Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Qupperneq 18

Nýtt S.O.S. - 01.01.1959, Qupperneq 18
18 Nýtt S. O. S. inni við þjóna laga og réttar. Skipulögð samtök sjóræningja á Mexikóflóa leystust upp. AÐ LOKUM BÍÐUR GÁLGINN Við vaktaskiptin um morguninn var skipstjórinn enn kominn upp á þilfar. Hann gengur eirðarlaus fram og aftur milli stýrishúss og kulborðssíðu. Allt í einu nemur hann staðar fyrir framan Ben Cliff, annan stýrimann, er var vaktarforingi. „Hvað hefðir þú gert, Mr. Cliff, ef þú hefðir verið skipstjóri á þrælaskipinu?“ Stýrimaðurinn þarf ekki langa stund til umhugsunar, því hann hafði einmitt ver- ið að íhuga þetta mál nokkurn hluta frí- vaktarinnar. „Eg mundi reyna að setja farminn á land á einhverjum öðrum stað en ég hefði fyrirhugað, annaðhvort á morgun eða næstu nótt.“, Skipstjórinn kinkar kolli og er all hugs- andi. „En hvað mundir þú gera, ef þú værir skipstjóri á Joe Lane?“ „Liggja í leyni næstu nætur, Sir. Við vitum nokkurn veginn á hvaða svæði þrælaskipið mun freista að skipa farmin- um á land.“ Skipstjórinn kinkar enn kolli. „Eins mun þrælaskipstjórinn hugsa, gæti ég trúað. Og ef hann er ekki nýr í starfinu, fer hann ekki í grafgötur um, hvað við ætlumst fyrir. Vitið þér, hvað ég mundi gera, ef ég væri í hans sporum? Fara upp að ströndinni um hábjartan dag, skipa upp farminum, og halda svo til hafs. (Gæzluskipið gæti þá legið í leyni til ei- lífðarnóns, eða þar til ég kæmi úr næstu ferð.“ Ben Cliff liorfir stórum augum á hús- bónda sinn. Já, fari bölvað, það væri aldeilis skemmmtileg ósvífni. Líklega væri hann of varkár í útreikningi sínum. Þetta væri snjallt og fífldjarft bragð. „Þér væruð í meira lagi djarfur, Sir, ef þér legðuð út í slíkt.“ „Þrælasala er ekki neitt starf fyrir hug- leysingja, Mr. Cliff. Þeir tefla djarft og Om stóra vinninginn. Það er ekki um of að leggja lífið að veði, því þeirra, sem þetta starf stunda, bíður gálginn. Skipstjórinn brosir lítið eitt. „Við höldum þessa stefnu fram á miðj- an dag, Mr. Cliff. Þá nálgumst við strönd- ina, þar sem líkindi eru til, að þeir reyni að koma mönnunum á land. Við förum þétt upp að landinu. Við leitum í hverj- um firði, og andskotinn eigi það, ef við sjáum þá ekki fyrr en þeir okkur. En þeir munu áreiðanlega vera varir um sig. En þeir leita fyrst til hafs, ekki til strand- ar þaðan sem við komum. Gjörið svo vel að tilkynna þetta stýrimönnum og háset- Um, Mr. Cliff.“ „Yes, Sir!“ Stýrimaðurinn kveður full- ur lotningar. Þetta er í fyrsta skipti, að skipstjórinn gerir hann hluttakandi í á- áformum sínum, þegar leggja á til atlögu gegn brotlegu skipi. Og nú sér hann í skýrara ljósi en nokkru sinni fyrr, hvers vegna lögbrjótarnir óttast svo mjög skip- stjórann á Joe Lane. Um þetta hugsar hann er hann gengur til káetu sinnar. Klukkan er 13,30, hinn 13. september, er Joe Lane snýr í austurátt úti fyrir strönd Louisiana. En nú er búið að taka segldúkinn af fallbyssunni og glampar nú á stálrörið á tólfpundaranum, hún er hlaðin, og fyrir-

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.