Byggingarlistin - 01.01.1956, Síða 8

Byggingarlistin - 01.01.1956, Síða 8
TILLAGA „2000 Arkitekt: Sigvaldi Thordarson ÞaS skal tekio fram þegar í byrjun, að samkeppni sú, sem hér um ræðir, er fyrst og fremst hugmyndasam- keppni um heildarfyrirkomulag svæð- isins, en ekki um einstök smáatriði, t. d. hvernig bakkar Tjarnarinnar verða og úr hvaða efni þeir verða gerðir, hvernig gengið verður frá gangstígum, stéttum og akbrautum, hvaða gróðrartegundum verður plantað o. s. frv., eins og fram kemur í útboðslýsingu, því þetta eru „detail- atriði“. ASur en lengra er haldið, er vert að gera sér grein fyrir eftirfar- andi atriðum: 1) Byggingum þeim, sem við Tjörnina standa, verðmætum þeirra og aldri. 2) Aðalumferðaæðum, er liggja að svæðinu og um það. Af byggingum þeim, er við Tjörnina standa, eru að- eins Alþingishúsið og Dómkirkjan, sem hafa sögulegt og listrænt gildi. Flestar aðrar byggingar á svæðinu eru gamlar timburbyggingar, sem ganga úr sér á næstu áratugum. Þær fáu steinbyggingar, sem þarna standa, eru einnig af eldri gerð, t. d. Þórsham- ar, Herðubreið, Tjarnarbíó og Slökkvistöðin. Það er því ljóst, að ástæðulaust er, að þessar byggingar hafi nokkur veruleg áhrif á endanlegt skipulag við Tjörnina. ASalumferða- göturnar á þessu svæði verða Frí- kirkjuvegur og Suðurgata, en að sunnan Hringbraut. Suðurgata er eðlilegri umferðaæð frá miðbænum í Skerjafjörð en Tjarnargata, sem á að vera „promenade" gata. Eins og Skothúsvegurinn er nú, veldur hann óæskilegri bílaumferð í íbúöahverfum báðum megin Tjarnar- innar. I stað þess ætti að beina um- ferðinni að Hringbrautinni, sem er aðalbraut. DÓMNEFNDARÁLIT : Byggingar við Tjörnina: Til þess að gera umhverfi Tjarnar- innar eins glæsilegt og vera ber, þarf að staðsetja þar ýmsar meiriháttar byggingar. Sjálfsagt má telja, að við Tjörnina rísi ráðhús bæjarins, þar eð heppilegri lega verður ekki fundin nærri miðbænum, en central lega slíkrar byggingar verður að teljast mjög æskileg. Framh. á 28. bls. Lögun tjarnarinnar frekar hörð, en frá- gangur og tillögur ura fyrirkomulag tjarnar- bakkanna athyglisvert. Göngubrú yfir tjörn- ina skemmtilegri heldur en bifreiðabrú, en vafasöm vegna bílaumferðar milli bæjar- hlutanna og kostnaðarsöm framkvæmd. Hin þétta byggð við Tjarnargötu miður heppileg, krefst allmikiilar breikkunar á Tjarnargötu og eyðileggur hina fögru brekku. Æskilegast að engar byggingar yrðu í Tjarnargötu-brekkunni. Hallveigarstaðir vel staðsettir sé þessi lóð valin. Skipulag norðan Tjarnar athyglisvert, fallegt að opna svæðið að þinghúsinu. Byggingar við Fríkirkjuveg rýra lóðir við Laufásveg. Tillögur um syðri Tjörnina kuldalegar, miður heppilegt að staðsetja byggingu þar, nema „musiktribune“. 6 BYGGINGARLISTIN

x

Byggingarlistin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.