Ný dagsbrún - 01.11.1973, Síða 3

Ný dagsbrún - 01.11.1973, Síða 3
Nóvember 1973. NY DAGSBRCN 3 Styrjöld heimsvaldasinna Framhald af 2. síðu. inskárra og frekjufyllra í yfir- lýsingum sínum. Gyðingar reyndu að kaupa allt það land af Aröbum sem falt var. Pað varð þó aldrei mikið land sem þeir eignuðust þannig (sbr. N. d. júní) og þeir sem seldu voru aðallega landeigendur, sem voru búsettir í Sýrlandi. En þegar Israelsríki var stofnað 1948 var jarðnæði Araba tekið af þeim i stórum stíl og fjöldi þeirra flæmdur úr landi og hefur sú saga verið að gerast fram á þennan dag. Heimsstyrjöldin síðari var eins og hin fyrri vatn á myllu Síonista, enda hertu þeir nú á kröfum sínum. I maí 1942 settu þeir fram kröfur um tafarlausa stofnun Gyðingaríkis í Palest- ínu, ótakmarkaðan innflutning Gyðinga þangað undir stjórn Gyðingasamtakanna og myndun eigin hers. Pessar kröfur lögðu þeir fyrir bresku stjórnina 1945 og á þessum grundvelli var ísraelsríki stofnað 1948 að til- stuðlan breskra og bandarískra heimsvaldasinna. Gyðingar eiga engan „sögulegan rétt“ til Palestínu. Um það bil þrjár milljónir Gyðinga eru nú í ísrael. (í öðr- um Iöndum heims eru 12 millj. Gyðinga og þar af í New York einni fleiri en í Israel). Flestir þeirra eru innfæddir Austur- Evrópumenn, Pjóðverjar, Eng- lendingar, Bandaríkjamenn o. s. frv. í ótalmarga ættliði. Alda- Iangar trúar- og atvinnuofsókn- ir hafa viðhaldið gyðinglegum samfélögum i nokkurskonar „apartheid"- eða aðskilnaðarað- stöðu meðal vestrænna þjóða. Petta ástand hefur fóstrað hin- ar fáránlegu hugmyndir Sí- onismans um nokkurskonar „erfðarétt" að Palestínu, arftaka þeirra fomu, útdauðu þjóð- flokka sem byggðu landið á biblíusögulegum tíma. Pjóðsag- an um burtflutning allra hinna fornu gyðingaþjóðflokka frá Palestínu eftir fall Jerúsalem árið 70 að okkar tímatali er j furðu lífseig þó að hún hafi j ekki við neitt að styðjast ann- að en það, að Rómverjar hafa j eflaust aflað sér þræla meðal ' Gyðinga eftir sigur sinn svo sem venja þeirra var. Burt- flutningur Gyðinga til annarra Miðjarðarhafslanda er miklu eldri en fall Jerúsalem og ekk- ert einsdæmi á þeim tíma, sbr. Föníkumenn og Armeningar. Arabar hafa búið óslitið í Palestínu í 1300 ár og þegar Israelsríki var stofnað 1948 var meirihluti íbúanna arabiskur þrátt fyrir stöðugan innflutn- ing Gyðinga síðan fyrri heims- styrjöld lauk. Styrjaldarrekstur Israels er kostaður af bandaríska auðvaldinu. Árásarstyrjaldir Israels gegn Arabalöndunum hafa kostað gíf- urlegar fjárhæðir, miklu meiri en svo að ísrael sjálft með um það bil þrjár milljónir íbúa gæti risið undir. Stöðugur fjár- straumur erlendis frá, einkum frá Bandaríkjunum, ríki og auð- mönnum. Samkvæmt opinber- um skýrslum hafa framlög til j Israels í formi gjafa, styrkja og lána numið um 12,2 milljörðum dollara. Pað er áætlað að meira en 80% af þessu fé hafi komið frá Bandaríkjunum. 1 febrúar síðastl. sömdu Israelar um 550 milljón dollara bandaríska fjár- j hagsaðstoð. Mestur hluti þess fjár fór til eflingar flughersins. 1 stríði því sem hófst 6. okt. má segja að bandarísku heims- valdasinnarnir hafi endanlega kastað - grímunni. Peir hafa myndað „loftbrú" beinleiðis frá Bandaríkjunum til Israel til þess að birgja það hergögnum. Á fárra mínútna fresti lenda stórar flutningaflugvélar á ísra- elskum flugvöllum hlaðnar þungum hergögnum. Styrjöldin er nú eins og áður styrjöld heimsvaldasinna, fyrst og fremst bandarískra, gegn Araba- ríkjunum og þriðja heiminum j til þess að viðhalda yfirdrottn-j un sinni. MARX-LENINISMINN ALMENN HÖFUÐATRIÐI VII. Ríki og bylting LENIN: Ríki og bylting. ísl. þýðing. Reykja- vík 1938. önnur útg. 1970 (Heimskringla). Afstaðan gagnvart ríkinu er eitt af þýðing- armestu málum verkalýðshreyfingarinnar. Hægri menn og sósíaldemókratar halda því fram að ríkið sé hlutlaust og standi yfir stétt- unum. Slíka skoðun hefur t.d. Alþýðubanda- lagið hér, að ekki sé talað um Alþýðuflokkinn. I bók sinni um ríkið og byltinguna sýnir Lenin með órækum rökum að þesar hugmyndir eru gersamlega rangar og sviksamlegar. Hann dregur saman kenningar Marx og Engels um um ríkið og eykur mörgu nýju við úr reynslu verkalýðshreyfingarinnar síðan þeir voru uppi. Aðalefni bókarinnar er í mjög stuttu máli þetta: Ríkði er stéttardrottnunartæki. Pað er afleið- ing ósættanlegra stéttamótsetninga. Pað er verkfæri stéttar til þess að kúga aðrar stéttir. Ytri einkenni ríkisins eru alls kyns þvingun- arstofnanir, svo sem her, lögregla, fangelsi og skrifstofuvald Ríkisvélin hefur náð fullkomnun sinni í kapítalisku þjóðfélagi. Verkalýðurinn getur ekki yfirtekið ríkisvald borgarastéttarinnar og nota það i eigin þágu. Hann verður að mola það niður og setja í stað þess ríki öreiganna — það er öreigarnir skipu- lagðir sem ríkjandi stétt. Ríkisform borgarastéttarinnar eru mörg og margvísleg, en öll eru þau form fyrir alræði borgarastéttarinnar. Á breytingaskeiðinu frá kapítalisma til kommúnisma munu koma fram margskonar pólitísk form, en innihald þeirra mun verða hið sama, alræði öreiganna. Hlut- verk öreigaalræðisins er að brjóta á bak aftur mótstöðu arðræningjanna og ryðja brautina fyrir stéttlausa þjóðfélagið, — kommúnism- ann. Lenin ræðir ýtarlega um muninn á borgara- Iegu lýðræði og öreigalýðræði og skilgreinir reynslu Parísarkommúnunnar, sem var lýðræði öreiganna eins og Marx var Ijóst á þeim tíma. Við verðum að geta hugsað okkur Iýðræði án þingræðis, segir Lenin. Sósíaliska þjóðfélagið, fyrra stig kommún- ismans er sprottið upp úr skauti kapítalism- ans og ber „móðurmerki" hans á mörgum sviðum. Ríkisvald er ennþá nauðsynlegt og þar með kúgun, en stéttirnar hafa skipt um hlut- verk þar sem öreigarnir eru hin ríkjandi stétt. Það er, eins og Lenin segir, borgaraþjóðfélagið án borgara. Með þróun þess yfir í kommún- isma, þegar „sérhver maður starfar eftir því sem hann hefur hæfileika til og ber úr býtum eftir því sem þarfir hans krefja" (Marx) tekur ríkið að „visna upp" og deyr út að lokum. Undirstaðan - yfírbygglngin „-----Samkvæmt efnislegri söguskoðun er framleiðslan og endurn. í lífinu sjálfu þegar allt kemur til alls ráð- andi aflið í sögunni. Hvorki Marx né ég höfum nokkru sinni staðhæft meira. Þegar einhver kemur nú og rang- færir þetta á þann veg, að efnahagsatriðið sé eitt ráðandi, ummyndar hann þessa setningu í merkingarlaust, óhlut- lægt, fáránlegt orðagjálfur. Efnahagsástandið er undir- staðan, en mismunandi atriði yfirbyggingarinnar — pólit- ískar myndir sem stéttabaráttan tekur á sig og úrsht hennar — stjórnarskrár sem sigursæl stétt setur að unn- inni orustu o. s. frv. — réttarreglur, og meira að segja speglanir allra þessara raunverulegu viðureigna í heilum þeirra, sem þar taka þátt, pólitískar, lagalegar, heimspeki- legar kenningar, trúarskoðanir og þróun þeirra í kenn- ingakerfi, hafa einnig áhrif á baráttuna í sögunni, og hafa oft yfirgnæfandi áhrif á myndina sem hún tekur á sig. 1 víxlverkan allra þessara atriða gerist það að lokum að efnahagsþróunin gerir sig gildandi sem nauðsyn fyrir tilstilli óendanlegs grúa tilviljana (þ. e. a. s. hluta og at- vika, þar sem samhengið á milli er svo lauslegt eða ó- sannanlegt að líta má svo á að það sé ekki til og því óhætt að láta vera að kanna það). Ella væri auðveldara að heim- færa kenninguna upp á hvaða söguskeið sem vera skal, en að leysa jöfnu með einni óþekktri stærð." Fr. Engels: tJr bréfi til Biochs 1890. Herseta Framhald af 1. síðu. stöðu" Islands sem vopnlausrar þjóðar, að ekki nægi yfirlýsing frá íslands hálfu um að Banda- ríkin fái sömu aðstöðu á Is- landi og í síðasta stríði ef til ófriðar kæmi, að Keflavíkurstöð- in verði að vera til taks fyrir bandalagið sem herbækistöð og' sömuleiðis olíustöðin í Hvalfirði, að íslendingar mættu því að- eins segja upp Keflavíkursamn- ingnum, að bandalagið fengi þar sömu aðstöðu. Með þessum óformlegu skil- yrðum gerðist íslenska ríkið að- ili að Atlantshafsbandalaginu. Og með sjálfri aðildinni er fs- land stríðsaðili hvenær sem her- málaráð og fastaráð Atlants- hafsbandalagsins telur tilcfni gefast, með þeim ótakmörkuðu skuldbindingum sem því fylgja. Þetta er aðalatriði málsins. Magnús Kjartansson gengur framhjá þessum höfuðatriðum. Hann vitnar aðeins í gyllingar landsölumanna, sem aldrei hafa haft neina stoð í veruleikanum í því skyni að hvítþvo Atlants- hafsbandalagið og sýkna það af allri sök á herstöðvum hér. „Pað hefur verið og er siðferði- leg skylda(!) bandalagsins að halda þannig á málum aðhvorki sé erlendur her né herstöðvar á Islandi á friðartímum."!! segir Magnús. Herstöðvasamningurinn er sjálfstæður samningur að formi til milli íslands og Bandaríkj- anna. Hann er uppsegjanlegur og það væri áfangi að sigri, að segja honum upp, en ekki úr- slitasigur. En hann er gerður í nafni Atlantshafsbandalagsins og í þess þágu. Þó að herstöðvasamningnum væri sagt upp, tilheyrði Island eftir sem áður herstjórnarsvæði Atlantshafsflota bandalagsins, sem samkvæmt skipulagi þess hefur á hendi „varnir" Islands, þ. e. í reynd Bandaríkjaflotans. Petta skýrir m. a. skilyrði Ache- sons um „aðstöðu" á Keflavík- urflugvelli og í Hvalfirði. Pað hefur verið talið svo sjálfsagt mál að floti sem á að „verja" land með samþykki eigin stjóm- arvalda þess, hefði aðstöðu við strendur þess (flotahöfn), að ekki hefur þótt þurfa að setja það í bandalagssamninginn. Herstöðvar og herseta vofa því yfir íslandi hvenær sem herbandalagið telur þess þörf, þ. e. a. s. Bandaríkin, því að í herbandalagi ræður sá sem vopnin hefur, einkum kjarnorku vopnin. Magnús Kjartansson er sá maður sem mest og lengst allra Islendinga hefur rætt og ritað gegn aðild að Atlantshafsbanda- laginu og herstöðvum, þó að á því hafi orðið alllangt hlé. Þeg- ar hann-nú - tekur til máls til þess að boða skilning landsölu- mannanna 1949 og síðan á eðli og tilgangi Atlantshafsbanda- lagsins, er það ekki gert að um- talsefni hér í því skyni að krefj- ast þess að Magnús Kjartans- son standi við neitt af því sem hann hefur sagt, heldur til þess að leiða hann fram sem vitni um það, hver er raunveruleg afstaða Alþýðubandalagsins til þessa máls. En hann er ekki einn til vitnis um það. Alþýðu- bandalagið hefur að heita má Iagt niður allan andróður gegn aðild Islands að Atlantshafs- bandalaginu og herstöðvamálið reyna áróðursmenn þess að skilja meira en efni standa til frá bandalagsaðildinni. Peir reyna að haga svo rökum sín- um fyrir brottför hersins að þau snerti sem minnst Atlants- hafsbandalagið, svo sem þannig, að samkomulag sé nú svo gott og batnandi milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna að „óhætt" sé að láta herinn fara, eða að nið- urlagning herstöðvarinnar hindri ekki „eftirlitsstörfin" (hernjósn- irnar), því að þau geti haldið áfram frá öðrum löndum! Al- þýðubandalagsforingjamir drápu Samtök hemámsandstæðinga, sem var stefnt gegn hvom- tveggja, Natóaðild og hersetu og höfðu talsverðan hljómgrunn millistétta svo sem bænda, og stofnuðu í þeirra stað samtök herstöðvaandstæðinga þar sem ekki mátti nefna uppsögn að- ildar að Atlantshafsbandalaginu sem fjarlægara stefnumark! Alþýðubandalagið er borgara- Iegum flokkur og þjónar því borgaralegum hagsmunum eins og allur pólitískur ferill þess ber vitni um. Ráðherrar þess eru nú t. d. önnum kafnir við að auka gróðamöguleika at- vinnurekenda ýmist með því að láta ríkið kaupa handa þeim atvinnutæki (skutttogara) eða ‘gei'a þá að þátttakendum í gróðafyrirtækjum erlendra auð- hringa hér á landi. Þess er því ekki að vænta að slíkur flokk- ur berjist í alvöm gegn banda- lagsaðildinni sem borgarastéttin telur hagsmtmamál sitt. En Alþýðubandalagið á aðal- fylgi sitt meðal verkamanna og millistétta sem ekki hafa hags- muni af aðild að hernaðarbanda Iagi. Pess vegna em foringjar þess og áróðursmenn að berja skjöldinn gegn Atlantshafsbanda laginu og herstöðvunum, eink- um fyrir kosningar. Magnús Kjartansson hefur meira að segja boðað að fljótlega verði látið „reyna á" viðhorf Alþing- is gagnvart Atlantshafsbanda- laginu, vel vitandi að tillagan um úrsögn yrði annaðhvort felld eða svæfð! Það kostar því ekkert — og það er skammt til kosninga! m _ . ni /. i i v 'AiAit; í2*s’ 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 Græðum Iandið geymum fé. BtJMMRRANKI ISLANDS

x

Ný dagsbrún

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný dagsbrún
https://timarit.is/publication/1026

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.