Nýtt S.O.S. - 01.03.1961, Blaðsíða 32

Nýtt S.O.S. - 01.03.1961, Blaðsíða 32
Dýpið, sem þeir sennilega þurftu að vinna í vissu menn lítið um, en sérfræðingarnir töldu það geta verið frá 3 til 15 metra, en féllust þó á, að það gæti orðið um allt að 30 metrar. Menn vissu yfir höfuð ennþá lítið um eðli þessa japanska vopns. Þó var það einhver lítil vísbending, sem menn höfðu haft, og varð það til þess að granda nítjánda kafbáitnum fyrir Bandaríkjaflotanum og bandamönnum þeirra. Fyrir nokkru hafði kafbáturinn U-231 komið upp á yfirborðið í birtingu og reynt að komast inn í japanska hafið. Þetta var fífldjörf tilraun í nágrenni óvinarins, sem hafði radarstöðvar á landi. Og auðvitað voru tundurspillarnir ekki heldur langt undan. í amerískri fjarsjá hafði tekizt að taka mynd- ir af þessu úr 2000 m. hæð, af tilviljun. Og þessar myndir voru ástæðan til þess, að Hickok höfuðsmaður varð að fara eina ferðina enn til Pearl Harbour. Þessi tilraun til þess að brjótast gegnum varn- ir óvinanna hafði þó orðið til ógæfu fyrir kaf- bátinn U-231. Nokkru síðar höfðu menn heyrt mikinn gný og báturinn hafði samstundizt sveiflazt upp á yfirborðið og síðan sokkið snögglega í djúpið. Einnigi hafði á sama hátt farið fyrir bátum þeim, sem áður höfðu reynt að brjótast þannig í gegn þarna. En nú voru komnar myndir af þessu, mynd- ir teknar út 2000 metra hæð, þar sem kafbátur- inn var ekki stærri að sjá en blað á litlum sjál fskeiðingi. „Rannsakaðu þetta betur, James," sagði Stones yfirforingi, og þegar Hickok kom til hans, ýtti hann til hans mörgum nýstækkuðum myndum. „Rannsakaðu þessar myndir betur og segðu mér, hvað þú heldur um þær.“ Myndirnar voru það mikið stækkaðar, að við lá, að þær væru skemmdar. En þar var þó hægt að þekkja kafbátinn, mannlaust þilfar hans sást vel, einnig sjónpípan og radarnetin og fall- byssan á afturþilfarinu. Hickok höfuðsmaður lagði fyrstu myndina frá sér með hægð og tók svo aðra. Á henni var ekki neitt meira að sjá, en þeirri fyrri, þ. NÝTT SOS e. kafbát á siglingu yfir hafið. Þriðja myndin var ekki eins mikið stækkuð. Þar gat maður einnig séð kafbátinn, en hann var ekki lengur það, sem mest bar á, á myndinni. Heldur var það liafið, sem var mjög upprótað, eftir stór- kostlega sprengingu og virtist ætla að slöngva bátnum upp í loftið. Þetta var mynd af kafbáti, sem var verið að sökkva .Hryllileg mynd. En það var ekki þess vegna, sem Hickok höfuðsmaður hafði verið kallaður á þennan stað. Hann skoðaði myndirnar aftur í sinni fyrri röð, og rannsakaði þær nákvæmlega. Eitt- livað hlaut að vera á þeim að græða. Og allt í einu tók liann eftir, að á annarri myndinni miðri, sem hann hafði ekki rannsakað eins ná- kvæmlega og hinar, voru tveir eða þrír punkt- ar rétt við kafbátinn. Hickok höfuðsmaður starði á þessa punkta, leitaði að þeim á Jrriðju myndinni, en á því var ekekrt að græða, því að haflöðrið, sem sprengingin hafði valdið, skyggði á allt annað. En fjórða myndin, sem tekin hafði verið eft- ir að kafbáturinn var sokkinn, sýndi aftur nokkra dimma depla. Ef til vill var það eitt- livað rekald úr bátnum, sem um var að ræða. En það gat þó ekki verið, því þessir deplar voru einnig á annarri myndinni, sem var tek- in rétt áður en báturinn sökk. Hickok höfuðsmaður leit upp og barði með vísifingrinum á litlu punktana og spurði með hásri röddu: „Þessir hérna, er það ekki, Arvil?“ Aðstoðarforingi höfuðsmannsins kinkaði kolli. „Hvað er þetta eiginlega?" Hickok yppti öxlum. „Eg held, sprengjur. Sprengjudufl rétt und- ir yfirborðinu, sem annaðhvort eru fest með akkeri eða reka laus. Hvað segja sérfræðing- arnir? Hvað segir yfirforinginn og hvað segja aðmíráll Lockwood og kafbátamennirnir?" „Þeir þykjast vera vissir um, að hér sé um einhvers konar dufl að ræða,“ var hið rólega svar. „Dufl, sem einhverra liluta vegna er ekki gott að staðsetja með okkar áhöldum. Þar að auki liggja þau það djúpt, að þau koma ekki upp á yfirborðið um fjöru, skilurðu?" 32

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.