Sagnir - 01.06.2001, Side 115

Sagnir - 01.06.2001, Side 115
Landnám fslands Leiðir landnámsmanna til íslands. Teikning. Titill: „Landnám íslands 874-930.“ Áritun: „Óðalsbændurnir yfirgefa ættlandið.“ Listam.: Samúel Eggertsson, merkt: S.E. 25./1. 1913. Útg.: Samúel Eggertsson. Handlitað. Benediktssafn prentað eftir ljósmynd frá áttunda áratug 19. aldar - og þá skipið mögulega falsað inn á. Ljósmyndin gæti þó mögulega verið eldri, en hingað komu upp úr miðri öldinni nokkur hjóla- skip með erlendum höfðingjum. Kortið er í einkaeign. Póst- kortasöfn Jóns Halldórssonar og Ragnheiðar Viggósdóttur eru þau stærstu í einkaeign á íslandi. Þáttur myndlistarmanna Hér er ekki rúm til að fjalla nánar um ákaflega fjölskrúðuga efnisflokka íslensku póstkortanna, en í lokin er rétt að geta stuttlega um þátt þekktra innlendra myndlistarmanna í korta- gerð. Þeir urðu hver með sínu móti til að ljá kortunum sögulegt og einatt þjóðsögulegt innihald og yfirbragð, tengdu þau þannig hugarheimi landsmanna með öðru móti en ljósmyndirnar gerðu. Meðal eldri listamanna sem þar komu við sögu, sumir með einni eða tveimur myndum, aðrir með fjölda mynda, voru eftirtaldir einstaklingar: Bertel Thorvaldsen (1768/70-1844), Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal (1826-1907), Sigurður málari Guð- mundsson (1833-1874), Samúel Eggertsson (1864-1949), Þór- arinn B. Þorláksson (1867-1924), Einar Jónsson (1874-1954), Ásgrímur Jónsson (1876-1958), Jóhannes S. Kjarval (1885- 1972), Eyjólfur J. Eyfells (1886-1979), Ríkarður Jónsson (1888- 1977), Muggur (1891-1924), Finnur Jónsson (1892-1993), Guðmundur Einarsson frá Miðdal (1895-1963), Tryggvi Magn- ússon (1900-1960), Höskuldur Björnsson (1907-1963), Barbara Árnason (1911-1975) og Halldór Pétursson (1916-1977). Póstkordn voru sófamálverk almúgans í landinu. í þau var rýnt og um þau rætt manna á meðal. Þeim var raðað í albúm eða öskjur innan um önnur slík eða hengd upp á veggi heimilis- fólki til augnayndis. Einn kortsendandi bað bljúgur systur tvær að hengja kort með íðilfagurri konumynd, sem hann var að senda þeim, fyrir ofan rúmið þeirra, en hann langaði til að gefa þeim „eitthvað en jeg hef ekkert nema þessa líti fjörlegu stulku.“20 Liðin tíð virðist vera ein helsta fremd póstkortanna gömlu, þótt fólk sem man þessa tíma, gullöld póstkorta, sé óðum að safnast til feðranna. Ágæti póstkorta var þó helst að fagna nýjungum. Það sem okkur þykir kostulegt eða fáránlegt í dag var allt það nýjasta og æsilegasta á fyrri tíð. Þarna vegur salt hin auðuga reynsla ævarandi nútíðar og elífð umliðins tíma. Sér- hvert kort er í senn gamalt og nýtt. Póstkortið lýsir andrúmi og kenndum samtíðarinnar, tilfinningalegum sannindum. Það birir jafnt samfélagsgerðina sem sjálfsímynd landsmanna. Birtingar- myndir hvers tímaskeiðs eru „allt eins fyrir hendi í hversdags- legu umhverfi, í alþýðutónlistinni, í fatatískunni og ýmiss konar mynd- og auglýsingaefni sem okkur þykir svo sjálfsagt að við erum hætt að taka eftir því.“21 Kortin sameina ýmsa eiginleika „æðri lista“ og hverfulla myndlýsinga hvunndagsins. Tilvísanaskrá: 1 Greinin er byggð á B.A.-ritgerð höfundar 2001. 2 Guðmundur Sæmundsson, „Safnarinn.“ Heima er bezt 6 (2001). bls. 204. 3 Phillips, Tom, The Postcard Century, 2000 Cards and their Messages. London 2000, bls. 15. 4 Sama heimild, bls. 15. 5 Sama heimild, bls. 15. 6 Sama heimild, bls. 16. 7 Borgarskjalasafn Reykjavíkur, Einkaskjalasafn nr. 155. 8 Höfundur. 9 Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn. Benediktssafn. 10 Sama heimild. 11 Sama heimild. 12 Sama heimild. 13 Þorsteinn Bernharðsson, viðtöl í ágúst og september 2001. 14 Akranes 1-2 (1949), bls. 2. 15 Þorsteinn Bernharðsson. 16 Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn. Benediktssafn. 17 Akranes, bls. 2. 18 Guðmundur Sæmundsson, „Safnarinn“, s. 204. 19 Unga ísland 8 (1905), bls. 59. 20 Borgarskjalasafn. Einkaskjalasafn nr. 196. 21 Aðalsteinn Ingólfsson, Jólamerki Thorvaldsensfélagsins 1875-2000. Ritstjóri Hildur G. Eyþórsdóttir. Reykjavík, 2000. 113
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.