Baldur - 23.08.1950, Síða 4

Baldur - 23.08.1950, Síða 4
BALDUR Bærmn og nágrennið NÝIR BORGARAR: Daocu St ’inuim fædd á lsafirði 3/7 i950. Skírö 15/7. s.á. Foreklrar: Gerður Sturlaugsdóttir og Daði Kristjánsson, sjómaður, Isafirði. Jenx FriSrik fæddur á Isafirði 4/(i 1950. Skirður 15/7. s.á. Foreldr- ar: Valgerður Jónsdóttir og Magnfreð Jónsson, verkamaður, Isafirði. Otló Kolbeinn fæddur á Isafirði 30/5 1950. Skírður 4/8 s.á. For- eldrar: María Rósinkarsdóttir og Ólafur Ásgeirsson, iðnnemi, Isa firði. GuSriin Krisljanu fædd á ísafirði 29/4 1950. Skírð 4/8 s.á. For- eldrar: Kristín Bárðardóttir og Hafsteinn Hannesson, bankarit- ari, Isafirði. Erna Kim fædd á Isafirði 20/3 1950. Skírð 4/8 s.á. Foreldrar: Halldóra Benediktsdóttir og Baldvin Árnason, kennari, Isaf. Sigmar Pdll fœddur 15/7 1949. Skírður (i/8 1950. Foreldrai' Rannveig Árnadóttir og Ólafur Ólafsson, kennari, Reykjavík. Ualldóra fædd 20/4 1950. Skírð 12/8 s.á. Foreldrar: Laufey Magnúsdóttir og Guðjón Reynis- son, sjómaður, Reykjavík. KjaAlan fæddur á Isafirði 0/7 1950. Skírður 13/8 s.á. Foreldrar Kat- rín Arndal og Júlíus Helgason, rafvirki, ísafirði. Sigríöur fædd á Isafirði 28/2 1950. Skírð 13/8 s.á. Foreldrar: Guð- rún Jörundsdóttir og Sigurður Guðmundsson, verkamaður, Isaf. Sigríöur fædd á Isafirði 8/2 1950. Skírð 19/8 s.á. Foreldrar: Marta Björnsdóttir, Isafirði og Magnús Magnússon, símaverkstjóri, Revkjavík. H júskapur. Þann 12. þ.m. voru gefin saman í hjónaband af séra Sig- urði Kristjánssyni, sóknar- presti, ungfrú Laufey Magnús- dóttir, Hnífsdal og Guðjón Reynisson, sjómaður, Reykja- vík. Sigurlaug Á rnadóttir, kona Ingvars Péturssonar, fisksala, andaðist á Sjúkralnisi ísafjarðar 3. þ.m. Rannveig Oddsdóttir frá Tungu andaðist á heimili sonar síns, Guðmundar Rósmundssonar, Hlíðarveg 1, 21. þ.m. Ráðar þessar konur eru Is- firðingum að góðu lcunnar. Stóðust próf. Á fræðsluráðsfundi 11. þ.m. skýrði skólasljóri gagnfræða- skólans frá því, að samkvæmt skýrslu landsprófsnefndar hefðu allir nemendur gagn- fræðaskólans, sem gengu undir landspróf, staðist miðskóla- próf og allir hlotið framhalds- einkun nema einn. Ennfremur tilkynnti skóla- stjóri, að þeir nemendur, sem stunduðu nám í framhalds- deild, I. bekk menntaskóla, s.l. vetur, hefðu allir staðist próf- ið, þrír með I. einkunn og fjór- ir með II. einkunn. Framhaldsdeild í vetur. Á þessum sama fundi sam- þykkti fræðsluráð að sækja um það til fræðslumálastjóra að Gagnfræðaskólanum á Isafirði verði heimilað að hafa n. k. vetur framhaldsbekk með námsefni I. bekks mennta- skóla, eins og s.l. vetur. Skóla- stjóra var falið að rökstyðja erindið. Bolungarvíkurvegurinn verður vígður n.k. laugadag. Biskupinn yfir Islandi prédik- ar, kirkjukórar Bolungarvíkur og Hnífsdals og SUnnukórinn á Isafirði syngja sameiginlega undir stjórn Jónasar Tómason- ar. TIL SÖLU 10 HÆNUR. Upplýsngar í síma 218. TIL SÖLU Singer saumavél með ásett- um rafmagnsmótor. Upplýsingar i síma 186. Amerískt veggfóður nýkomið. Finnbjörn málari. Legubekkur (dívan) er til sölu hjá Eyjólfi, Silfur- götu 14, Isafirði. TELPA 8 ÁRA. Vildi ekki einhvert gott barn laust sveitarheimili, eða hcim- ili ntan kauptúns, taka 8 ára telpu lil fósturs. Hún er stór cftir ahlri og kát. Allar upplgsingar hjá: Xndriði Bj&rnason verkamaður andaðist í Sjúkrahúsi ísa- fjarðar 17. þ.m. Indriði var rétt hálf fertug- ur, sonur hjónanna Bjarna Andréssonar verkamanns, sem dáinn er fyrir nokkrum árum, og Jónínu Guðmundsdóttur, sem nú er búsett í Reykjavík. Hann var prýðilega gefinn, minnugur á allt, sem hann las eða heyrði og þar af leiðandi fróður um margt og skcmmti- legur í viðræðum í kunningja,- hóp. Þá var hann ekki síður duglegur verkmaður og gæða drengur. En á honum sannaðist, eins og mörgum fleiri, að sitthvað er gæfa og gervileiki. Ævi og örlög þessa efnilega manns urðu ömurlégri en efni stóðu til og kunnugir gerðu sér von- ir um. Þeir, sem Indriða þekktu, bæði fyrr og síðar, harma að svo skyldi fara, en í'yrir það verður hann ekki sakfeldur, og þrátt fyrir margskonar brcysk- leika minnast þeir hans með hlýjum hug. -------O------ Ingólfur Jónsson Framhald af 1. síðu. ágæt í þeim skóla, það sem hún náði, og Ingólfur hafði mikið gagn af dvöl sinni þar. Þó að Ingólfur nvti ekki meiri skólamenntunar í æsku, var hann ágætlega að sér og kom það sér vel við l'ram- lcvæmd ýmsra vandasamra verkefna, sem honum voru fal- in. Alla sína formanns- og skipstjórnartíð var hann sér- staklega happasæll og hlekkt- ist aldrei á svo skaði yrði á nipnnum eða skipi. Ingólfur var fvrir löngu hættur sjómennsku hæði fyrir aldursakir og einnig vegna þcss, að hann varð fyrir þvi slysi að fóthrotna og bar aldrci sitl har eftir það. Hann fluttist til systursonar síns, séra Sigurðar Kristjáns- sonar, eftir að Sigurður settist hér að sem sóknarprestur, og átti heima hjá honum i góðu yfirlæti þar til síðustu daga hanalegunnar að liann var fluttur í Sjúkrahús Isafjarðar, en þar andaðist hann, eins og fyrr segir. Ingólfur var fríður sýnum, snotur í vexti og snyrtimenni í framkomu. A yngri árum og meðan heilsa entist var hann duglegur að hverju, sem hann gekk, kappsamur og áræðinn. Hann var skemmtilegur í við- ræðum og viðmóti og naut, vegna mannkosta sinna vin- sælda allra, sem kynntiist hon- um. Guðlaugu, Hlíðarhúsum, Isaf irði. ÍSFIRÐINGAR! Ing var Jónasson og Haukur Guðíaugsson halda fiðlu- og píanótónleika í Alþýðuhúsinu fimmtudaginn 24. þ.m. ld. 9 e.h. — Aðgöngumiðar seldir í BókhBðunni sama dag og í Alþýðuhúsinu eftir ld. 8. — Aðgangur aðeins kr. 10,00. Nr. 27/1950. Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs hefur ákveðið, að öll verðlagsákvæði á öli og gosdrykkjum, hæði að því er snertir l'ramleiðslu og verzlun, skuli úr gildi fallin. Reykjavík, 18- júlí, 1950, VERÐLAGSSTJÓRINN. Tilkynnin < Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs liefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á henzíni og olíum: Benzin ............ pr. líter kr. 1,46 Ljósaolía ............ — tonn — 1050,00 Hráolía .............. — — — 670,00 Hráolía............... — líter — 0,58 Að öðru leyli cru ákvæði tilkynningar verðlagsstjóra nr. 7 frá 31. marz 1950 áfram í gildi. Reykjavík, 26. júlí 1950. Verðlagsst j órinn.

x

Baldur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.