Stormur - 20.03.1936, Page 2
2
STORMUR
nú ritstjóri Nýja dagblaðsins, Sigfús Halldórs frá Höfnum,
hröklast frá því við lítinn orðstír. Reyndist hann liðónýtur
blaðamaður, enda má mikið lífsfjör vera í þeim manni,
sem getur unnið vel fyrir deyjandi flokk, sem engin áhuga-
mál hefir önnur en þau, að hanga í völdunum og totta
beinin og dúsurnar. Heldur sýnist og valið á eftirmanni
F;sa hafa tekist aumlega. Er það Þórarinn nokkur Þórar-
insson, sem við ritstjórninni hefir tekist, innantómur
blöðrubelgur, sem nokkrum sinnum undanfarið hefir þreytt
hlustendur útvarpsins. — Flokknum mun því síst veita af
hjálp Jónasar Þorbergssonar, en lítil verður hún ef hann
ætlar aðallega að fjargviðrast og öfundast útaf rekunum
á fjöru íhaldsins, en getur ekki bent á eina einustu viðar-
spækju á Framsóknarfjörunni. En það mun vera svo, að
hvorki Jónas eða aðrir geta það ekki, því að fyrir löngu
er hætt að reka á þær fjörur. — Þær eru rekalausar og
gróðurlausar, aðeins glittir á stöku stað í sprungna,
feyskna og maðksmogna rafta, sem ei’u að hverfa í sand
gleymskunnar að fullu og öllu.
Laun
starfsmanna ríkisins
Eitt af fi'umvörpum þeim, sem nú liggja fyrir þinginu,
og telja má með þeim merkari, er frumvarp það sem Jör-
undur Brynjólfsson ber fram um starfsmenn ríkisins og
laun þeirra. Frumv. þetta er svo ti lkomið, að skipuð var
milliþinganefnd til þess að athuga og koma fram með til-
lögur um starfsmenn ríkisins, laun þeirra o. fl. Áttu þrír
flokkar fulltrúa í nefndinni. Af Sjálfstæðisflokksins hálfu
voru þeir Kristján Albertsson Og Kári Sigurjónsson, frá
Framsóknarflokknum Jörundur Brynjólfsson og Arnór
Sigurjónsson Og frá socialistum Gunnar M. Magnús.
Þessi nefnd sat alllengi á rökstólum, eins og launaðra
nefnda er gjarnan siður, og lét allmikið starf eftir sig
liggja, er hún skilaði af sér, þótt sumt af því, t. d. tillögur
hennar um sameining sýslanna, muni lítinn árangur bera.
En þótt sumar tillögur nefndarinnar séu allfáránlegar
og verði aldrei til greina teknar, þá var þó ýmislegt nýtt
í tillögum hennar og þar á meðal frumvarp það sem minst
hefir verið á hér að framan.
Á þinginu í fyrra bar Jörundur Brynjólfsson þetta
frv. fram, því að hann var þá sá eini af nefndarmönnun-
um, sem sæti átti á Alþingi, en frumv. varð ekki útrætt
og því ber hann það nú fram öðru sinni, en tæplega mun
þess að vænta, að það nái samþykki á þessu þingi.
Tæplega mun þetta mál verða gert að pólitísku
flokks- eða flokkamálum, en það sem tefur framgang þess
er það, að hér eiga fjöldi manna hlut að máli, og missa
sumir allverulegan skamt úr askinum sínum, ef frv. verð-
ur að lögum. Eru sumir þessara manna alláhrifamiklir og
róa því fast í einstaka þingmenn um að vera gegn frum-
varpinu eða gera á því breytingar sér í hag.
Hin mesta þörf er þó á því, að skynsamleg lög verði
sett um þetta efni, því að nú er ringulreið mikil og ósam-
ræmi í launakjörum starfsmanna ríkisins. Bera sumir
starfsmenn þess of skarðan hlut frá borði, eða aðrir maka
krókinn meria en verðugt er, sérstaklega vegna ýmissa
aukasposlna, sem þeir hafa. Allmjög ber og á því nú, að
menn, sem segja má, að gegni jafnábyrgðarmiklum störf-
um, búi við mjög mismunandi launakjör,' jafnvel svo þús-
undum króna nemur, og er brýn nauðsýn á, að lagfæra
slíkt misrétti. • 1 ■'
Þá er og einnig nú mikið ósamræmi milli launa sumra
starfsmanna ríkisins, sem standa beint í þjónustu þess, og
annara starfsmanna, sem eru í þjónustu stofnana, sem rík-
ið ýmist ber ábyrgð á, svo sem banknana, eða styður með
fjárframlögum, eins og Fiskifélagið, Búnaðarfélagið o.
s. frv.
Enn er svo það, að launakjör starfsmanna þessara
hálfopinberu stofnana, eða hvað á að kalla þær, geta
verið mjög misjöfn innbyrðis. Starfsmaður í Útvegsbank-
anum getur t. d. haft hærri eða lægri laun en starfsbróðir
hans í Landsbankanum o. s. frv.
Loks er svo, að ef skynsamleg og réttlát löggjöf
kemst á um þetta efni um starfsmenn ríkisins, þá er þess
að vænta, að laun starfsmanna hjá einkafyrirtækjum sníði
sig eftir henni, en ef vel á að vera á sem mest samræmi
að vera í launakjörum beggja þessara starfsmannaflokka,
svo að hæfir menn veljist í hvorutveggja flokkana.
II.
Frv. það, sem hér um ræðir er bálkur mikill, 105 gr.
og fylgdi löng greinargerð frá milliþinganefndinni, sem
vísað er til í frv. þessu.
Ekki verður frv. þetta rakið hér, en þeim til fróð-
leiks, sem hafa það ekki, verða birt laun nokkurra helstu
starfsmanna ríkisins, eins og þau eru áætluð, og til hægð-
arauka verða þeir taldir saman í flokki, sem sömu laun
eru ætluð. Má og ætla, að það sé einmitt upphæð laun-
anna, sem flestir láta sig mestu skfita, ekki aðeins þeir,
sem njóta eiga, heldur og hinir, sem beint og óbeint
■gjalda þau.
I. flokkur.
Aðalbankastjóri Landsbankans kr. 16.000. (I þessum
flokki er ekki nema þessi eini maður, og eru honum ætl-
uð hæst laun skv. frv.).
II. flokkur.
2 bankastjórar Landsbans og aðalbankastjóri Út-
vegsbankans og Búnaðarbankans kr. 12.000.
III. flokkur.
Forsætisráðherra og sendiherra íslands kr. 11.000.
IV. flokkur.
Dómstjóri Hæstaréttar, forstjórar einkasala ríkisins,
2 ráðherrar og fiskimálafulltrúi í Suðurlöndum kr. 10.000.
V. flokkur.
Skrifstofustjórar stjórnarráðsins, 2 dómarar í Hæsta-
rétti, lögreglustjóri, tollstjóri, vegamálastjóri, lögmaður,
landlæknir, biskup, landsbókavörður, fræðslumálastjóri,
síma- og póstmálastjóri, og 2 bankastjórar Útvegsbankans
kr. 8000.
VI. flokkur.
Skrifstofustjóri Alþingis, útvarpsstjóri og útgerðar-
stjóri ríkisútgerðarinnar, útibússtj. á Akureyri, ísafirði,
Eskifirði og Selfossi og yfirlæknar á Kleppsspítala og Víf-
ilsstaðahæli kr. 7500.
VII. flokkur.
Aðalendurskoðandi ríkisins og fulltrúi stjórnard. ut-
anríkismála, skipstjórar á varðskipum ríkisins, yfirlæknar
Landsspítalans, yfirlæknir á Kristneshæli, Háskólaprófess-
orar, þjóðskjalavörður, þjóðminjavörður, forstjóri rann-
sóknastofu ríkisins, forstj. rannsóknastofu Háskólans, for-
stjóri veðurstofunnar, rektorar Mentaskólans í Rvík og n
Akureyri, hagstofustjóri, forstjóri tryggingastofnunar rík-
isins, fiskimálastjóri, forseti fiskiþingsins, búnaðarmála-
stjóri, aðalbókari og aðalgjaldkeri Landsbankans og
vegsbankans, skrifstofustj. Útvegsbankans, bókari Bún-
aðarbankans kr. 7200.
Lengra verður nú þessari flokkun ekki haldið áfram,
enda mun flestum þykja nóg komið af allskonar stjór.um-
— En, eins og sjá má.af henni eru tiltölulega mjög.fn11
.menn í hæstu launaflokkunum, eða þeim, sem eru,hæm