Baldur - 20.01.1950, Blaðsíða 1
Bæ j armálastef nuskrá
Sósíalistafélags
ísafjarðar.
Sósíalistafélag ísaf jarðar leggur fram eftirfarandi bæj-
armálastefnuskrá fyrir næsta kjörtímabil og lýsir því
jafnframt yfir, að ísfirzkir sósíalistar eru fúsir til sam-
starfs við hver þau félagssamtök og einstaklinga, sem af
heilum hug vilja vinna að framgangi hennar og velferð
bæjarins.
Atvinnumál.
1. Bærínn líti á það sem meg-
inskyldu sína, að aðstoða út-
gerðaraðila við starfrækslu
bátaflotans á allan þann
hátt, sem liann frekast get-
ur.
2. Unnið verði að eflingu at-
vinnulíl's bæjarhúa, með öl'l-
un nýrra atvinnutækja og
aukinni þátttöku hæjarins í
atvinnulífinu.
3. Unnið verði gegn burtflutn-
ángi atvinnutækja úr hæn-
um.
4. Komið verði upp hagkvæm-
um landstöðvum fyrir háta-
útveginn.
ö. Bæi'inn stuðli á allan hátt að
því, að Fiskiðjusamlag út-
vegsmanna hefji fram-
kvæmdir á byggingu nýs og
fullkomins fiskiðj uvers.
6. Bæi’inn kaupi og gei'i sjálf-
ur út togara, sem bæjai'-
stjórn hefur þegar sótt um.
7. Unnið vei’ða að áframlvild-
•andi lagniugu gangstétta og
gatnakeríið endurbætt,
þannig að til framhúðar
verði.
8. Unnið verði að fullkomnun
vatnsveitukerfis bæj ai'ins.
!). Komið »'erði upp álialdahúsi
og vetrarvinnuplássi fyrir
bæinn.
Hafnarmál.
1. Unnið verði að þvi að ljúka
hafn arfram kværn d um í
Ncðstakaupstað og verði
uppfyllingarnar þar hag-
nýttar, þannig að þær korni
útgerðinni að sem mestum
notum, sbr. 4. og 5. lið uin
atvinnumál..
2. Framkvæmd verði dýpkun
innsiglingai'innar um Sund-
in, jafnl’ramt hagnýttur upp-
moksturinn til landaukn-
inga.
3. Komið verði upp hækistöðv-
um fyrir sináhátaútveginn.
Húsnæðismál.
1. Kappkostað verði, að hær-
inn fái leyfi til að halda á-
fram byggingu íbúða sam-
kvæmt III. kafla laga um
opinbera aðstoð við bygg-
ingu ibúðarhúsa.
2. Bærinn ráðist í byggingu
hentugra og ódýrra íbúðar-
húsa og afli sér í því skyni
nauðsynlegs fjármagns.
Verði íbúðirnar seldar með
kostnaðarverði og með eins
hagkvæmum lánskjörum og
frekasl er unnt.
3. Einstaklingar, sem ráðast
i byggingarframkvæmdir
verði látin i té aðstoð bæjar-
ins með öflun innlends bygg-
ingarefnis með hagkvæmum
skilmálum.
Rafveitumál.
Unnið verði að áframhald-
andi aukningu raforkunnar
með hækkun stíflu við Fossa-
vatn, tilraun til þéttingar Nón-
vatns, nýtingu Selár og öðrum
þeim leiðum, sem tiltækilegar
þykja.
Búmál.
Kúabú bæjarins að Selja-
landi og Kirkjubóli verði sam-
einuð, og ræktunarfram-
kvæmdir hafnar í stórum stíl
samkvæmt tillögum sérfróðra
manna.
Menningarmál.
1. Bæjarstjórn beiti sér fyrir
að framkvæmdir séu hafnar
á byggingu Elliheimilis.
2. Unnið verði að byggingu
fullkomins íþróttasvæðis í
samvinnu við iþróttahreyf-
inguiia.
3. Aðstaða æskulýðsfélagamia
til félagsstarfsemi verði bætt
og komið á stofn tómstunda-
heimili fyrir æskulýðinn.
4. Komið verði upp fullkomn-
uni barnaleikvelli, og verði
hann starfræktur í samráði
við kvenfélögin undir um-
sjón og eftirliti umsjónar-
nianns.
Verzlunarmál.
Bæjarstjóm beiti sér fyrir
því, að Isafjörður verði aðal-
innflutningshöfn nauðsynja-
varnings fyrir Vestfirði.
Erfiðleikar aðalatvinnu-
vegs bæjarins, sjávarút-
vegsins, undanfarin ár og
afleiðingar þeirra á fjár-
hagsafkomu bæjarbúa, hafa
í för með sér aukna þörf
fyrir einhuga samvinnu
allra bæjarfulltrúa um
lausn vandamálanna, í stað
flokkadrátta og togstreitu.
Þessvegna mun Sósíal-
istaflokkurinn leitast við að
koma á samstarfi allra
flokka í bæjarstjórn fsa-
fjarðar um sameiginleg
stefnumál flokkanna og vel-
ferðarmál bæjarfélagsins í
heild.
Til baráttu fyrir stefnu
þessari leitar Sósíalista-
flokkurinn kjörfylgis al-
þýðunnar í bænum, og heitir
á hana til samstarfs um
framkvæmd hagsmunamála
hins vinnandi fólks.
-------o-------
Leggið íé
í kosningasjóð
B-lisfans.
I þessum kosniugum, eins
og öllum öðrum, verður
Sósíalistaflokkurínn að leita
til fylgismanna sinna, al-
þýðunnar í bænum, um
fjárstuðning til að standast
þann kostnað, er af kosninga
baráttunni leiðir. Sósíalista-
flokkurinn hefur ekkert
annað fé til þeirra hluta en
það, sem lionum áskotnast
með frjálsum framlögum.
Fyrir því er hér ineð skor-
að lastlega á alla stuðnings-
menn llokksins að láta eins
mikið aí’ hendi rakna og
þeim er frekast unt.
Sérstaldega eru flokksfé-
Iagarnir áminntir um að
láta ekki sitt eftir liggja,
livort heldur eru framlög frá
sjálfuin þeim eða söfnun
hjá öðrum.
Flokksfélagar og stuðn-
ingsmenn, komið á kosninga-
skrifstofuna, sem er opin kl.
4—7 e. h. á hverjum degi,
leggið fé í kosningasjóðinn
og takið ötulan þátt í að
safna í hann. Nú ríður á að
enginn liggi á liði sínu.
Jafnframt er skorað á þá
félaga, sem enn skulda
flokksgjöld sín fyrir s.I. ár,
að koma á skrifstofuna og
gera skil. Skilvís greiðsla
flokksgjalda er ein af fruni-
skyldum hvers einasta sós-
íalista.
/