Nýtt S.O.S. - 01.06.1957, Page 12

Nýtt S.O.S. - 01.06.1957, Page 12
12 Nýtt S. O. S. Hann var allt of þreyttur til að þráttá um þetta. „Og þetta lilýst af því að þú vildir ekki stökkva af,“ liélt fréttamaðurinn áfram. „Ef við héfðum stokkið út, værum við nú niðri á jörðinni fyrir löngu.“ „Með brotinn hrygg,“ bætti Anton Rammés við. Honum var ljóst, að þýðing- arlaust væri að deila um jretta. Vinur hans væri miður sín af því að lenda í þessum ósköpum í sinni fyrstu svifflugferð. Þá bar nú skjótt niður á við. Fjallatind- arnir voru nú ekki lengur fyrir neðan þá, heldur hliðhalt. Anton Rammes stei« O lnatt á. hliðarstýrið og þverstýrið. Hægri flöturinn reis upp og svifflugan straukst næstum við klettagnýpu. „Lendingarstaður!" Öll lnigsun flug- mannsins beindist að því, hvar væri lend- ingarstað að finna. Hann stýrði svifflug- unni í stórum boga framhjá klettavegg og kom um leið auga á hásléttu framundan. Háslétta þessi var einskonar þrep. því hægra megin var lóðréttur klettaveggur upp á við, en vinstra megin lóðréttur veggur upp á við, en' vinstra megin lóð- réttur veggur niður. Nú hugsaði hann ekki lengur. Hann steig á vinstra hliðarstýrið, ýtti stýrisstöng- inni fram til hægri og kippti hjólunum niður. Hann renndi niður að hásléttunni upp á líf og dauða. Snjórinn þyrlaðist upp í stórum strók, er svifflugan gróf sig nið- ur í skaflinn. Þeir félagar köstuðust frami á við með snöggum rykk. Þeir fundu til sársauka undan beltunum. Svo varð allt kyrrt. Anton Rammes litaðist um í sæti.sínu.. Vinur hans hékk í ólunum lireyfingarlaus- og allur snjóugur. „Gert,“ sagði hann lágum rómi. Þá hærra: „Gert*“ „Já,“ svaraði fréttamaðurinn og leit upp.. „Hefur þú meitt þig?“ „Ég veit ekki. Hvar erum við?“ „Við eruin lentir.“ „Jæja, erum við lentir.“ Hann sópaði snjó af skrokk svifflugunnar. Svo tók hann snjóinn í lófa sinn, horfði gaumgæfilega á hann og sagði: „Snjór!“ „Já, við erum lentir!“ hrópaði Anton Rammes, leysti lreltið og spyrnti sér úr sætinu. „Við skulum fara út og litast um.“ Hann stóð upp, hoppaði út og stökk í snjóinn. „Hæ, hó! Hana nú!“ kallaði hann og liaðaði út handleggjunum. Hann sökk í snjó upp fyrir hné. Hann þrammaði þung- lega kring um sviffluguna og sökk djúpt í hverju spori. Hendur hans námu við snjóskaflinn. Yfirborð lians var blautt og þungt og þjappaðist mjög saman. „Það er sunnanvindurinn," muldraði hann. „Það er byrjað að lilána." Hann laut yfir sviffluguna og athugaði hana nákvæmlega. Stýristaumarnir voru heilir. Böndin voru lieil og stýrisflöturinn óskemmdur. En dúkurinn var allur í tætl- um, varla lófastór blettur heill. „Undur, að fuglinn skyldi geta flogið svona á sig kominn," sagði Anton Ramm- es og horfði ofan í snjóinn. Hann strauk skrokk hann „Kranicli" og livarf að þvi búnu til fréttamannsins.

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.