Byggingarlistin - 01.01.1956, Blaðsíða 27

Byggingarlistin - 01.01.1956, Blaðsíða 27
UM HÚSGÖGN Peter Hvidt og 0. Mölgard, Danmökk Hans J. IP'egner, Danmörk Carlo Mollino, Italía Eelo Sarinen, U.S.A. Mies van der Rohe, Þýzkaland Bruno Mathson, Þvíþjóð Það er erfitt að gera fólki skiljanlegt, að nútíma húsgögn verður að sníða eftir því hlutverki, sem þeim er ætlað. Nú orðið vitum við þó, að stóllinn á að vera til þess að sitja á. KAARE KLI NT stofna til samvinnu við þá, sem geta teiknað húsgögn, leiðbeint þeim og frætt um þessa hluti, og halda sýningu á hverju hausti, þar sem fólki er gef- inn kostur á því að sjá það bezta, sem þeir framleiða, þar sem það getur kynnzt því ljóslifandi, hvernig hægt er að úthúa heimilið fegurst og hag- anlegast. Allt of fáir húsgagnafram- leiðendur bera hag fólksins fyrir brjósti. Þeir skilja ekki hlutverk sitt, þeir eru of miklir kaupmenn. Hvernig á því stendur, að menn eru að föndra við að gera eftirlíkingar eldri hús- gagnagerða, veit ég ekki, en vissulega er það vanmat á samtíð okkar að vera að rembast við að smíða eitthvað, sem síðan er kallað renaissance, rococco o. s. frv. Þetta á sjaldnast nokkuð skylt við þá stíla, en er aftur á móti í algeru ósamræmi við aldarhátt og lífsvenjur okkar. Húsgögn okkar samtíðar eru fóstr- uð af okkur sjálfum, þau eru hluti af menningarlífi því sem við lifum. í þeim má finna þá sömu hugsun, þann sama anda, sem ríkir umhverfis okkur í þeim hlutum og tækjum, sem við notum dags daglega og fengið hafa form sitt af hagnýtri reynslu og sköp- unargleði nútímans. Húsgögn vorra tíma einkennast af einföldu og lát- lausu formi, þau eru miðuð við líf okkar og þarfir, þau eru raunhæfir hlutir, sem eiga að gera lif okkar þægi- legra og heimilin vistlegri. Áherzla er lögð á hið nytsama fyrst og fremst. Þau hafa mjúkar línur og hreina fleti, án prjáls og óþarfa skrauts, vönduð að frágangi, en þó ekki viðameiri en þörf krefur. Efni þeirra og litir eru í fullu samræmi við form þeirra. Þegar þau eru bezt, eru þau listaverk — hag- nýt listaverk.

x

Byggingarlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.