Baldur - 23.08.1950, Page 3
B A L D U R
3
Verkalýðurinn býst til
kaupgjaldsbaráttu.
Samræmdar aðgerðir og fullkomin eining tryggja sigur.
„Svo má lengi brýna deigt
járn að bíti um síðir" mun
mörgum liafa orðið að orði, er
stjórn Alþýðusambands ls-
lands hvatti verkalýðsfélögin
til að segja upp kjarasamning-
um sínum við atvinnurekend-
ur.
En með sama rétti mátti
segja að „setið væri meðan
sætt var“, því að þrátt t'yrir
gífurlegar verðhækkanir vegna
gengislækkunarinnar og ann-
arra orsaka, samþykkt verka-
lýðsráðstefnunnar s.l. vetur um
ráðstafanir gegn launaráninu
og ásakanir fjölda verkalýðs-
í elaga um að alþýðusambandið
hæfist þegar handa í kaup-
gjaldsmálinu, lét sambands-
stjórn ekkert á sér bæra að
öðru leyti cn því, að lnin ákvað
að notfæra sér heimild gengis-
lækkunarlaganna til að hækka
upp í 9 kr. á klst. dagkaup
þess verkafólks, sem hafði laun
þar fyrir neðan og aðra liði í
samræmi við það, án þess að
réttur tií vísitöluuppbótar yrði
skertur, og ennfremur sendi
sambandsstj órn verkalýðsfé-
lögum bréf, þar sem hún í raun
og veru boðaði algert aðgerð-
arleysi í kaupgj aldsmálum og
taldi þáð helzta verkefni al-
])ýðusambandsins, að „knýja
fram vinsamlegri framkvæmd
gengslaganna“.
Hvað alþýðusambandsstjórn
telur vinsamlega framkvæmd
gcngislaganna er almenningi
ekki kunnugt, hinsvegar benda
aðgerðir Björns Ölafssonar,
viðskiptamálaráðherra, í sam-
bandi við ákvörðun júlívísitöl-
unnar, sem gilda á til áramóta,
til ])ess, að hann hafi ætlað að
liefja þessar vinsamlegu fram-
kvæmdir algerlega óbeðið.
Meirihluti kaupgjaldsnefnd-
ar komst að þeirri óskiljanlegu
niðurstöðu, að vísitalan fyrir
þetta tímabil væri 109 stig, eða
sú sama og næsta mánuð á
undan. Kaupgjald átti þar með
að haldast óbreytt, en við-
skiptamálaráðherra virðist
hafa álitið, að með því væri of
langt gengið og gaf því út
bráðabirgðalög, þar sem kaup-
gjaldsvísitalan er ákveðin 112
stig og þar með slegið föstu að
kaupgjald skuli hækka um
12%. Reyndar lá sá orðrómur
á, að ])essi sami ráðherra hafi
haft áhrif á útreikning vísitöl-
unnar, og staðreynd er það, að
svo smátæk var þessi vinsam-
lega framkvæmd hans, að
meira að segja hin lítilþæga
alþýðusambandsstj órn vakn-
aði á verðinum og hvatti öll
sambandsfélög til að segja upp
samningum. I5að viðbragð var
sannarlega ekki að ástæðu-
lausu og hefði gjarnan mátt
vera fyrr.
I grein um þetta elni, sem
Ilelgi Hannesson, forseti A.S.I.
skril'ar í Skutul 20. júlí s.l. seg-
ir m.a.:
„......ríkisstjórn íhalds og
Framsóknar hefur látid meiri-
hluta kaujilagsnefndar fulsa
vísitöluna um 8 stig, og síðan
hefur því verið slegið föstu
með bráðabirgðalögum, að
launþegar skuli snuðaðir um 5
stiga kaupuppbót".
Þessi ummæli forsetans eru
hverju orði sannari, en í 'sam-
bandi við þau er ekki úr vegi
að rifja upp sögu vísitöluföls-
unarinnar undanfarið. enda
])ótt það hafi oft áður verið
gert hér í blaðinu.
Þegar gengið var fellt í marz
s. 1. var vísitalan 355 stig. Sam-
kvæmt dýrtíðarlögum „fyrstu
stjórnar Alþýðuflokksins“ var
kaupgjaldsvísitalan þó aðeins
300 stig, og hafði svo verið und-
anfarin ár. Maður með 000
kr. grunnkaup á mánuði hafði
því kr. 1800,00, en hefði átt að
hafa kr. 2130,00. Mismunur kr.
330,00 cða 3960,00 kr. á ári.
Þremur mánuðum síðar, 1.
júlí s.l. var gamla vísitalan
komin upp í 119 stig, sam-
kvæmt henni hcfði maður með
000 kr. grunnlaun á mánuði
átt að fá 2514,00 kr. í mánaðar-
kaup.
En kaup var ckki greitt sam-
kvæmt ])essari vísitölu. Eftir
gengisfellinguna var hún „leið-
rétt“ og reyndist 1. júlí s.l. 537
stig. Samkvæmt því ætti mað-
ur með 600 kr. grunnlaun á
mánuði að fá nú 3222,00 kr. á
mánuði í kaup.
En því er heldur ckki að
lieilsa, að eftir ])essari „lcið-
réttu“ vísitölu sé fai’ið. Hún
var, eins og kunnugt er einnig
„leiðrétt“, gerð að nýjum
grundvelli og kölluð 100. Þessi
tvíleiðrétta vísitala var 1. júli
s.l. 117 stig.
Nú hefði mátt búast við að
kaup yrði greitt samkvæmt
þessari tvíleiðréttu vísitölu og
maður með 600 kr. grunnlaun
á mánuði fengi 2106 kr. i mán-
aðarkaup. En, eins og fyrr seg-
ir, fann meirihluti kaupgjalds-
nefndar það út að júlívísitalan
væri 109 stgi, en ekki 117 stig.
Sá vísdómur var þó ekki látinn
standa heldur var þessi tvíleið-
rétta vísitala leiðrétt í þriðja
sinn með bráðabrigðalögum,
og ákveðin, algcrlega út í blá-
in, 112 stig. Samkvæmt þessari
þríleiðréttu vísitölu er kaup-
gjald nú reiknað. Maður, sem
áður hafði 600 kr. grunnlaun
á mánuði fær nú aðeins 2016
kr. mánaðarkaup. Hann fær
því tæplega 6 þús. kr. minna á
ári en hann ætti að fá sam-
kvæmt gömlu vísitölunni og
hvorki meira né minna en kr.
14.472,00 minna en hann ætti
að fá samkvæml leiðréttu vísi-
tölunni.
Þetta stórkostlega launarán
lét alþýðusambandsstjórn al-
gerlega afskiptalaust, kvaðst
ekki geta sagt með vissu,
„HVORT né HVENÆR telja
verður heppilegt að hafnar
verði aðgerðir í kaupgjalds-
málunum".
Og það er ekki fyrr en síð-
asli þjófnaðurinn er fram-
kvæmdur og 5% stolið al'
kaupi launþega, til viðbótar
í'yrri stórþj ófnuðum, að alþýðu
sambandsstjóm bregður við.
Þessi síðasti þjófnaður var þó
minnstur, en hefur scnnilega
orðið til þess að sambands-
stjórn missti alla vou um að
hægt yrði að „knýja l'ram“ vin-
samlegri lausn gengislaganna.
Verkalýðurinn um land alll
væntir þess að alþýðusam-
bandsstjórn beiti sér af heilum
hug í þeirri kaupgjaldsbaráttu,
sem nú er framundan, en þeg-
ar ltið er á það, sem á undan
er gcngið, er ekki að furða þótt
Full trúaráð verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík og fjöldi
verkalýðsfélaga bæði þar og
annars slaðar á landinu krefj-
ist samræmdra aðgerða og l'iill-
kominnar einingar í væntan-
legri kaupgjaldsbaráttu, því
að á þann hátt einan er full-
komins sigurs að vænta.
Auglýaing.
Gagnfræðaskólinn
á Isafirði tilkynnir:
1. Skólinn verður settur 23. september.
2. Allir þeir unglingar í bænum, seni verða 13 ára á þessu ári
(þ.e. luku barnaprófi í vor), eru skv. nýju skólalöggjöfinni
skólaskyldir í I. bekk.
3. Allir þeir unglingar í bænum, sem verða 1 1 ára á þessu ári
(þ.e. luku barnáþrófi í fyrravor), eru skólaskyldir í II. bckk.
i. Umsóknir um námsvist í III. og IV. bekk seridist skólastjóra
sem allra l'yrst, og eigi síðar en 15. september. — Sama gildir
og um utan bæjar nemendur í I. og II. bekk.
5. Innritun skólaskyldra nemenda í I. og II. bekk verður aug-
lýst síðar.
6. Væntanlega slarfar framhaldsdeild við skólann eins og síð-
astliðinn vetur. Námsefni sama og í I. hekk menntaskóla.
Inntökuskilyrði er, að nemandi hal'i lokið miðskólapról’i með
eigi la’gri einkunn cn 6 í landsprófsgreinum.
Umsóknir sendist skólastjóra serii fýrst.
Gagnfræðaskólanum á Isafirði,
Iiunnibul Valdimarsson,
skólast jóri.
Orðsending.
Bókasafn ísafjarðar verður opnað til útlána 1. sept. n.lt.
Útlánatími verður sem hér segir:
Mánudaga kl. 4—7 e.h.
Þriðjudaga kl. 4—7 e.h.
Miðvikudaga ld. 4—7 e.h.
Föstudaga kl. 4—7 e.h.
Lestrarsalur verður opnaður síðar og verður það þá aug-
lýst.
Bókavörður.