margvislegu vörum, þörfum og óþörfum, sem fluttar eru til landsins, eru keyptar fyrir verðmæti, sem fiskimennirnir hafa flutt á land. Það er holt fyrir hvern einstakling að minnast þess ætíð, er hann gengur í búð og kaupir nauð- synjar sínar eða kaupir sér eitthvað annað sér og sínum til stundar gamans, að það er fiskimaðurinn, sem stritar, oft og tíðum slorugur og lúinn úti á fiskimiðum Islands og far- maður, sem siglir um úthöfin i misjöfnu veðri, sem gerðu honum kleift að kaupa þessar vörur í búðinni. Það er líka holt fyrir verkamenn og iðn- aðarmenn í landi, að minnast þess í hvert sinn, er þeir ganga til vinnu sinnar, að áhöldin, sem þeir vinna með og efnið, sem þeir vinna úr, er keypt fyrir verðmæti, sem sjómaður- inn hefur aflað þjóðinni. Menn viðurkenna þetta að vísu al- Framhald á 4. síðu. Þjódin krefst svars. Á framboðsfundinum 19. þ. m. spurði Sigurður Thoroddsen þá Finn Jónsson og Kjartan Jóhannsson um þeirra eigin afstöðu og flokka þeirra til þess, að önnur ríki fái hernaðarbækistöðvaf hér á landi til lengri eða skemmri tíma og til dvalar ameríska hersins á Islandi. Hvorugur þeirra gaf skýr svör. Finnur Jónsson vitnaði í álykt- un Alþýðuflokksins um utanríkismál, sem ekki var birt fyr en 14. þ. m. þegar flokkurinn sá sér ekki annað fært, vegna þeirrar al- mennu mótmæla-öldu, sein risin var gegn öllum landsöluagent- ura innan Alþýðuflokksins og annar staðar. En þessi ályktun kemur ekki að eins seint fram, heldur er hún loðin og þar er alls ekki minnst á afstöðu flokksins til dval- ar setuliðsins hér á landi. Kjartan Jóhannsson svaraði, að lán eða leiga hernaðarbæki- stöðv hér á landi kæmi ekki til mála Á FRIÐARTlMUM. Loðið svar og blekkjandi, þar sem gefið er til kynna, að til mála geti komið að bjóða hér bækistöðvar á ófriðartíma, eða semja fyrir fram við erlend ríki um afnot herstöðva hér á landi. Við öðru var heldur ekki að búast af manni, sem hefur verið fengið það auma hlutskipti að vera atkvæðabeita, til þess að koma landsölumanninum Birni Ólafssyni, heildsala, inn á Alþingi Is- lendinga. Isfirðingar! Þið látið þessum frambjóðendum ekki líðast slík undanbrögð. Þið og öll íslenzka þjóðin, krefjist skýlausra svara. Þið vitið, að þessir menn eru studdir til framboðs af flokkum, sem báðir eru klofnir í þessu stórmáli og eiga innan sinna vé- banda landsölumenn. Þið vitið líka, að Sósíalistaflokkurinn hefur einn allra flokka tekið ákveðna og einl\uga afstöðu gegn afsali landsréttinda. Hvert atkvæði, sem fellur á Finn eða Ivjartan eykur þá liættu, að íslenzkt land verði afhent erlendu ríki. Hvert atkvæði, sem Sigurður Thoroddsen fær, tryggir Islend- ingum yfirráð í landi þeirra um alla framtíð. X Sigurður Thoroddsen. Isfirðingar kjósa Sigurð Thoroddsen. Góðu heilli urðu sósialistar svo sterkir hér á Isafirði í kosningunum 1942, að Sigurð- ur Thoroddsen varð landkjör- inn þingmaður. — Alþýðan mun eignast þar ágætan fulltrúa, sem reynslan hefur sýnt, að aldrei skerst úr leik i hagsmunabaráttu hennar eða þegar um er að ræða velferða- mál þessa héraðs. Hann hefir aldrei og mun aldrei verða til sölu, fyrir livað sem i boði er, hvorki embætti né fríðindi, þetta megum'við öll vita og því getum við treyst. Ötrauður fylgir hann fram stefnu sósíalismans og er ófá- anlegur til að beygja af og víkja úr vegi fyrir íhaldi og auðvaldi, heldur gerir hann kröfur til þess. að við alþýðu- fólkið fáum okkar rétt i mann- félaginu, bæði til ráða og dáða, og að afmáður verði möguleik- arnir fyrir heildsala, og ann- arskonar svindlaralýð, að liafa fjöldann sér að féþúfu. Ennþá eru þetta kröfur, sem barist er fyrir. Isfirðingar, gerið ykkar til þess að ekki þurfi að gera. kröfur, heldur sé hægt að hef j a framkvæmdir. Gerið það, sem í ykkar valdi stendur til þess að auka fylgi sósíalista, og því sterkari, sem þeir verða, því nær markinu kemst þjóðin — því marki að útrýma óréttlætinu og siðspill- ingunni í þjóðlífinu. Kj ósið Sigurð Thoroddsen. Þar styðjið þið góðan mann, sem berst fyrir góðu málefni. Sósíalisma á Islandi. En til þess að hann komist á í framtíð, þá verðum við, kjósendur góðir, að vinna í nútíð. Þessar kosningar eru áfangi á brautinni. Leggið stein í götu íhaldsins hvort heldur það kemur í gerfi Alþýðu- eða Sjálfstæðisflokks. Leggið góðu málefni lið. Það gerið þið með því að kjósa * Sigurður Thoroddsen Helgi Ketilsson. • Hvað getum við af þessu lært? Skutull segir: „Ihaldið, sem nú kallar sig Sjálfstæðisflokk, er höfuðóvinur alþýðunnar“. Þetta er rétt að því leyti að innan vébanda S j álfstæðis- flokksins eru hvorttveggj a, bæði umbótamenn á borð við umbótamenn Alþýðuflokksins og líka hið svartasta íhald og andstæðingar allra umbóta og sósíalisma. Þótt flokkurinn gangi einn til kosninga, er hann samt innbyrðis sprung- inn. Eins er það með Alþýðu- flokkinn. Hann er sjálfum sér sundurþykkur. Þar er frjáls- lyndi og íhald, sem berjast um völd innan flokksins og virð- ist eftir framboðum að dæma, að íhald flokksins hafi þar tögl og hagldir. Morgun- blaðið, aðalmálgagn Sjálfstæð- isflokksins', segir: „Höfuðand- stæðingar okkar eru kommún- istar“. En þegar það talar um kommúnista á það við sósíal- ista, gegn þehn beitir það vopnum sínum, blekkingum, lygi og rógi, frekar en á móti nokkrum öðrum flokki. Það telur sósíalistana ekki eiga til- verurétt, vera óalandi og óferj- andi, en viðurkennir tilveru- rétt annara andstæðinga sinna. Hvað getum við af þessu lært? Við, sem erum sósíalistar, allir þeir, sem eru í virkilegri andstöðu við íhaldið, í hvaða flokki, sem það er, við eigum að vera með sósíalistum, við hljótum að kjósa með þeim. Við vitum, að þeir eru ekki hálfvolgir andstæðingar í- haldsins, þeir eru höfuðand- stæðingar þess. Allir andstæðingar íhaldsins, k j ósið Sigurð Thoroíidsen. II. K. -------0-------

x

Baldur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.