Baldur - 23.08.1950, Qupperneq 3

Baldur - 23.08.1950, Qupperneq 3
B A L D U R 3 Verkalýðurinn býst til kaupgjaldsbaráttu. Samræmdar aðgerðir og fullkomin eining tryggja sigur. „Svo má lengi brýna deigt járn að bíti um síðir" mun mörgum liafa orðið að orði, er stjórn Alþýðusambands ls- lands hvatti verkalýðsfélögin til að segja upp kjarasamning- um sínum við atvinnurekend- ur. En með sama rétti mátti segja að „setið væri meðan sætt var“, því að þrátt t'yrir gífurlegar verðhækkanir vegna gengislækkunarinnar og ann- arra orsaka, samþykkt verka- lýðsráðstefnunnar s.l. vetur um ráðstafanir gegn launaráninu og ásakanir fjölda verkalýðs- í elaga um að alþýðusambandið hæfist þegar handa í kaup- gjaldsmálinu, lét sambands- stjórn ekkert á sér bæra að öðru leyti cn því, að lnin ákvað að notfæra sér heimild gengis- lækkunarlaganna til að hækka upp í 9 kr. á klst. dagkaup þess verkafólks, sem hafði laun þar fyrir neðan og aðra liði í samræmi við það, án þess að réttur tií vísitöluuppbótar yrði skertur, og ennfremur sendi sambandsstj órn verkalýðsfé- lögum bréf, þar sem hún í raun og veru boðaði algert aðgerð- arleysi í kaupgj aldsmálum og taldi þáð helzta verkefni al- ])ýðusambandsins, að „knýja fram vinsamlegri framkvæmd gengslaganna“. Hvað alþýðusambandsstjórn telur vinsamlega framkvæmd gcngislaganna er almenningi ekki kunnugt, hinsvegar benda aðgerðir Björns Ölafssonar, viðskiptamálaráðherra, í sam- bandi við ákvörðun júlívísitöl- unnar, sem gilda á til áramóta, til ])ess, að hann hafi ætlað að liefja þessar vinsamlegu fram- kvæmdir algerlega óbeðið. Meirihluti kaupgjaldsnefnd- ar komst að þeirri óskiljanlegu niðurstöðu, að vísitalan fyrir þetta tímabil væri 109 stig, eða sú sama og næsta mánuð á undan. Kaupgjald átti þar með að haldast óbreytt, en við- skiptamálaráðherra virðist hafa álitið, að með því væri of langt gengið og gaf því út bráðabirgðalög, þar sem kaup- gjaldsvísitalan er ákveðin 112 stig og þar með slegið föstu að kaupgjald skuli hækka um 12%. Reyndar lá sá orðrómur á, að ])essi sami ráðherra hafi haft áhrif á útreikning vísitöl- unnar, og staðreynd er það, að svo smátæk var þessi vinsam- lega framkvæmd hans, að meira að segja hin lítilþæga alþýðusambandsstj órn vakn- aði á verðinum og hvatti öll sambandsfélög til að segja upp samningum. I5að viðbragð var sannarlega ekki að ástæðu- lausu og hefði gjarnan mátt vera fyrr. I grein um þetta elni, sem Ilelgi Hannesson, forseti A.S.I. skril'ar í Skutul 20. júlí s.l. seg- ir m.a.: „......ríkisstjórn íhalds og Framsóknar hefur látid meiri- hluta kaujilagsnefndar fulsa vísitöluna um 8 stig, og síðan hefur því verið slegið föstu með bráðabirgðalögum, að launþegar skuli snuðaðir um 5 stiga kaupuppbót". Þessi ummæli forsetans eru hverju orði sannari, en í 'sam- bandi við þau er ekki úr vegi að rifja upp sögu vísitöluföls- unarinnar undanfarið. enda ])ótt það hafi oft áður verið gert hér í blaðinu. Þegar gengið var fellt í marz s. 1. var vísitalan 355 stig. Sam- kvæmt dýrtíðarlögum „fyrstu stjórnar Alþýðuflokksins“ var kaupgjaldsvísitalan þó aðeins 300 stig, og hafði svo verið und- anfarin ár. Maður með 000 kr. grunnkaup á mánuði hafði því kr. 1800,00, en hefði átt að hafa kr. 2130,00. Mismunur kr. 330,00 cða 3960,00 kr. á ári. Þremur mánuðum síðar, 1. júlí s.l. var gamla vísitalan komin upp í 119 stig, sam- kvæmt henni hcfði maður með 000 kr. grunnlaun á mánuði átt að fá 2514,00 kr. í mánaðar- kaup. En kaup var ckki greitt sam- kvæmt ])essari vísitölu. Eftir gengisfellinguna var hún „leið- rétt“ og reyndist 1. júlí s.l. 537 stig. Samkvæmt því ætti mað- ur með 600 kr. grunnlaun á mánuði að fá nú 3222,00 kr. á mánuði í kaup. En því er heldur ckki að lieilsa, að eftir ])essari „lcið- réttu“ vísitölu sé fai’ið. Hún var, eins og kunnugt er einnig „leiðrétt“, gerð að nýjum grundvelli og kölluð 100. Þessi tvíleiðrétta vísitala var 1. júli s.l. 117 stig. Nú hefði mátt búast við að kaup yrði greitt samkvæmt þessari tvíleiðréttu vísitölu og maður með 600 kr. grunnlaun á mánuði fengi 2106 kr. i mán- aðarkaup. En, eins og fyrr seg- ir, fann meirihluti kaupgjalds- nefndar það út að júlívísitalan væri 109 stgi, en ekki 117 stig. Sá vísdómur var þó ekki látinn standa heldur var þessi tvíleið- rétta vísitala leiðrétt í þriðja sinn með bráðabrigðalögum, og ákveðin, algcrlega út í blá- in, 112 stig. Samkvæmt þessari þríleiðréttu vísitölu er kaup- gjald nú reiknað. Maður, sem áður hafði 600 kr. grunnlaun á mánuði fær nú aðeins 2016 kr. mánaðarkaup. Hann fær því tæplega 6 þús. kr. minna á ári en hann ætti að fá sam- kvæmt gömlu vísitölunni og hvorki meira né minna en kr. 14.472,00 minna en hann ætti að fá samkvæml leiðréttu vísi- tölunni. Þetta stórkostlega launarán lét alþýðusambandsstjórn al- gerlega afskiptalaust, kvaðst ekki geta sagt með vissu, „HVORT né HVENÆR telja verður heppilegt að hafnar verði aðgerðir í kaupgjalds- málunum". Og það er ekki fyrr en síð- asli þjófnaðurinn er fram- kvæmdur og 5% stolið al' kaupi launþega, til viðbótar í'yrri stórþj ófnuðum, að alþýðu sambandsstjóm bregður við. Þessi síðasti þjófnaður var þó minnstur, en hefur scnnilega orðið til þess að sambands- stjórn missti alla vou um að hægt yrði að „knýja l'ram“ vin- samlegri lausn gengislaganna. Verkalýðurinn um land alll væntir þess að alþýðusam- bandsstjórn beiti sér af heilum hug í þeirri kaupgjaldsbaráttu, sem nú er framundan, en þeg- ar ltið er á það, sem á undan er gcngið, er ekki að furða þótt Full trúaráð verkalýðsfélag- anna í Reykjavík og fjöldi verkalýðsfélaga bæði þar og annars slaðar á landinu krefj- ist samræmdra aðgerða og l'iill- kominnar einingar í væntan- legri kaupgjaldsbaráttu, því að á þann hátt einan er full- komins sigurs að vænta. Auglýaing. Gagnfræðaskólinn á Isafirði tilkynnir: 1. Skólinn verður settur 23. september. 2. Allir þeir unglingar í bænum, seni verða 13 ára á þessu ári (þ.e. luku barnaprófi í vor), eru skv. nýju skólalöggjöfinni skólaskyldir í I. bekk. 3. Allir þeir unglingar í bænum, sem verða 1 1 ára á þessu ári (þ.e. luku barnáþrófi í fyrravor), eru skólaskyldir í II. bckk. i. Umsóknir um námsvist í III. og IV. bekk seridist skólastjóra sem allra l'yrst, og eigi síðar en 15. september. — Sama gildir og um utan bæjar nemendur í I. og II. bekk. 5. Innritun skólaskyldra nemenda í I. og II. bekk verður aug- lýst síðar. 6. Væntanlega slarfar framhaldsdeild við skólann eins og síð- astliðinn vetur. Námsefni sama og í I. hekk menntaskóla. Inntökuskilyrði er, að nemandi hal'i lokið miðskólapról’i með eigi la’gri einkunn cn 6 í landsprófsgreinum. Umsóknir sendist skólastjóra serii fýrst. Gagnfræðaskólanum á Isafirði, Iiunnibul Valdimarsson, skólast jóri. Orðsending. Bókasafn ísafjarðar verður opnað til útlána 1. sept. n.lt. Útlánatími verður sem hér segir: Mánudaga kl. 4—7 e.h. Þriðjudaga kl. 4—7 e.h. Miðvikudaga ld. 4—7 e.h. Föstudaga kl. 4—7 e.h. Lestrarsalur verður opnaður síðar og verður það þá aug- lýst. Bókavörður.

x

Baldur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.