Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 29

Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 29
 uppdrætti, en ekki á einu máli um röð þeirra. Eins voru nefndarmenn ekki sam- mála um öll einstök atriði greinar- gerðarinnar, t. d. um skipulag tjarn- arbrekkunnar og byggingar þar o. fl.“ Val dómnefndar er eðlilegt m. t. t. útboðsskilmálanna þar eð þessir upp- t drættir uppfylla þá bezt. Uppdráttur merktur 8 þó allra bezt. Eg vil þó líta svo á að tillagan Harpa hafi verð- skuldað innkaup og betur unnin átti hún 1. verðlaun vegna þess að á henni má byggja skipulagslausn verðuga til útfærslu af stórhuga kynslóð, er vill skila framtíðinni jákvæðu framlagi til skipulagningar höfuðborgarinnar. Ágreiningurinn um röðina er eðlileg, ur, en þó virðist mér meiri reisn yfir þeirri tillögu er 1. verðlaun hlaut en hinum og því eðlilegt að hún hljóti þau. Þó fer ekki framhjá manni mis- ræmið í dómsúrskurði og dómsgrein- argerðum um einstakar tillögur hvað snertir byggð við tjörnina. Er það enn frekari vottur afstöðuleysisins til hinnar skipulagslegu hliðar sam- keppninnar. Dómsúrskurður dómnefndar var: 1. verðlaun. Tillaga merkt 2000 og reyndist höfundur vera Sigvaldi Thordarson arkitekt. 2. verðlaun. Tillaga merkt Vje og reyndist höfundur vera Gunnlaugur Halldórsson arkitekt. 3. verðlaun. Tillaga merkt 8 og reyndust höfundar vera Sigurður Guðmundsson og Eiríkur Einarsson arkitektar. Keyptur uppdráttur merkur Til- raun reyndist vera eftir Ágúst Pálsson arkitekt. Dómnefnd var skipuð þannig: Guðmundur Ásbjörnsson, forseti bæjarstjórnar; Vilhjálmur Þ. Gísla- son, form. Fegrunarfélags Reykjavik- ur; Bolli Thoroddsen, bæjarverkfræð- ingur; Bárður ísleifsson, arkitekt, tilnefndur af Húsameistarafélagi ísl.; Sigmundur Halldórsson, arkitekt; Gústaf E. Pálsson, verkfræðingur, til- nefndur af Verkfræðingafél. Islands; Þór Sandholt, forstöðumaður skipu- lagsdeildar bæjarins. Skúli H. Norðdahl. Vinniistofan Brantarholti 18 Sími 5585 □ Húsamálun Skiltagerð . Emaillering □ Ósvaldur Knudsen Daníel Þorkelsson Landssmiðjan annast hvers konar nýsmíði og viðgerðir til lands og sjávar A SfMI 1680 BYGGINGARLISTIN 27

x

Byggingarlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.