Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1940, Síða 3

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1940, Síða 3
*» JÖDIHT TÍMARIT SJÁLFSTÆÐISMANNA 3. árg. Reykjavík, 1940. 2.-3. hefti r Ovenjulegur fullveldisdagur. 1. desember hefir síðan 1918 ver- ið kallaður fullveldisdagur, vegna þess, að þá fengu Islendingar full- veldi sitt viðurkennt af Dönum. Alla stund síðan liefir íslenzka þjóð- in haldið hátíðlegan þennan dag. Þá hafa menn gert livorttveggja í senn: Rifjað upp sögu liðinna ára og horft til framtíðarinnar. Menn hafa sýnt fram á, að aukið frelsi hefir orðið þjóðinni lil góðs, enda hefir saga hennar um aldir fært ótvíræðar sönnur á það, að liver fjötur, sem af lienni var höggvinn, þýddi nýtt framfaraspor. En menn hafa einnig, með ókonma tímann í huga, strengt þess heilög heit, að stíga sporið til fulls í sjálfstæðis- málunum, með því að heita upp- sagnarheimild samhandslaganna og taka öll mál þjóðarinnar í liendur hennar sjálfrar, strax eftir 1943. Nú í ár var viðhorfið hreylt frá því, sem áður var, á fullveldisdag- inn, vegna tveggja atburða. Annars vegar var 10. apríl, þegar ísland tók í sínar hendur meðferð konungs- valds, utanríkismála og landlielgis- gæzlu, og landið fékk þannig, „að svo stöddu“, öll forráð sinna mála. Hinsvegar var liernám landsins, ein- um mánuði síðar, 10. maí, þegar ráðizt var af hrezka heimsveldinu á sjálfslæði vort og hlutleysi. Fyrir þessar breyttu aðstæður vildu sumir menn, — og fluttu jafn- vel þá skoðun í blöðunum, — láta öll hátíðahöld til minningar um fullveld- isdaginn niður falla í ór. Sambands- lögin væru úr sögunni og þar með ástæðulaust að nota daginn til að tönnlasl á uppsögn þeirra. Og full- veldi ættu menn ekki að nefna á nafn, meðan vér værum ósjálfstæð- ir og ósjálfhjarga í liers höndum. En þessi liugsunarháttur er regin- villa og háskasamlegasti misskiln- ingur, enda var ekkert mark á hon- um tekið af landsmönnum. Full- veldisviðurkenningin frá 1. des. 1918, sem vér höfðum svo langa hríð barizt fyrir að fá, stendur al- veg óliögguð, og vér eigum að minn- ast þess stóra sigurs engu síður nú en áður. Dansk-íslenzku samhands- lögin eru heldur ekki af sjálfu sér fallin úr gildi; vér höfum að vísu tekizt sjálfir á hendur að fara með utanríkismál og strandgæzlu að svo stöddu, en jafnréttisákvæði sam-

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.