Baldur - 22.06.1950, Page 1

Baldur - 22.06.1950, Page 1
XVI. ÁRG. ísafjörður, 22. júní 1950. 13. tölublað. Gagnráðstaíamr JL S. I. i. NOKKRU ÁÐUR EN Alþingi samþykkti að lækka gengi ís-. lenzku krónunnar og aðrar ráðstafanir því samí'ara, var haldin í Reykjavík verkalýðs- ráðstefna, sem stjórn Alþýðu- sambands íslands boðaði til að tilmælum ýmissa verkalýðsfé- laga innan sambandsins. 1 ályktun, sem ráðtefnan samþykkti einróma, er með skýrum rökum sýnt fram á, að afleiðing gengislækkunar lilýt- ur að vera hækkað verð á öll- um nauðsynjum, þar með versnandi lífskjör allrar al- þýðu og miklum mun örðugri afkomu atvinnuveganna, A grundvelli þessara röksemda eru í ályktuninni ítrekuð mót- mæli síðasta alþýðusamljands- þings gegn gengislækkun, skor- að á Alþingi að fella gengis- lækkunarfrumvarpið, „én verði frumvarpið þannig sam- þvkkt cða bliðstæðar ráðstaf- anir gerðar“ segir orðrétt í á- lyktuninni, „telur ráðstefnan að ekki verði hjá því komist að nerkahjðsfélögin geri alvar- let/ar gagnráðslafanir. II. SÍÐAN ÞESSI ráðstefna var baldin, hefur eftirfarandi gerst í höfuðatriðum. Alþingi samþykkti með at- kvæðum íhalds og framsókn- arþingmanna að lækka gengi íslenzku krónúnnar um 42,6%, þar með hækkaði erlendur gjaldeyrj um 74,3%, og um leið verð á öllum innfluttum nauð- synjavörum, eru þó ekki öll kurl líomin til grafar í því efni ennþá. Vegna þessa og breytingar, sem jafnframt var gerð á vísitölugrundvellinum, hafa kjör launþega versnað meira en dæmi eru til síðan launþegasamtökunum óx fisk- ur um hrygg. Atvinnuleysi hef- ur farið vaxandi í Reykjavík og flestum öðrum kaupstöðum og kauptúnum á landinu, að vísu á einstaka stöðum vegna aflabrests og slæmrar veðráttu, en aðallega fyrir áhrif gengis- lækkunarinnar. Markaðir fvrir íslenzkar útfluttningsvörur t. d. ísaðan fisk, hal'a gjörsam- lega lokast, hagur útgerðarinn- ar stórversnað af þeim sökum og vegna sí hækkandi verð- lags allra útgerðarvara. Til- finnanlegur skortur orð- ið á ýmsum nauðsynjum, enda hefur svo að segja allri skömmtun verið aflétt, senni- lega með það fyrir augum, að skorturinn reynist öruggasti skömmtunarst j órinn. III. ÞANNIG HEFUR komið fram allt það, sem andstæðing- ar gengislækkunarinnar sögðu um afleiðingar hennar og áhrif. Það er því fyrir löngu fyllsta ástæða fyrir verkalýðs- samtökin að gera alvarlegar gagnráðstaf'anir eins og verka- lýðsráðstefnan samþykkti, og með hverjum degi verður sú nauðsyn ennþá brýnni. Þrátt fyrir það lét stjórn A.S.I. ekk- crl frá sér heyra i þá átt, og það var ekki fyrr en mörg verkalýðsfélög höfðu skorað á hana að hefjast handa, að hún hafðist eitthvað að. Þann 26. maí s.I., eða hérumbil hálfum þriðja mánuði eftir ráðstefn- una, cr loks tilkynnt í Alþýðu- hlaðinu að alþýðusambands- stjórn adli að notfæra sér heimild gengislækkunarlag- anna lii að hækka upp í 9 kr. dagkaup þess verkafólks, sem lægri laun hefur, og aðra liði í samrænn við það, án þess það missi rétt til vísitöluuppbótar. Rlaðið segir að 32 félög, þar á meðal öll verkalýðsfélögin á Vestfjörðum, hafi rétt til þess- arar kauphækkunar. Skutull hefur líka skýrt frá því, að trúnaðarmannaráð verkalýðs- félagsins Baldur hafi sam- þvkkt að segja upp samning- iim frá 2. júlí n.k. að telja og ætli að notfæra sér þessa heim- ild. IV. ÞESSAR ERU ÞÁ gagnráð- stafanir stjórnar A.S.Í. Allir vita að hún er skipuð fulltrú- um gengislækkunarstj órnar- innar og forseti hennar er fyr- verandi vikapiltur Eggerts Claesen, fonnanns Vinnuveit- endafélags Islands, þrátt fyrir það munu fáir hafa lialdið að hún vogaði að leggjast svona lágt í afturhaldsþjónustunni. Það mun láta nærri, að við þær tvær gengislækkanir, sem urðu s.l. ár, hafi kaup laun- þega lækkað nú þegar um rúm 20% og á eftir að lækka meira. Verkalýðurinn sá þetta fyrir og samþykkti að gera gagnráðstafanir. Alþýðusam- bandsstjórn átti að framkv. þá samþykkt, en það líð'a rúm- ir tveir mánuðir frá því siðari gengislækkunin var samþykkt og þar til sambandsstj órn læt- ur til sín beyra og tilkynnir að nú eigi kaup hjá þeim félög- um, sem lægsta kjarasamninga hafa, að hækka um 1,695%, samkvæmt heimild gengis- ’ækkunarlaganna. Þar með viðurkennir sambandsstj órn, að kaup verkafólks í 32 félög- uin meigi mótmælalaust lækka um rösk 18,3% en bjá verka- fólki i öðrum félögum um rúm 20%. Alþýðusambandsstjórn ORÐSENDING til kaupenda Baldurs úti á landi. Gjalddagi Baldurs var 1.; apríl s.l. Póstkröfur fyrir áskriftargjald yfirstandandi < árgangs, 1950, voru látnar í; póst til áskrifenda 9 maí s.l. Allmargir hafa innleyst I þessar kröfur, en nokkrir hafa látið það undir höfuð \ leggjast af einhverjum á- stæðum, og eru þeir hér með beðnir að gera það, j sem allra fyrst. Blaðið BALDUR. j virðist ekki einu sinni liafa ætlað að gera þessar gagnráð- stafanir!, til þess bendir hve seint hún tekur þetta viðbragð, og ])að ekki fyrr en eftir ítrek- aðar áskoranir margra verka- lýðsfélaga. V. ÞAÐ VAR MIKIL ÓGÆFA íslenzkum verkalýð er fulltrú- ar atvinnurekenda og aftur- halds náðu yfirráðum í Al- þýðusambandi Islands á sið- asta þingi þess. Tækifæri til að bæta fyrir það gefst á alþýðu- sambandsþinginu i haust. Þess vegna varðar miklu að verka- fólk sé vel á verði um fulltrúa- val til þess. öflug alþýðusam- tök undir sterkri stjórn er það eina sem bjargað getur þjóð- inni frá þeim hörmungum, sem ráðþrota og illviljuð aft- urhaldsstj órn er nú að leiða yfir hana. Sjúkrahús ísafjarðar 25 ára Þann 17. júní s.l. voru liðin 25 ár frá því Sjúkrahús ísa- fjarðar var vígt, en það var gert i sambandi við hátiðahöld þessa dags árið 1925. Guðmundur landlæknir Björnsson flutti vígsluræðuna en vígsluljóð, sem sungin voru og lesin á hátíðinni, hafði Guð- mundur E. Geirdal ort. Byggingu sj úkrahússins var ekki að fullu lokið, þegar vigsl- an fór fram, og það tók ekki til starfa fyrr en seint í júlí sama sumar. Hér verður hvorki skýrt frá aðdraganda og undirbúningi sj úkrahússbyggingarinnar né saga ])ess rakin, eftir að það tók til starfa. Vert er þó að geta þess, að fyrsta tillagan, sem kunnugt er að fram hafi komið um byggingu nýs sjúkrahúss á Isafirði, var einróma samþykkt á fundi í sj úkrahússnefnd 4. sept. 1919, og var svohljóð- andi: „Nefndin skorar fastlega á bæjarstjórn að kjósa nú þegar þriggja manna nefnd til þess, í samráði við sjúkrahússnefnd, að undirbúa byggingu nýs sjúkrahúss og að bæjarstjórn- in jafnframt gefi heimild til f j árveitingar undirbúnings- kostnaði“. A fundi þessum voi-u mættir Kristján Arinbjarnar, læknir, Eiríkur Kjerulf, læknir og Jón Auðunn Jónsson. Tillagan var síðan samþykkt af bæjarstjórn og nefnd kosin. Eftir það er málinu stöðugt haldið vakandi og unnið af miklum dugnaði að framgangi ])ess ineð þeim árangri, að tæp- um 6 árum eftir að fyrrnefnd tillaga var samþykkt af sjúkra húsnefnd er byggingu nýs Framhald á 4. síðu.

x

Baldur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.