Sagnir - 01.05.1991, Blaðsíða 76

Sagnir - 01.05.1991, Blaðsíða 76
Eggert Þór Bernharðsson raðanum og hafa oft glögga yfirsýn um hvaða heimildir koma yfirlcitt til álita áður cn hafist cr handa. Sá sem starfar á sviði samtímasögu þarf hins vegar oft að verja löngum tíma í að meta gildi einstakra heim- ilda eða hcimildaflokka, velja og hafna, vegna þess að hann hefur sjaldnast aðgang að rannsóknum og reynslu annarra. Af þessum sökum verður tíminn sem fer í heimildakönnun oft langur og enn sem komið er, er afar tímafrekt að öðlast heildarsýn á heimildir sam- tímasögunnar. Ekki bætir heldur úr skák að aðgangur að aðgengi- legum hjálpartækjum er mjög tak- markaður. Þannig skortir t.d. margvíslegar skrár yfir samtíma- söguheimildir á söfnum og enn hefur of lítið verið gert af því að vinna upp yfirlit um efni blaða, tímarita og bóka eða nýta nýja tækni til þess að spara fræði- mönnum vinnu. Allir þessir heimildaerfiðleikar setja rannsóknum í íslenskri sam- tímasögu verulegar skorður og gera þær mun snúnari en ella. Vegna þess m.a. hve heimildirnar cru margar og dreifðar, könnun þeirra tímafrek og undirbúnings- tíminn fyrir eiginlegar skriftir langur er kannski ekkert sérstak- lega árennilegt að stunda rann- sóknir í samtímasögu enda hafa sárafáir sagnfræðingar lagt út á þessa braut enn sem komið er. Þá geta heimildavandkvæðin haft þau áhrif, að menn hneigist jafnvel til þess að þrengja viðfangsefni sín til þess að gera þau viðráðanlegri því yfirleitt ráða þeir aðeins yfir tak- mörkuðum rannsóknatíma. Á hinn bóginn er hætt við því að rann- sóknir þeirra, sem reyna við viða- meiri verkefni, geti orðið fremur yfirborðslegar af sömu ástæðum. Ný tœkni — Nýjar heimildir Ekki er nóg með að rituðum heim- ildum hafi fjölgað með veldishraða undanfarna áratugi heldur hafa nýir heimildaflokkar komið fram á sjónarsviðið sem taka þarf tillit til. Ný tækni hefur aukið mjög við heimildaforðann. Þannig leynast í útvarpinu ijölmargar bitastæðar heimildir og með sjónvarpinu jókst sá heimildasjóður sem hægt er að ganga í. Þá skipta ljósmyndir sífellt meira máli í sagnfræðirannsókn- um. Ekki aðeins sem skraut með rituðu máli, eins og margir virðast halda, heldur sem sjálfstæðar heim- ildir sem geta varpað ljósi á liðinn tíma, ljósi sem prentað mál megnar oft ekki að gera. í samtímasögu- rannsóknum eru ljósmyndir sér- staklega mikilvægar. Og þar skipta kvikmyndir ekki síður máli. Er- lendir sagnfræðingar hafa gefið þeim æ meiri gaum undanfarin ár Hafa kviktnyndir mótandi áhrif á viðhorf fólks? Verða sagnfrœðingar ekki að gefa þeim aukinn gaum við rannsóknir í sam- tímasögu? og hér á landi hafa menn verið að byrja að vakna til vitundar um gildi þeirra. Enn einn heimildaflokkur- inn af þessu tagi eru hljómplötur, en tónlist, einkum svokölluð dæg- urtónlist, hefur verið ríkur þáttur í lífi fólks undanfarna áratugi, aðal- lega ungs fólks. Þessar nýju heim- ildir má nota innan þröngs ramma eða setja þær í vítt samhengi, allt eftir því hvert eðli viðfangsefnisins er. Þannig má t.d. tengja dægur- músíkina við unglingamenningu og hugarheim ungmenna. Kvik- myndirnar við leit fólks að fyrir- myndum og viðmiðum þegar þjóðfélagið var að taka róttækum breytingum í átt til borgarsamfé- lags og hvernig þær opnuðu fólki sýn til nýrra átta. Þátt útvarps og sjónvarps í því að brúa bilið milli þéttbýlis og strjálbýlis má rann- saka, og þannig mætti raunar lengi telja. Reyndar verður menningar- saga síðustu áratuga vart skrifuð án þess að þessar heimildir séu vand- lega gaumgæfðar. Sagnfræðingar sem fást við sögu undangenginna áratuga verða að beina sjónum sínum að þessum Hljómplötur eru nýrflokkur heimilda sem samtimasögufrœðingar verða að líta til, t.d. þegar þeirJJalla um dœgurmenningu ungmenna síðustu áratugi. Hér sést einn helsti boð- beri djasstónlistarinnar á íslandi,Jón Múli Árnason, velja plötu tilþess að leika í djass- þcetti stnum í ríkisútvarpinu. 74 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.