Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 33

Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 33
njóta sín og þaðan á einnig að njóta þessarar útsýnar. Dómkirkjan er náinn granni tjarn- arinnar og stórhýsa þeirra, er vænta má, að reist verði norðan við Vonar- stræti. Hér er lauslega sýnd tillaga um viðbót við kirkjuna og nýjan kirkju- turn í sambandi við þessa nýju álmu. I þessu sambandi skiptir mestu máli afstaða turnsins og áhrif hans á svip miðbæjarins og umhverfis tjarn- arinnar. Turninn gnæfir hátt yfir hús- in við Vonarstræti og yfir kirkjuna fyrir enda Pósthússtrætis og mundi gefa kirkjunni og strætinu nýjan svip og bragðmeiri en nú er. Trjábelti í Hljómskálagarðinum snúa aðallega frá austri til vesturs, á nokkurri upphækkun eða ávala. Með- fram þeim að norðanverðu er komið fyrir allþéttum rimlagirðingum, sem eru í rauninni betri til skjóls fyrir veðrum en samfelldar girðingar og ásjálegri í þessu umhverfi. Trén skal gróðursetja í breiðum beltum (ca. 10 m.), þar sem því verður við komið. Sunnan undir þessum trjábeltum má koma fyrir bekkjum og blóma- beðum. Meðfram Sóleyjargötu og Hring- braut mætti gróðursetja björk eða norskan álm. Auk þess mætti hafa þar eitthvað af Alaskaösp. Sömu tegundir mætti einnig bafa innar í garðinum. I Bjarkargötugarðinum þarf að gróðursetja ný og betri tré, í skjóli hinna gömlu (þar mun þó sums stað- ar vera grunnt á móhellu). Þarna mætti setja niður góða björk og í skjóli hennar t. d. sitkagreni, eða blá- greni. Blómabeð yrðu að sjálfsögðu helzt þar sem trjágróður eða annað er til skjóls. Steinahrúgur með gróðri koma einnig til greina. Fjölærum blómum skal velja skjólgóða staði. Bílastæði eru á tveim stöðum við garðinn. Annað við Njarðargötu, milli Sóleyjargötu og Hringbrautar, en hitt á tjarnarbakkanum við norð- urenda Sóleyjargötu. Hagsýnir húseigendur nota SNOWCEM Litaúrval jyrir hendi Snowcem er auðvelt í notkun Það fegrar og verndar hús yðar í skini og skúr H. BENEDIICTSSON & Co.h.f. Hafnarhvoll . Sími 1228 SNOWCEM Áferðarfallegt og rakaverjandi efni er mjög áríðandi á íbúðarhús, verksmiðju- byggingar og byggingar til sveita. SNOWCEM-STEINMÁLNING uppfyllir þessar kröfur og myndar fallega, rakaverjandi og harða húð á sementsveggi og asbestplötur. SNOW-CEM STEINMÁLNING er mjög ódýr og auðveld í notkun. J. Þorláksson & lYorðmann h.f. Bankastrœti 11 . Simi 1280 BYGGINGARLISTIN 31

x

Byggingarlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.