Nýtt S.O.S. - 01.02.1960, Blaðsíða 37

Nýtt S.O.S. - 01.02.1960, Blaðsíða 37
honum á sjúkrahús í næstu höfn — það væri í þessu tilfelli brezka — yrðu hinir fjórir sjúklingar, sem liggja í sjúkraskýli „Frithjofs" settir í hættu, þar sem aðstoðarskipið hefur egan sóttvarnaklefa. Auk þess lenti skipið í hættu að verða sett í, sóttkví, ef til vill vikum saman af brezkum hafnarstjórnum. Allar hafnarstjórnir líta alvarlegum augum á smitandi sjúkdóma. Heilsuverndarreglurnar verður skilyrðislaust að halda, hvaða skip sem í hlut á. Það er aðeins hægt að hjálpa sjúklingnum á einn hátt: „Meerkatze" hefur sóttvarnaklefa fyrir sjúklinga með smitandi sjúkdóm. Spurningin er: „Er sóttvarnaklefinn á „Meerkatze" laus? „Já, hann er enn laus!“ svarar læknirinn. „Við munum koma mann- inum í þýzka höfn!“ „Munduð þér sækja hann beint?“ „Það skulum við gjöra!“ „Hvað er hægt að gera við hina af áhöfn skipsins og hleðslu þess? — Allir mennirnir liggja undir grun um barnaveiki. Ef það fer nú í höfn, verður það sett í sóttkví. Þá eyðilegst allur aflinn, því ekki má skipa hon- um á land. Hvemig hljóða fyrirmælin í svona tilfelli? Eg get ekkert um það fundið í minni þykku bók!“ „Eg mun hafa samtal við liafnarlækni í Hamborg og tilkynni þetta þegar í stað!“ svaraði læknirinn á „Meerkatze". Þá snéri hann sér til loftskeytamannsins: „Viljið þér gjöra svo vel að ná fyrir mig í talsamband við Hamborg. Það er nauðsynlegt." Sambandið kemur fljótt. Hafnarlæknirinn verður fyrst að blaða í mis- munandi fyrirmælum, áður en hann getur gefið ráð um, hvernig hægt er að bjarga veiði skipsins frá eyðileggngu. „Svo framarlega, sem „Frithjof" hefur nægjanlegt barnaveikis-sóttvarn- arefni um borð, verður læknirinn þar að bólusetja alla áhöfn togarans til varnar. Ef slíkt væri gert gæti togarinn landað veiði sinni í þýzkri höfn.“ Loftskeytamennirnir á „Frithjof“ og togaranum hafa hlustað á sam- talið og skrifað það niður. Þar með er málinu borgið. „Frithjof" fer nú til togarans, og læknirinn og hjúkrunarmaður stíga um borð með allar birgðir sínar af barnaveikis-blóðvatni. Þeir taka nú til við að sprauta hvern einstakan mann um borð. „Meerkatze“ held- Nýtt S O S 37

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.