Baldur - 10.02.1950, Page 1
Trygging atvinnulífsins
er meginatriðið í málefnasamn-
ingi sésíalista og sjálfstæðismanna
Á fundi sínum 2. þ.m. sam-
þykkti Sósíalistaí’élag Isafjarð-
ar því nær einróma, að halda
áfram samstarfi við Sjálfstæð-
ismenn um stjórn bajarins
næsta kjörtímabil. Hafa flokk-
arnir gert með sér málefna-
samning þann sem hér fer á
eftir:
Málefnasamningur.
Bæjarfulltrúar Sjálfsta'ðis-
flokksins og hæjarfulltrúi Sam
einingarflokks alþýðu Sós-
íalistaflokksins lýsa því yfir
að þcir liafa komið sér saman
um svofelldan málefnasanming
fyrir í höndfarandi kjörtíma-
bil:
Atvinnu- og hafnarmáí.
Flokkarnir telj a meginvið-
fangsefnið í atvinnumálum
það, að auka fjölbreytni fram-
leiðslunnar og koma þar með í
veg fyrir að atvimmleysi skap-
•ist.
Unmið verði að eftirtöldum
framkvæmdum:
1. Keyptur verði annar togari
til bæjarins, útgerðarfyrir-
komulag hans vcrði ákveðið
síðar og eftir því hvað samn-
ingsaðilar álíta heppilegast
til þess að tryggja kuap slíks
skips til bæjaríns.
2. Hraðað verði framkvæmd-
um að sköpun skilyrða til
fullkomnani hagnýtingar
alls sjávarafla á grundvelli
sérfræðilegra tillagna ,og
markaðsmöguleika fyrir
slílcar afurðir.
3. Unnið verði að byggingu
trillubátahafnar Sundameg-
in.
4. Unnið verði að aukinni út-
gerð vélbáta í bænum og
og stuðlað af fremsta megni
að starfrækslu bátaflotans.
5. Greitt verði fyrir byggingu
nauðsynlégra útvegshúsa á
athafnasvæði hafnarinnar
og vistlegra verbúða fyrir
sjómenn á hentugum stað í
bænum.
(i. Hraðað verði eins og frekast
er unnt að ljúka bvggingu
hafnarbakkans í Neðsta-
kaupstað og dýpka báta-
höfnina.
7. Innsiglingin um Sundin
verði Iagfærð að fengnum
tillögum vitamálastj órnar
tillögum vitamálastjórnar-
innar.
8. Unnið verði að áframhald-
andi lagningu gangstétta og
gatnakerfið cndurbætt þann
ig, að til frambúðar verði.
Raforkumál.
Unnið verði að áframhald-
andi aukmingu raforkunnar og
reynt að tryggja bæjarbúum
og iðnaðinum nægilegt raf-
magn á hverjum tíma.
Lögð verði áherzla á að auka
nýtni fallvatnanna, sérstaklega
Fossavatns, með þvi að hækka
stíflu þess um tvo metra.
Hvisnæðismál.
1. Aherzla verði lögð á, að
bærinn fái heimild til að
halda áfram byggingu íbúð-
arhúsa á grundvelli III.
kafla laga um útrýmingu
heilsuspillandi húsnæðis.
2. Bærinn revni að afla sér
lánsfjár til byggingar hent-
ugra og ódýrra íbúðarhúsa,
sem seld verði einstakling-
um mcð kostnaðarverði og
með eins hagkvæmum láns-
kjörum og frekast er unt.
3. Reynt verði eftir megni að
aðstoða einstaklinga, sem
ráðast í byggingarfram-
kvæmdir með öflun innlends
byggingarefnis með hag-
kvæmum skilmálum.
Heilbrigðismál.
1. Stuðlað verði að aukinni
heilsuverndarstarfsemi í
bænum þar til unt verður
að hefja byggingu heilsu-
verndarstöðvar á grundvelli
laga um almannatryggingar,
sem hafi þa,u tvö höfuð-
verkefni að koma í veg fyrir
sjúkdóma og annast eftirlit
með heilsufari á víðtækari
grundvelli en hingað til hef-
ur tíðkast. I þessum efnum
sé fyrirbygging sj úkdóm-
anna grundvall arhugsj ónin.
2. Bæjarstjórn beiti sér fyrir,
að framkvæmdir séu hafnar
á Elliheimilismálinu.
3. Unnið verði að fullkomnun
vatnsveitukerfis bæjarins.
I. Ræktun á kúabúum bæjar-
ins verði aukin og bætt og
reynt að koma rekstri þeirra
á viðunandi grundvöll sam-
lcvæmt tillögu sérfróðra
manna.
Iþrótta- og skólamál.
1. Bærinn stuðli að, í nánu
samstarfi við íþróttasamtök-
in, að koma upp fullkomnu
íþróttasvæði, þar sem unnt
sé að iðka' hverskonar úti-
íþróttir.
2. Aðstaða æskulýðs- og íþrótta
félaga til félagslífs verði
bætt.
3. Ivomið verði upp fullkomn-
um barnaleikvelli og verði
hann starfræktur í samráði
við kvenfélögin undir um-
sjón og eftirliti umsjónar-
manns.
Verzlunarmál.
Bæjarstjórn beiti sér fyrir
því, að ísafjörður verði aðal-
innflutningshöfn nauðsvnj a-
varnings fyrir Vestfirði.
Starfaskipting.
Forseti og annar varaforseti
bæjarstjórnar séu kosnir úr
hópi Sjálfstæðismanna, en 1.
varaforseti sé fulltrúi sósíal-
•ista.
Flokkarnir kjósi saman í all-
ar nefndir bæjarstjórnar og
aðrar þær nefndir er bæjar-
stjórn kýs. Sósíalistaflokkurinn
hafi fulltrúa í öllum þeim
nefndum er hann óskar.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins og bæjarfulltrúi
Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins —, skuhl-
binda sig til þess að halda of-
anritaðan málefnasamning í
hvívetna.
Framhald á 4. síðu.
Haraldur Steinþórsson.
bæjarfulitrúi
Sósíalistaflokksins
Haraldur Guðmundsson.
bæjarfulltrúi
Sósíalistaflokksins
tuö síðastliðin kjörtímabil.
i
Úrslit
bæjarstjómar-
kosninganna
á Ísaíirði.
Við bæj arstj órnarkosningar
hér á ísafirði 29. janúar s. 1.
urðu úrslit sem liér segir:
Alþýðuflokkurinn hlaut 690
atkv. og 4 menn kjörna.
Sósíalistaflokkurinn 147 at-
kvæði og 1 mann kjörinn.
Sjálfstæðisflokkurinn 585 a.t-
kvæði og 4 menn kjörna.
Auðir seðlar voru 23. Ógildir
seðlar 8.