Baldur - 07.06.1947, Side 4
BALDUR
Tíundi sjómannadagurinn
á Ísaíirði.
Bærinn og nágrennið.
Guðmundur Jónsson
barrytonsöngvari söng hér í
Alþýðuhúsinu 1 augardaginn
fyi'ir hvítasunnu, á hvíta-
sunnudag og annan í hvíta-
sunnu, við undirleik Fritz
Weisshappels.
Söngskráin var fjölbreytt og
vakti meðferð listamannanna
á henni ákafa hrifningu áheyr-
enda, enda -er hér um' viður-
kennda listamenn að ræða.
Það er bæði ánægjulegt og
menntandi að fá slíkar heim-
sóknir, og mætti það gjarnan
vera oftar.
Baldur þakkar þessum góðu
gestum fyrir .komuna.
Hjúskapur.
Þann 31. maí sl. gaf sóknar-
presturinn, séra Sigurður
Kristj ánsson, saman í hjóna-
hand hér á ísafirði ungfrij,
Guðrúnu Ingólfsdóttur, Hnífs-
dal, og Jón Hafliða Magnússon
sjómann, ungfrú Friðgerði Sig-
urðardóttur og Kristmund
Gíslason, hílstjóra, og ungfrú
önnu Magneu Gísladóttur og
Sturlaug Jóhannsson, sjómann.
Þann 1. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband af sóknar-
prestinum hér ungfrú Sólveig
Jósepsdóttir og Ölafur Rósin-
kranzson sjómaður.
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Sigríður Guð-
mundsdóttir starfsstúlka í
Landsbankanum og Jónas
Helgason vélsmíðanemi.
Hjáskapur.
I dag verða gefin saman i
hjónaband af sóknarpresti
séra Sigurði Krist j ánssyni
ungfrú Ragnhildur Finn-
hj örnsdóttir, Finnbjörnssonar
málara, og Gísli Isleifsson,
Árnasonar prófessors.
Jónas Bergmann,
fyrrum sjómaður, andaðist
á Elliheimili Isafjafðar 25.
maí sl. hálf áttræður að aldri.
Leiðrétting.
1 síðasta blaði er mb. Ásúlfur
sagður 302,96 tonn, á að vera
102,96 tonn.
Síldarfólk.
Síldarfólk óskast á sölt-
unarstöð vora á Siglufirði.
Þeir, sem vilja ráða sig,
eru beðnir að gefa sig fram
á skrifstofu vorri.
Samvinnufélag Isfirðinga.
L JÓSMYNDAVÉL
hefur tapast. Finnandi er
beðinn að skila henni á lög-
reglustöðina gegn góðum fund-
árlaunum.
Hátiðahöld dagsins fóru
fram með svipuðum hætti og
að undanförnu. Um morguninn
kl. 10 var sjómannamessa í
ísaíj arðarkirkj u, sóknarprest-
urinn, séra Sigurður Kristj áns-
son prédikaði. Kix-kjan var
þéttskipuð fólki og var mestur
hluti þess sjómenn. Við guðs-
þj ónustuna voru 14 börn skírð.
Eftir hádegið hófst úti-
skemmtun við Bátahöfnina.
Formaður Sjómannadags-
ráðs Isafjarðar, Kristján H.
Jónsson hafnsögumaður, setti
skemmtunina. Siðan var
þreyttur kappróður og sund,
sýnd hjörgun í björgunarstól
o. fl.
Orslit í kappróðrinum urðu
þessi:
Skipver j ar af Auðbirni,
skipstjóri Guðjón Halldórsson,
2 mín. 10,3 sek.
Skipverjar af Huginn I.,
skipstjóri Gisli Júliusson, 2
mín. 16,9 sek.
Skipverjar af smábátum,
skipstjóri Brynjólfur Alherts-
son, 2 mín 17 sek.
Skipverjar af Isbirni, skip-
stjóri Ölafur Júlíusson 2 mín.
18 sek.
Kappsundið vann Þorlákur
Guðjónsson matsveinn, synti
vegalengdina á 48,1 sek.
Um kvöldið kl. 9 hófst
skennntun í Alþýðuhúsinu.
Formaður sjómannadags-
ráðs setti skemmtunina. —
Minntist hann í setningarræðu
sinni hins hörmulega flugsl}rss
er orðið hafði fyrir nokkrum
dögum, bað menn rísa úr sæt-
um sínum og votta hinum
látnu virðingu sína og ástvin-
um þeirra samúð, og var það
gert.
Hófust þá skennntiatriði
kvöldsins.
Arngrimur Fr. Bjarnason,
kaupmaður, flutti ræðu, verð-
laun voru afhent fyrir íþrótta-
afrek dagsins, hræðrakvartett-
inn söng og fjórum öldruðum
sjómönnum voru afhent heið-
ursmerki sjómannadagsins.
Hinir öldnu sægarpar, er heið-
ursmerki hlutu að þessu sinni,
voru: Ingólfur Jónsson skip-
stj óri. Asgeir Jónsson vélstj óri,
Hannes Helgason háseti og
Bjarni Jónsson háseti. Voru
þrír þeir fyrstu tilnefndir af
samtökum sjómanna hér í
bænum, en þann fjórða þeirra,
Bjarna Jónsson, háseta, ákvað
sjómannadagsráð sjálft að
heiðra.
Kristján H. Jónsson hafn-
sögumaður, f ormaður sj ó-
mannadagsráðsins afhenti
heiðursmerkin og ávarpaði um
leið hvern viðtakanda fyrir sig,
gat helztu æfiatriða þeirra og
hins langa og erfiða starfs
þeirra á sjónum. Baldur hefur
ekki rúm til að hirta þessi á-
vörp orðrétt, en hér fara á eft-
ir helztu æfiatriði þeirra fjór-
menninganna.
Ingólfur Jónsson er fæddur
27. júlí 1874 á Kálfsnesi í Stein-
grimsfirði. Hann byrjaði sjó-
mennsku 15 ára gamall. 16 ára
byi'j aði hann að róa hér við
Djúp, i Bolungarvík. Þegar
hann er 18 ára verður hann
formaður á árabáti fyrir Pál
Pálsson í Hnífsdal. Síðan er
hann með hát fyrir Guðm.
Sveinsson í Hnífsdal í mörg ár.
1 félagi við Guðmund lét Ing-
ólfur hyggja fyrsta mótorbát-
inn með þilfar hér við Dj úp og
varð þannig hrautryðj aridi •
í mikilsverðum framförum í
útvegsmálum. Bát þessum
stýrði Ingólfur í 8 ár.
Þegar farið var að kaupa.
stærri skip hingað til bæjar-
ins var Ingólfi falið að hafa
eftirlit með smíði þeirra.
Dvaldi hann þá oft langdvöl-
um í Danmörku og Noregi og
sá um smíði margra þeirra
báta, er hingað komu. Reynd-
ust þeir allir hin beztu skip og
sönnuðu, að réttur maður hafði
verið valinn til þessa starfs,
þar sem Ingólfur var.
Eftir að þessari bátasmíði
lauk var Ingólfur skipstjóri á
ýmsum skipum þar til hann
varð fyrir því slysi að detta hér
á götu og fótbrotna, þá 60 ára
gamall.
Um sjómennsku Ingólfs
sagði Kx-istján H. Jónsson:
„Ingólfur var mesti lánsmað-
ur, meðan hann stundaði sjó,
aflakló og góður sjómaður“.
Asgeir Jónsson vélstjóri er
fæddur 16. ágúst 1876 á Eyri í
Mjóafirði.
Byr j aði sj ómennsku um
fermingaraldui’. Árið 1912 varð
hann vélstjóri hjá Guðmundi
Jónssyni frá Tungu á mb.
Huldu. Síðan fór hann með
Guðmundi á mb. Freyju og var
á því skipi í 25 ár. 21 ár hér á
Isafirði og 4 ár í Súgandafii'ði
eftir að Fi'eyja var seld þang-
að 1930.
Ásgeir var ágætur vélstjóri,
þrifinn og í’eglusamur og öðr-
um til fyrirmyndar á allan
hátt.
S. 1. 17 ár hel'ur hann verið
búsettur á Suðureyri í Súg-
andafirði.
Hannes Helgason er læddur
21. jan 1881 í Nesi í Grurina-
vík. 14 ára garnall fór hann til
róðra í Kálfada.1 og reri þar
frá því á þorra og þar til í 12.
viku sumars. I Kálfadal reri
hann möi'g ár við þann aðbún-
að og aðstæður að nútímamenn
geta enga hugmynd gert sér
urn slíkt.
Ái'ið 1913 flutti Hannes til
Hnífsdals, réðist þá fyrst á
mótorbát og hefur alla tíð síð-
an verið háseti á mótorbátum,
síðustu 17 árin á Valbirni, hjá
Jóni Kristj ánssyni skipstjóra.
Sýnir það kosti Hannesar sem
sjómanns, að hann er svo mörg
ár hjá sama skipstjóra. Hann-
es hætti að stunda sjó fyrir
tveimur árum.
Bjarni Jónsson er fæddur á
Snæfjölluf 7. riiaí 1867. Hann
hyrjaði að róa frá Sandeyri
10 ára gamall og reri síðan sem
háseti á árabátum til 1943 eða
samtals 66 ár, þar af einn á
háti í 17 ár.
Þessi áttræði heiðursmaður
er fyrir fáurn árum hættur a.ð
stunda sjó, en hugur lians er
alltaf við sjóinn og þau mál-
efni er mættu verða sjómanna-
stéttinni til vegsauka og ör-
yggis. Þennan hug sinn sýndi
hann meðal annars, er hann
1945 færði Björgunarskútu-
sjóði Vestfjarða 500 króna
gjöf til minningar um son sinn
Bjarna, er fórst 18. des. 1920 í
snjóflóði undir Bjarnarnúp 29
ára gamall.
Bíó Alþýðuhússins
sýnir:
Laugard. og sunnud. kl. 9:
SIÐASTA HULAN
Áhrifamikil ensk músik-
mynd.
Aðalhlutverk :
J AMES M ASON
Sunnudag kl. 5:
GAUKUR og GOKKI
sem leynilögreglumenn.
Mjög skemmtileg mynd.
Síðasta sinn.
Mánudag kl. 9:
TÖKUBARNIÐ
i
Síðasta .sinn.