Baldur - 25.05.1950, Page 1
BA LD UR
XVI. ÁRG. Isafjörður 25. maí 1950. 11. tölublað.
Verkalýðsfélögin krefjast
gagnráðstafana
Þríflokkarnir allir hafa
margíiinnis í vetur fellt til-
\lögur sósíalista um 20% upp
bætur á ellilaun og örorku-
bætur.
Nýlega var svo lagt fram
frumvarp frá ríkisstjórn-
inni um 10% uppbætur til
júníloka í ár, OG 5% EFTIR
ÞAÐH Er þetta einstæö
móðgun við það fólk sem
lægstar tekjur hefur í þjóð-
félaginu, á sama tíma og
ríkisstjórnin taldi sér þó
ekki fært að greiða opinber-
um starfsmönnum, sumum
hálaunuðum, minna en 10—
17% uppbætur.
Þróttur á Siglufirði og Hlíl' í Hafnarfirði skora á stjórn
Alþýðusambands íslands að heijast handa gegn árásum
geng islækkunarstj órnarinnar.
Mál og menning
Eins og vænta mátti haí’a
verkalýðsfélögin nú hal'izt
handa og búizt lil varnar gegn
taumlausri árás gengislækkun-
arstjórnarinnar. Hafa 2 þeirra,
S.l. mánudagsmorgun um
kl. 8 lenti tveggja manna flug-
vél á Skipeyrinni. Flugvélin
á heima i Reykjavík. Eigandi
hennar er Björn Pálsson, flug-
maður, stýrði hann henni sjálf-
ur og var með einn farþega.
Björn Pálsson cr ókunnugur
staðháttum hér, þrátt fyrir ])að
verkamannafélögin Þróttur á
Siglufirði og Hlíf í Hafnarfirði
runnið á vaðið og samþykkt
tillögur þær sem hér fara á
eftir:
tókst lendingin ágætlega, enda
þarf flugvélin ekki nema ca 55
metra til að lenda og ca. 60
metra til að hefja sig til flugs.
Flugvélin flaug aftur til
Reykjavíkur eftir stutta við-
dvöl.
Þetta er fyrsta landl'lugvélin,
sem hér lendir.
I s.l. mánuði sendi Mál og
menning frá sér þrjár nýjar
félagsbækur. Lífsþorsta, sög-
una um hollenska málarann
Vincent Van Gogh, síðara
hindi, sem er þriðja félagsbók-
in árið sem leið. Endurminn-
ingar Nexö (þriðja hindi) og
Hugsjónir og hindurvitni, tvær
fyrstu hækur þessa árs. Tíma-
ritshefti er löngu fullhúið til
prentunar, en er enn ekki kom-
ið út vegna vöntunar á pappír.
Ætlunin er að þriðja félags-
hókin í ár verði Hetjukvæði
Eddu, útgefin með bólunennta-
legum skýringum af Jóni
Helgassyni, prófessor í Kaup-
mannahöfn. Otgáfa þessi verð-
ur við alþýðuhæfi og áreiðan-
lega kærkomin öllum hókavin-
um. Sökum aniia útgefandans,
prófessors Jón Helgasonar, er
þó, því miður, ekki víst, að
hókin verði tilhúin það
snemma, að Inin geti orðið fé-
lagsbók á þessu ári, en hún
verður þá lelagshók næsta ár,
og önnur hók kemur í heniiar
stað í ár.
Frá þvi að bókmenntafélag-
ið Mál og menning var stofnað
sumarið 1937, hefur það gefið
út 38 hækur, auk þess ársritið
Rauða penna III. og IV. árg.,
sem komu út 1937 og 1938 og
Tímaritið, sem komið hefur út
árlega síðan 1941, 16—20 arkir
á ári.
Það er löngu viðurkennt, að
félagshækur Máls og menning-
ar hera af öðru, sem út er gef-
ið hér á landi, hæði að frá-
gangi, bókmennta- og menn-
ingargildi. Rauðum pennum og
Tímaritinu má skipa á hekk
með hinum beztu tímaritum,
sem þjóðin hefur átt, og svo ó-
metanlegt gagn hafa unnið fyr-
ir menningu hennar og þjóð-
frelsisbaráttu. Einnig er
kvennatímaritið Mclkorka gef-
ið út á vegum Máls og menn-
ingar, en er ekki félagsbók.
Þá er vert að geta þess, að
bókaútgáfan Heimskringla er i
tengslum við Mál og menningu,
er nýtur ágóðans af sölu þeirra
hóka, sem Heimskringla gefur
út. Einnig fær Mál og menn-
ing allan ágóða af Bókahúð
Máls og menningar í Reykja-
vik. Jafnhliða þessu njóta fé-
lagsmenn í Máli og menningu
þeirra hlunninda að fá útgáfu-
bækur Heimskringlu með 10%
afslætti. Birtist á öðrmn stað
hér í blaðinu listi yfir nokkrar
nýjustu Heimskringlubækur
með útsöluverði og afslætti til
félagsmanna.
Heimskringla er eitt af vin-
sælustu útgáfufyrirtækjum hér
á landi, hefur ætíð gefið út úr-
valsbækur, þar á meðal heirns-
fræg listaverk eins og Barn-
æska mín, eftir Maxim Gorki,
Ditta mannsbarn, eftir Martin
Andersen Nexö og er nú að
gel'a út hina frægu og dásam-
legu skáldsögu Jóhann Kristó-
fer, eftir Romain Rolland í á-
gætri þýðingu Þórarins Björns
sonar, skólameistara á Akur-
eyri.
Félagsgjald í Máli og menn-
ingu er nú 50 krónur á ári.
Fyrir þetta gjald, sein er verð
á einni meðalstórri hók, fá fé-
lagsmenn þrjár úrvals bækur
auk Tímaritsins. Hér er því
um einstök kosta kj ör að ræða,
sem sjálfsagt er fyrir almenn-
ing að notfæra sér, ekki sízt
nú, þegar ill stjórn, marsjall-
sanmingur og önnur óáran
kreppir svo kjör manna að
spara verður hvern eyri.
Umboðsmaður Máls og menn-
ingar Iiér á Isafirði er Magnús
Guðmundsson, Mángötu 5, og
geta þeir, sem gerast vilja fé-
lagsmenn, snúið sér til hans.
Samþykkt Þróttar á lelags fundi 15. þ.m.:
„Þar sem nú liggur ljóst fyrir að gengislækknnin hel'ur
or.sakað gífurlega verðha'kkun á öllum erlendum vörum,
og þar sem ýmsar nýjar ráðstafanir Alþingis og ríkisstjórn-
ar orsaka áframhaldandi vaxandi dýrtið, samþykkir fund-
urinn að krefjást þess af miðstjórn Alþýðusambands ls-
lands að hún nú þegar, eða svo fljótt sem því verður við
komið sendi verkalýðsfélögunum tillögur sínar og ábend-
ingar um hvað lnin ætlist fyrir i launamálunum.
Fundurinn telur að nú þcgar sé orðinn óheyrilegur
dráltur á því hjá miðstjórn A.S.I. að senda verkalýðsfél.
tillögur um þessi mál, og vill alveg sérstaklega undirstrika
það, að óhugsandi er að verkalýðsfélögin láti hinar óheyri-
legu árásir ríkisvaldsins á lífskjör verkalýðsins þegjandi
fram hjá sér lara, heldui; liljóti þau 1‘yrr cða síðar að grípa
til gagnróðstafana“.
Samþykkt Hlífar á félagsfundi 16. þ.m.
„Fundur haldinn í verkamannafélaginu Hlíf þriðju-
daginn 16. maí 1950, tclur að hin stórkostlega verðhækkun
á nauðsynjavörum, sem orðið hefur að undanfömu, hafi
svo geigva-nlcga rýrt lífskjör verkamanna að óhjákvæmi-
legt sé að verkalýðssamtökin geri nú þegar eða bráðlega
gagnráðstafanir með því að knýja fram kauphækkanir og
nauðsynlegar öryggisráðstafanir.
Með tilliti til þessa og niðurstöðu verkalýðsráðstefnu
Alþýðusamhands Islands, dagana 12.—14. marz s.l. skorar
fundurinn á iniðstjórn Alþýðusambands Islands að hoða til
fundar í Reykjavík fyrir 1. júní 1950 með formönnum allra
þeirra verkalýðfélaga sein hafa lausa samninga og haí’a
samræmt uppsagnarákvæði samninga. Verði verkefni þess
fundar að velja tíma til sameiginlegra aðgerða i kau])-
g j aldsmálunum“.
Fgrsla landflugvélin lendir á ísafirði.