Ný dagsbrún - 01.04.1973, Side 4
ffeft
NÝ DAGSBRÚN
APRÍL 1973
IMú er sú irörn
hrostin
Það eru klókir menn sem
stjórna landinu. Á síðastliðnu
vori hækkuðu þingmenn við sig
kaupið þannig að nú hafa þeir
um sjötíu þúsund krónur á
mánuði án aukabitlinga.
Þá voru framundan samning-
ar allra verkalýðsfélaga í land-
inu og átti að semja til langs
tfma. Ekki vildu landsfeðurnir
eiga neitt á hættu um það per-
sónulega, hvemig til tækist um
þessa samninga, enda varð sú
raunin á, að kaup flestra verka-
manna hækkaði aðeins í tuttugu
þúsund krónur á mánuði, og
síðan hefur stjórn og þing ver-
ið að bisa við að lækka þetta
kaup með allskonar brellum
með vísitöluna.
Formaður Alþýðubandalagsins
sem hefur yfir milljón króna
árslaun sagði í áramótaboðskap
sínum, þ. e. í nafni verkalýðs,
þjóðfrelsis og sósíalisma, að
kaupmátturinn væri alltaf að
aukast eins og lofað var af
stjórnarherrunum. Sannleikur-
inn er hins vegar sá og það
finna verkamannafjölskyldurnar
í landinu, þótt Ragnar Amalds
finni það ekki, að frá fyrsta
júní til 1. marz stóðu verkalaun
í stað, en verðlag allt hækkaði.
Vísitalan hækkaði en var greidd
nðiur af almannafé til þess að
koma í veg fyrir kauphækkun.
1 febrúar var svo vísitalan
reiknuð út á ný og þær hækkanir
sem orðið höfðu frá 1. júní lagð-
ar tli grundvallar kaupgjalds-
vísitölu 1. marz (að frádregnu
því sem stolið var í vísitölustig-
um í skjóli áróðurs og blekk-
inga). Síðan vísitalan var reikn-
uð út og síðan kauphækkanirnar
urðu 1. marz hafa einhverjar
hrikalegustu verðhækkanir átt
sér stað sem um getur. Allar
þessar hækkanir verður launa-
fólkið að bera bótalaust a. m. k.
í þrjá mánuði og meira, því nú
er sú vörn þess brostin, sem
Sósíalistaflokkurinn var, þótt ó-
heill væri orðinn. Nú trónar þar
í hásæti drengur, sem aldrei hef-
ur deilt kjörum með íslenzku
erfiðisfólki, en var með brögðum
afhent baráttutæki róttæks
verkalýðs á íslandi, sem búið var
að brýna í egg í 40 ár.
Það væri ekki ófróðlegt að fá
svör hans við því, hvernig kaup-
máttur eykst, þegar af honum
er tekið með hækkuðu verðlagi
og beinum frádrætti af kaupi
vinnandi fólks í niðurgreiðslur,
með hækkuðum sköttum beinum
og óbeinum. Hitt vita allir, að
hvorki Ragnar Arnalds né aðrir
„vinstri sinnaðir" þingmenn
vildu eiga undir samningsúrslit-
unum um sitt kaup á sl. vori né
heldur þeim bellibrögðum, sem
ákveðið var að beita alþýðuna
eftir að búið var að reyra hana
í fjötra tveggja ára kaupgjalds-
samninga.
Komdu nú með svörin Ragn-
ar, þau eiga að vera einföld og
skiljanleg, ekki fimbulfamb.
Hins vegar er verkafólkið í
landinu búið að reikna dæmið.
Karli.
Námsstarf Fylkingarinnar
Eining fræðikenningar hins vísindalega sósíalisma
— marxlenínismans og starfs Fylkingarinnar.
FYLKINGIN — baráttusamtök
sósíalista — hóf víðtækt náms-
starf sl. sumar að afloknu löngu
undirbúningstímabili. Um er að
ræða grundvallarnám í fræði-
kenningu hins vísindalega sósí-
alisma — marx-Ienínismanum.
Allir virkir Fylkingarféiagar hafa
átt sinn þátt í mótun leshrings
sem tekur yfir öll grundvallar-
atriði fræðikenningarinnar á 16
námsfundum.
Um er að ræða kaflana: Día-
lektisk efnishyggja, söguleg efn-
ishyggja, þekkingarfræði og
starf, stéttir og stéttaafstaða,
flokkurinn, ríkisvald, hagfræði
og heimsvaldastefnan. Loks er
kafli um Fylkinguna og sögu
hennar. Lesefni er allt sótt í
þýdd verk höfunda, svo sem
Marx, Engels, Leníns, Stalíns,
Mao Tsetungs og E. Mantels svo
dæmi séu nefnd.
Námið er liður í uppbyggingu
samtakanna sem alhliða baráttu-
tækis íslenzkra kommúnista og
stéttvíss verkalýðs — samræm-
ing stefnumiða og starfs. Fylk-
ingin er byltingarsinnuð samtök
sem stefna að valdatöku verka-
lýðs á íslandi með byltingu, þar
sem ríkisvald borgarastéttarinn-
ar er brotið niður, afnám einka-
eignar á framleiðslutækjum og
uppbygging sósíalismans tryggð
með stéttarlegu alræði verkalýðs-
stéttarinnar og íslenzkrar al-
þýðu. Fræðikenningin gerir
mönnum kleift að skilja hin al-
mennu lögmál, sem ráða í þjóð-
félaginu og sögunni, en hún er
um leið leiðbeining í starfi.
í starfinu tengjast almenn
sannindi fræðikenningarinnar
við sérstæðar íslenzkar aðstæð-
ur. Námið er þannig forsenda
markviss byltingarsinnaðs starfs,
á sama hátt og starfið gefur
náminu innihald, markmið og
raunveruleg skilyrði þróunar.
Með aukinni starfsreynzlu og
auknu námi er stefnt að því að
bæði fræðikenning og starfs-
hæfni þróist fram á við og Fylk-
ingin geti lagt grundvöllinn að
fræðikenningu hinnar íslenzku
byltingar og því tæki, sem er
nauðsynlegt til framkvæmda á
því stigi, byltingarsinnuðum
kommúnistaflokki.
Jafnframt langtímamarkmiði
sínu og starfi að því, tekur Fylk-
ingin þátt í dægurbaráttunni, í
kjarabaráttunni og starfi sam-
taka eins og Samtökum her-
stöðvaandstæðinga og Víetnam-
nefndinni á grundvelli stefnu-
miða sinna. Samfara þátttöku í
stéttabaráttunni undirbýr Fylk-
ingin framhaldsnám og ítarlegri
rannsókn á stéttaeðli og hreyfi-
öflum íslenzka auðvaldsþjóð-
skipulagsins.
Félagsaðildar er ekki krafizt
til þátttöku í leshringnum. En
nám öðlast aðeins byltingarsinn-
að inntak sé það tengt mark-
vissri þátttöku í stéttabaráttunni
og útbreiðslu áróðurs. Við bend-
um áhugafólki á að hafa sam-
band við Fylkinguna, Laugavegi
53A, sími 17513.
Fylkingin.
Alþjóðahyggja
Morgunblaðsins
AÐ ÞESSU SINNI verður byrjað að rifja upp
alþjóðahyggju Morgunblaðsins, en þar er af
miklu að taka. Það hefur ævinlega tekið afstöðu
með sterkustu auðvaldsríkjunum og varið alla
mestu stríðsglæpi aldarinnar, allt frá Nixon til
Hitlers. Þessi afstaða Morgunblaðsins á ekki og
má ekki gleymast. Því gríp ég nú niður í tíu
ára gömul Morgunblöð, en þá var kúbudeilan
nýafstaðin. Morgunblaðið hefur enga samúð
með hinni kúbönsku smáþjóð. Þvert á móti. Það
gerir áróður bandaríska auðvaldsins að sínum
málstað, en jafnframt er reynt að gera málstað
Kúbumanna sem allra tortryggilegastan. 1
Reykjavíkurbréfi þann 27. jan. 1963 eru fyrst
nokkrar vangaveltur um það hve erfitt sé að
sjá það fyrr en eftir á hvaða atburðir skipti
sköpum í sögunni, en segir svo orðrétt:
„Hitt eru engar ýkjur þó að sagt sé að eng-
inn einn atburður hafi á síðasta ári verkað
meira á hugi manna en viðureign stórveldanna
út af Kúbumálinu. Þá svarf svo til stáls og því-
líkar ógnir virtust yfirvofandi, að seint mun
falla úr hugum þeirra sem þá voru uppi.
Sjaldgæft er að stórveldi bíði jafn augljósan
stjórnmálalegan ósigur og Rússar gerðu þá.“
Það var valdajafnvægið milli stórveldanna,
sem Morgunblaðið bar fyrir brjósti. Smáþjóð
mátti ekki standa á eigin fótum, ef það raskaði
valdajafnvæginu auðvaldinu í óhag.
Hinn 13. febrúar er svo enn minnst á Kúbu.
Enn sem fyrr er gert sem minnst úr baráttu
Kúbumanna sjálfra en lögð því meiri áherzla á
það að illir og ágengir Rússar séu að hrella
Bandaríkin. Orðrétt segir blaðið:
„Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna telur sig
hafa örugga vitneskju um það að Rússar hafi
flutt burtu frá Kúbu hvers konar árásarvopn,
þar á meðal flugskeyti og stórar sprengjuflug-
vélar sem þeir höfðu komið þar fyrir. Hins-
vegar hafa ljósmyndir Bandaríkjamanna af
Kúbu sýnt að kommúnistar hafa komið þar
upp öflugum rússneskum varnarstöðvum sem
mannaðar eru rússnesku herliði. Er talið að 17
—20 þúsund rússneskir hermenn séu á Kúbu.
Þetta sýnir hversu mikla áherzlu Sovétríkin
leggja ennþá á stuðning sinn við einræðis-
stjórn Fidels Castros".
Samkvæmt mati Morgunblaðsins voru það
ekki Bandaríkin sem ógnaði öryggi Kúbu þrátt
fyrir beinan og opinberan stuðning við hina mis-
heppnuðu innrás í landið og síendurteknar ögr-
anir og jafnvel beinar hótanir eftir það. Nei,
það voru Sovétríkin sem ögruðu Bandaríkjun-
um.
Alþjóðahyggja Morgunblaðsins verður rakin
nánar í næstu blöðum.
Glaður og reifur...
Hinn 30. desember síðastliðinn voru
Sovétríkin 50 ára. Þau voru formlega
stofnuð 30. des. 1922 á 1. allsherjar-
þingi ráðanna, sem var skipað full-
trúum frá öllum sovétlýðveldunum,
sem þá voru stofnuð í löndum hins
forna rússneska keisaradæmis. Sam-
band sósíaliskra sovétríkja, sem er
hið lögtekna nafn Sovétríkjanna var
grundvaliað á meginreglum komm-
únistaflokksins um sjálfsákvörðunar-
rétt þjóða.
Fyrsti „forseti" Sovétríkjanna var
kosinn Kalinín, 47 ára gamall vélsmið-
ur og birtum við hér mynd af hon-
um í góðu skapi. — Kalinín var
raunar ekki titlaður forseti, bylting-
armenn notuðu engin borgaraleg tign-
arnöfn, heldur var embættistitill hans:
formaður miðstjórnar SSSR.
Myiidin er frá þeim tíma, er hann
tók við embætti.
Vonarstjarna Alþýðubandaiags.
Þröstur Ölafsson hagfræðingur
er fyrir nokkrum mánuðum kom
inn í fóðurkorn ríkisstjórnarinn-
ar. Hann bjó áður við þröngan
kost m. a. við útreikninga hjá
Dagsbrún á því hvernig hrakað
hafði kjörum verkamanna á heil-
um áratug. Með eftirfarandi
orðum sem birtust í Rétti nýlega
mun Þröstur telja sig vera að
þakka fyrrverandi og núverandi
húsbændum sínurn:
„En sárast er þó að sjá fram
á foringja verkalýðsins beita sér
fyrir verstu lausn en hindra þá
skárri.— En hjá því verður víst
aldrei komizt, því valdagirnd og
eiginhagsmunir mega sín alltaf
meir en yfirveguð skynsemi og
velferð þeirrar raunverulegu
heildar sem kölluð er þjóð."
Menningar- og fræðslusamband alþýðu.
Bréfaskóli SÍS og ASÍ
FRÆÐSLUHÓPUR UM
ALÞJÓÐAMÁLIÐ ESPERANTÖ
hefst miðvikudaginn 11. apríl n. k. kl. 20.30 í fræðslusal MFA,
Laugavegi 18, 3ju hæð, og er haldinn í samstarfi við Esperant-
istafélagið Auroro i Reykjavík.
Leiðbeinandi verður Hallgrímur S'æmundsson,
yfirkennari.
Tilkynningar um þátttöku þurfa að berast fyrir þriðjudags-
kvöld, 10. apríl, á skrifstofu MFA, Laugavegi 18, Símar: 26425
og 26562, og eru þar veittar allar nánari upplýsingar.
Þátttökugjaid er kr. 450,00, með kennslugögnum.
1