Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1940, Side 17

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1940, Side 17
I> .1 Ö » I N 71 má sjálft um allt túnið í sumar, og mátti ekki þykkra vera sumstaðar, til þess að hægt væri að þurka það.“ „Þeð kemur ekki málinu við,“ sagði Sigmundur. „Það er auðvitað liægt að fá alla jörð til að sprelta, með því að kakka nógu miklum á- burði á hana, en væri ekki hetra, að nota sama áhurð á stærri blett, sem ekki yrði fyrir átroðningi? Það væri hagfræði, sem að lialdi kæmi, strax.“ „Ég hefi nú ekki nema dyttað að gamla bænum,“ sagði Einar, „og ]>að liefir ekki orðið mér mjög kostn- aðarsamt. Grjótið og moldin hafa ekki kostað annað en mín eigin handtök, eða lítið meira, þegar þelta er gert smátt og smátt.“ „Þarna kemur misskilningurinn ykkar bændanna strax fram,“ sagði Sigmundur. „Jú, það iiefir kostað þig miklu meira. Það tiefir kostað þig mörg' ár af æfi þinni, þú ert orðinn þreyttur maður og slitinn, á l>ezta aldri, af þessu basli með torf og grjót, sem svo grotnar sundur og hrynur í rústir um það leyti, sem þú ert orðinn svo lamaður af gigt og ofþreytu, að þú hefir engin ráð með að bæta úr því. Þetta búskap- arlag og byggingarlag ykkar er úr- elt, það tilheyrir gömlum kúgunar- og vansæmdartimum. Það verðið þið að sjá, þið bjargálna hændur og bústólpar.“ Aftur sló Sigmundur í borðið svo að glumdi í. — „En ég hefi engin efni liaft á því, að hafa það öðru vísi,“ sagði Einar. „Engin efni,“ sagði Sigmundur og leit undrandi á Einar, hann leit jafnvel á mig', unglinginn, sem sat hugfanginn og horfði á hinn stóra mann. „Víst hefurðu efni, maður. Þú hefðir efni á því að byrja nú þegar í haust á þvi, að koma þér upp góðum bæ, koma skipulagi á þennan dæmalausa óskapnað í kring um þig. Athugaðu nú sjálfur, hvernig það er. Bærinn, kaldur, ó- þægilegur og lélegur, í miðju túni, hálft túnið troðið niður af óþarfa umferð manna og skepna. Spölur frá bænum að fjósinu. Fjárhúsin sín í livornm enda túnsins, og nú sýndist mér ekki betur, en að þú værir að byrja að byggja hesthús- kofann uppi á einum staðnum enn, þarna efsl i túnröndinni. Hvaða meining er nú í þessu, bóndi sæll?“ „Það er 'nú þelta með áburðinn,“ sagði Einar, og mér virtist ekki laust við að einhver þráa-keimur væri kominn i röddina, „mér hefir fund- izt þægilegra að koma honum á tún- ið, með því að hafa peningshúsin dreifð. Annars veil ég ekki, livernig þú getur dæml um það, hvort ég liafi efni á að liafa það öðruvisi.“ „Ég veit það,“ sagði Sigmundur með áherzlu, „að þú ekki einungis hefir efni á því, heldur líka hitt, að þú hefir ekki efni á að hafa það svona. Þú getur auðveldlega fengið lán og komið þér upp lag- legum bæ, með útihúsum og öllu, — hérna yzt í túnjaðrinum. Svo get- ur þú sléttað yfir gömlu bæjarrúst- irnar, fjárhúsrústirnar og götu- skorninganna. Þú færð stóran jarða- bótastvrk til þess. Þú kaupir þér verkfæri og færð verkfærakaupa- styrk til þess. Þú byggir safnþró og

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.