Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1940, Page 9

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1940, Page 9
I> J 0 Ð I N (53 bugast, tekur hverri atvinnu, sem Iiýðst, og fær loks bókarastörf á skrifstofu, kr. 233,33 á mánuði i byrjunarlaun. Þá hefur' Alþingi sennilega óttast að Pétur spilltist af bóglífi, tók af honuni styrkinn, og hefir ekkert spurzt til hans síð- an. Ég ætla ekki að eyða fleiri orðum um þetta gremjulega athæfi, en að- eins spyrja: Er þjóðinni það sæm- andi, að svelta þau fáu óskabörn, sem hún á? Ber hún ekki nógu marga þesskonar smánarbletti frá fyrri tímum, þó ekki sé bætl fleirum við? Yonandi verða þessi siðustu tínia- mót i lífi Péturs Jónssonar til þess að vekja okkur til meðvitundar um, að i honum eigum við lind reynslu og þekkingar, sem við höfum. ekki efni á að láta sitja lengur á skrif- stofu, heldur á hann að slarfa í þágu sönglistarinnar og færa okluir einu skrefi nær því marki, að eignast þjóðleikhús og óperu, og þar með komast í tölu þeirra þjóða, sem telja sönglist og leiklist sitt æðsta aðals- og menningartákn. Meðan við bælum niður okkar ])eztu og menntuðustu menn á sviði listanna, og lærum ekki að nota þekkingu þeirra, en látum alls- konar fúsk og ómcnningu sitja þar i fyrirrúmi, — komumst við aldrei úr okkar andlegu kreppu. Aðeins þeir menn eru færir uni að taka að sér hið vandasama lilut- verk söngkennarans, sem sjálfir liafa gengið í gegn um hina miklu hreins- unarelda söngnámsins, aflað sér víð- tækrar þekkingar og reynslu, og átt samleið hinna beztu manna í þeirri list. Allt þetta hefur Pétur Jónsson gert. Ég minnist þess, að mikill ævin- týraljómi stóð um nafn Péturs Jóns- sonar, og margar sögur gengu um sigra haiis í Þýzkalandi. Og víst er um það, að marga stóra sigra vann hann og ástsæll var liann með af- brigðum. Allt, sem, skrifað hefur verið um Pétur viðsvegar um Þýzka- land, bendir ótvirætt til þess. Lauritz Melchior, sem nú er söngv- ari við Metropölitan-óperuna í New York, kom til Bremen meðan Pétur var fyrsti kraftur við óperuna þar. Ilann söng þar Lohengrin. Dómar blaðanna voru allir á einn veg: Söng- ur og framkoma Melchiors var glæsileg mjög og lofsamleg, en liins- vegar ástæðulaust að kalla liann liingað, því að „Pétur olckar“ skarar fram úr honum ])æði sönglega og dramatískt. Árið 1922 skeður það, að sendi- maður frá Metropolitan-óperunni kemur til Þýzkalands. Átti hann að ráða Wagners-tenór til óperunnar og l)afði þá fyrst og fremst auga- stað á Pétri. Heimþráin hafði þá seitt Pétur heim til íslands í sumarfriinu. Þang- að treysti liinn ameríski sendimaður sér ekki að leita lians, en ráðningin mátti ekki dragast. Lauritz Melcliior varð fyrir valinu. Pétur hefur ekki græll á því cnn sem komið er, að vera ættjörð sinni trúr. Það var bjarl um Pétur Jónsson, þegar hann kvaddi Kiel, eftir 4 ára

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.