Sagnir - 01.06.2001, Page 71

Sagnir - 01.06.2001, Page 71
öreigar stórborgarinnar. Fátækrahverfi í London á 19.öld. Bæði díalektísk efnishyggja Karls Marx og darwinísk fram- farahyggja Herberts Spencers ganga út frá að félagslegar breyt- ingar ráðist af efnahagslegum afstæðum og eignarhaldi og hreyfingu (efnahagslegs) auðmagns (capital). í kenningum sínum um valdatengsl innan hins félagslega rýmis gengur Bour- dieu hins vegar út frá að félagslegt vald, og þar með breytingar innan samfélagsins, grundvallist á þremur tegundum auðmagns: í fyrsta lagi á hagfræðilegu/efnahagslegu auðmagni (economic capital) sem byggist ekki síst á efnahagslegri stöðu einstaklinga, hópa og fyrirtækja innan samfélagsins. í öðru lagi á menningar- legu auðmagni (cultural capital) sem tengist til dæmis menntun, þekkingu í vísindum og listum, embættum og almennri þjóð- félagsstöðu einstaklinga og hópa innan samfélagsins. í þriðja lagi á táknrænu auðmagni (symbolic capital) sem byggist á framangreindum tegundum auðmagns og staðfestir um leið opinbert gildi þess og lögmæti. Táknrænt vald hverfist um tungumálið og málfræði þess og leitast við að skapa hluti og merkingu með orðum. Hlutlæg (objective) valdatengsl efna- hagslegs og menningarlegs auðmagns hafa tilhneigingu til að móta sig og endurframleiða yfir í táknræn (huglæg/subjective) valdatengsl í viðleitni sinni til að hafa áhrif á það sem kalla má „almenna skynsemi" samfélagsins, eða þá heimsmynd sem ríkir í samfélaginu og mönnum finnst „eðlilegust" innan þess. Sam- kvæmt þessu fá einstaklingar og hópar aðgang að táknrænu valdi í gegnum eignir, menntun, samfélagsstöðu og raunar með aðgengi að flestum þeim þáttum sem búa yfir hlutlægu valdi innan samfélagsins. Kennivald og réttlæting hins huglæga, tákn- ræna valds byggist yfirleitt á einhvers konar algildishugmyndum um náttúrulega eða guðlega samfélagsskipan sem óeðlilegt sé að hrófla við, og út frá þeim hugmyndum skapar það og viðheldur sinni heimsmynd. í þessu samhengi má segja að hagsmuna- og stéttabarátta snúist um vald samfélagslegrar orðræðu og baráttu um skilgreiningu fremur en hlutbundinn félagslegan veruleika.23 Sterk táknræn staða tiltekins kerfis eða þáttar innan sam- félagsins getur því mótað eða jafnvel náð forræði yfir öðrum þáttum þess. Þannig getur darwinísk barátta hins „frjálsa" markaðar náð að móta félagslegan veruleika og viðteknar hug- myndir manna um þann veruleika út frá hagfræðilegum „lög- málum“ framboðs og eftirspurnar. Andóf Bourdieus gegn „forræói" ný-frjálshyggjunnar í bók sinni, Acts of Resistance: Against the Tyranny of the Market (1998), leitast Bourdieu við að andæfa hinni altæku markaðshyggju sem felst í kenningum ný-frjálshyggjunnar (neo-liberalism) og varar um leið við gríðarlegri útbreiðslu hennar. Hann telur orð- ræðu ný-frjálshyggjunnar sækja styrk sinn til heils heims valdasamskipta og -tengsla sem hjálpa henni til að vera það sem hún er; sérstaklega með því að gera það að „sannindum" sem í rauninni er ekkert annað en hagfræðilegur valkostur þeirra sem stjórna efna- hagslegum valdatengslum og sem slíkir hafa þeir og nota það táknræna vald er gefur þessum valda- tengslum merkingu. í nafni vísindalegrar þekkingar eru kenningar ný-frjálshyggjunnar raungerðar sem pólítísk sannindi, þrátt fyrir að hagfræðilegar kenn- ingar séu, með örfáum undantekningum, óhlutstæð vísindi sem byggja á óréttlætanlegri aðgreiningu milli hins efnahagslega og hins félagslega. Þessi falska aðgreining er afleiðing stefnu sem hefur engan annan tilgang en að standa vörð um hið nýja Algildi (Absolut), það er „efnahagslega reglu og stöðug- leika." Þegar (fórnar)kostnaður pólitískrar stefnu- mörkunar er veginn og metinn í ljósi hagfræðikenn- inga taka þær vfirleitt ekki með í dæmið það sem kalla má félagslegan kostnað og ýmis langtímaáhrif honum tengd. Efnahagslegar ákvarðanir geta þegar til lengri tíma er litið haft í för með sér atvinnuleysi, heilsufarsvandamál, vímuefnaneyslu, sjálfsmorð og fleiri neikvæða þætti sem orðið geta samfélaginu fjár- hagslega dýrir svo ekki sé minnst á þá mannlegu eymd sem þeim fylgja.24 Gagnrýni Bourdieus á markaðskenningar ný- frjálshyggjunnar byggist ekki síst á afneitun hennar á huglægum (subjective) þáttum efnahagslífs og sam- félags og samvirkni þeirra við hlutlægari þætti þess. Þjóðfélagið á sér bæði hlutlæga og huglæga tilveru: Opinberar stofnanir, reglur og stjórnkerfi eru dæmi um hlutlæg form samfélagsins, en sú mynd sem almenningur gerir sér af því er huglæg birtingarmynd þess. Með hnattvæðingu fjármálamarkaðarins og hinum mikla hreyfanleika fjármagns sem henni fylgir standa fyrirtæki sem sett hafa verið á markað frammi fyrir nýrri hættu; hættunni á að missa tiltrú markað- arins. Þessi tiltrú virkar sem huglægt markaðsstýring- artæki2S og getur leitt til gróða eða taps hluthafa á skömmum tíma án þess að um nokkrar raunveru- legar afkomubreytingar hafi verið að ræða hjá við- komandi fyrirtæki. Sennilega er hlutabréfavæðing fyrirtækja og viðskipti með hlutabréf eitt skýrasta dæmið um huglæga þætti efnahagslífsins og hins frjálsa markaðar. Þegar horft er til 19. aldar kenninga Spencers um „organisma“ samfélagsins má kannski segja að þær passi illa við hnattvæðingu fjármála- markaðarins og þau (huglægu) viðskipti með hluta- bréf sem henni fylgja. Bourdieu segir marga af sinni kynslóð hafa horfið frá marxískri örlagahyggju til örlagatrúar ný-frjáls- hyggjunnar, en þessar kenningar eigi það báðar sam- merkt að með efnahagslegum rökstuðningi gefa þær sig út fyrir að lýsa þróun eða ferli með óhjákvæmi- legum endalokum, sem firrir þær um leið allri pólítískri ábyrgð: Líkt og margar aðrar kenningar neita þær nefnilega að taka tillit til eigin kennivalds. 69
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.