Sagnir - 01.06.1992, Side 78

Sagnir - 01.06.1992, Side 78
meðan meðhöndlun færi fram, og að mati Hoffmanns yrði það minnst sex vikur. Hjá Blöndal kemur líka fram að hann hafi sent sakamanninn ísleif Jóhannsson til Kaupmannahafnar.8 Isleifur var dæmdur 1. október 1823 fyrir þjófnað í þriðja sinn. Hegning hans var að brennimerkjast, kag- strýkjast og erfiða í járnum í Kaup- mannahöfn alla ævi. 9 Meðhöndlun Hoffmanns Eins og áður hefur komið fram greindi Hoffmann kynsjúkdóminn hjá fimm kvenmönnum. Hafði hann þær allar til meðhöndlunar í nokkrar vikur á kostnað stjórnvalda. Hér á eftir fylgir sjúkdómsgreining Hoff- manns á konunum og skýrsla hans um meðhöndlun á madam Stiesen. Trúlega hafa allar konurnar fengið svipaða meðferð. Þó að ég hafi að- eins þessa einu skýrslu undir höndum mun ég reyna að sjá sem best hvaða lækningaraðferðum var beitt á þær og hvort þær hafi verið vænlegar til árangurs miðað við þá meðhöndlun sem notuð er nú við þessum sjúk- dómi. Þann 25. september fór Hoffmann með Blöndal að Breiðavaði og Syðri- Ey, og skoðaði hann heimamenn á bæjunum. Hér verður aðeins getið skoðunar á þeim er fundust með kynsjúkdóminn. Við skoðun á Sigur- laugu Jónasdóttur fann Hoffmann kynsjúkdómasár10 á skapabörmum, í klofhafti, kynsjúkdóm neðarlega í leghálsi og kynsjúkdómavörtur11 sem allt voru opin sár. Að hennar sögn hafði hún haft þetta í tvo mánuði og baðað sig með cochleania reoens island- iva. Kom fram við skoðun á Sigríði Finnsdóttur að hún hafði kynsjúk- dómasár á leghálsi og á kirtli, einnig á innanverðum skapabörmum. Við eftirgrennslan kom fram að hún vissi ekki hvað Ari hefði gefið henni en þó hefði hún fengið tvö til þrjú stykki af pulver og pluster sem hún notaði við sjúkdómnum; einnig kom fram að hún hefði haft sjúkdóminn í tíu vik- ur. Systir hennar, Sigurlaug Finns- dóttir hafði eftir skýrslu Ara ónátt- úrulegar kirtilbólgur í nára og kyn- sjúkdómasár á leghálsi og innarlega á klofhafti og hafði hún haft þennan sjúkdóm jafn lengi og systir hennar, Sigríður. 12 Daginn eftir fóru þeir að Hólum í Spákonufellssókn þar sem madam Stiesen var skoðuð og hafði hún kyn- sjúkdómasár á skapabörmum og inn- arlega á klofhafti, en einnig hafði hún kynsjúkdómavörtur. Sagðist hún fyrst hafa fundið fyrir þessum sjúk- dómi fyrir einu og hálfu ári síðan og þá með sári á skapabörmum, síðan á klofhafti og kynsjúkdómavörtur sem nú þegar hún er skoðuð eru opin sár. Þann 13. október er svo Kristín Jóns- dóttir skoðuð og finnast á henni kyn- sjúkdómasár á skapabörmum og kynsjúkdómavörtur og einnig var hún með sár á klofhafti. Sjúkdómsskýrsla Hoffmanns fyrir madam Stiesen hefst 26. september og fær hún fyrst lyfið merkuried lapans (silfurnítrat) og daginn eftir skrifar hann að hún bregðist vel við því. Tveim dögum síðar sér hann ný ein- kenni og gefur henni 10 stykki „mer- ounialpulver" (ekki vitað hvaða lyf þetta er). Fram að 5. október notaði hún það sem Hoffmann hafði gefið henni en þann dag sá hann ný ein- kenni sjúkdómsins, lét hann hana þá hafa smyrsl og ráðleggur henni að drekka súrmjólk og skola munninn með volgri mjólk og vatni nokkrum sinnum yfir daginn. Þann 10. október ráðleggur hann böðun á sárin þrisvar til fjórum sinnum á dag með fjórum grömmum af „hydrary muriat“ (ekki heldur þekkt) blönduðu í vatni. Dag- ana 14.-17. sama mánaðar minnkuðu sárin og dró úr bólgum, og hafði meðhöndlunin góð áhrif. Þann 20. október segir hann að sárin séu að gróa og hún sé næstum læknuð, næstu daga dregur hann úr meðferð- inni og 6. nóvember úrskurðar hann hana heilbrigða. Nokkrum dögum áður hafði hann úrskurðað hinar kon- urnar heilbrigðar. Eftir að hafa úr- skurðað allar konurnar læknaðar af sjúkdómnum fer hann heim til Akur- eyrar og er ekki ótrúlegt að hann hafi verið farinn að lengja eftir að komast heim enda búinn að vera um mánuð í burtu.13 Lœkningatœki frá fyrri liluta 19. aldar. Brennslujám, pípustingssamstœða notað á vökva- fyllta sjúka staði, vog og bt'ldur. 76 SAGNIR

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.