Stormur


Stormur - 21.09.1942, Qupperneq 1

Stormur - 21.09.1942, Qupperneq 1
STORMU R Ritstjóri: Magnús Magnússon XVIII. árg. Reykjavík 21. sept. 1942, 22. tölubl Jeremfasarbréf Reykjavík í sept. 1942. Gamli kunningi! Nær því allar þjóðir heims búa nú við margvíslegar hörmungar og leggja á sig þungar fórnir. — Sumar fórna milljónum mannslífa á vígvöllunum, aðrar búa við ófrehi, áþján og skort, en öllum er það sameiginlegt, að þær heyja hina hörðustu fyrir baráttu fyrir tilveru sinni, sjálf- stæði og þjóðarmetnaði. Vér íslendingar höfum fram að þessu verið nálega eina þjóðin, sem hefir baðað i rósum, grætt á vitfirringunni, grætt á hörmungum annarra. Upp úr skuldafeni heíir þjóðin og ríkið risið og hefir nú hjer um bil jafnmiklar áhyggjur af auð sínum og ríkidæmi og hún hafði af ör- birgðinni áður. En þrátt fyrir þetta vex ágirndin og græðgin með hverri krónunni, og um það eitt er hugsað hjá flestum að klófesta sem mest og allur fjöldinn brýtur líka heilann uin það, hvernig hann á að eyða sem mestu, hvernig hann á að fjarlægjast sem mest hið einfalda, látlausa líf. Sjómennirnir neita að sigla nema þeir fái kaup, sem nemur mörgum tugum þúsunda á ári, bændurnir draga að slátra {rangað til sálnaveiðararnir hafa ákveðið kjöt- verðið að minnsta kosti þriðjungi hærra en framleiðslu- kostnaðinum nemur, og verkamennirnir neita að afgreiða skipin, nema öllum kröfum þeirra sé fullnægt. Hver stétt, hver einstaklingur blínir á sjálfa sig og missir sjónar á hagsmunum þjóðarinnar allrar og gætir þess ekki heldur að með þessu blinda kapphlaupi eru einstaklingarnir og stéttirnar líka að grafa undan sinni eigin gæfu, gera eignir sínar — rauðu seðlana, sem augað mænir eftir — verðlausar. Og jafnframt því, sem kaupkröfurnar margfaldast minka afköstin. Fjöldi manna hefir það tvennt fyrir aug- um að afla sem mest en afkasta sem minnstu, ganga ólúinn heim að loknu dagsverki. Á nú þjóð, sem þannig fer að ráði sínu skilið að sleppa við hörmungar þessarar styrjaldar? Og hvernig mun þjóð sem þannig fer að, standast samkeppnina við þær þjóðir, sem hlotið hafa eldskírn þrauta ogjjjáninga og sleppt allri einstaklingshyggju og síngirni og fórnað öllu fyrir ætt- jörðu sína, sjálfstæði og frelsi? Brennandi af frama og viðreisnarþrá' mun jafnt ungur maður sem gamall, jafnt kona sem karl þessara þrautreyndu og marghertu þjóða hefja viðreisnarstarfið, en mun þá þjóðin, sem gleymdi skyldum sínum við ættjörðina, kæfði fórnarlundina og lá í innbyrðis deilum, jafnt út af smáu sem stóru, verða lengi að komast aftur á vonarvölina, hverfa aftur á bóla- kaf í kviksyndi skulda og | lánsstraustsleysis, steypast á kaf í Eysteinspyttinn, sem hún var drukknuð í, eftir 15 ára stjórn síngjarnra ojj valdasjúkra sérhagsmunamanna. Þinn einlægur Jeremías. Je§aja§ Og Jahve sagði: Sökum þess að dætur Zionar eru drembilátar og ganga hnakkakertar, gjóta út undan sér augunum og tifa í göngunni og láta glamra í öklaspenn- unum, þá mun drottinn gera blóðugan hvirfil Zionardætra og Jahve gera bera blygðan þeirra. Á þeim degi mun Jah- ve burt nema skart þeirra, öklaspennurnar, ennisböndin, hálstinglin, eyrnaperlurnar, armhringana, andlitsskýlurn- ar, motrana, öklafestarnar, beltin, ilmbaukana, töfraþing- in, fingurgullin, nefhringana, glitklæðin, nærklæðin, möttlana og pyngjurnar, speglana, líndúkana, vefjarhett- ina og slæðurnar. Og koma mun ódaunn fyrir ilm, reiptagl fyrir belti, skalli fyrir hárfléttur, aðstrengdur hærusekkur í stað skrautskikkju, brennimerki í stað fegurðar. Menn þínir munu fyrir sverði falla og kappar þínir í orrustu. Og hlið hennar munu kveina og harma og. hún sjálf mun sitja einmana á jörðunni. Vei þeim, sem rísa ára morguns til þess að sækjast eftir áfengum di'ykk, sem sitja fram á nótt eldrauðir af víni. Gígjur, hörpur, bumbur og hljóðpípur kveða við og vínir flóir við samdrykkjur þeirra, en gjöfum Johve gefa þeir eigi gaum og það, sem hann hefir með höndum, sjá þeir ekki. Fyrir því mun lýður minn, fyrr en af veit, fara í útlegð og tignarmennirnir kveljast af hungri og svall- ararnir vanmegnast af þorsta. Fyrir því vex græðgi Heljar og mun glennir ginið, sem mest hún má, og skrautmenni landsins og svallarar, hervaldamennirnir og gleðimenn- irnir steypast niður þangað. Og mannkind skal beygjast og maðurinn lægjast og augu dramblátra verða niðurlút. En Jahve hersveitanna mun háleitur verða í dóminum og hinn heilagi guð sýna heilagleik í réttvísi. Og lömb munu ganga þar á beit,- eins og á afrétti og hinar auðu lendur ríkismannanna munu geitur upp eta. Bréf Páls postula til Rómverja: ,, . . . Og þessvegna hefir guð ofurselt þá (mennina) fýsnum hjarta þeirra til saurlifnaðar, til þess að þeir sín á milli smánuðu likami sína. Þeir hafa umhverft sannleika guðs í lýgi og göfgað og dýrkað skepnuna í stað skapar- ans, hans sem er blessaður að eilífu. Amen. Fyi’ir því hefir guð ofurselt þá girndum svívirðingar- innar, því að bæði hefir kvenfólk þeirra breytt eðlilegum samförúm í óeðlilegar og eins hafa líka karlmennirnir hætt eðlilegum samförum við kvenmanninn og brunnið í losta sínum hver til annars; karlmenn framið skömm með karlmönnum og tekið út á sjálfum sér makleg gjöld villu sinnar. Og eins og þeir hii'tu ekki um að varðveita þekking- una á guði, ofurseldi guð þá ósæmilegu hugarfari, svo að þeir gjörðu það, sem ekki er tilhlýðilegt, fylltir allskonar rangsleitni, vonsku, ágirnd, illsku, fullir öfundar, mann- drápi, deilu, sviksemii, illmennsku, rógberar, bakmálugir, guðshatarar, smánarar, hrokafullir, gortarar, hrekkvísir, foreldrum óhlíðnir, óskynsamir, óáreiðanlegir, kærleiks- lausir, miskunnralausir . . . “.

x

Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.