Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 35

Byggingarlistin - 01.01.1956, Page 35
3) Áritun blaðsins við leikfimihúsið ruglar svo hæðum, að áhorfendasvalir verða undir gólfi leikfimisalar. Þeir sem eru vanir að lesa teikningar ættu að komast lijá slík- um mistökum. Ég bið mikillar afsökunar á að ég hef skrifað svo mikið um eigið verk, en afsök- unin er að það þekki ég. Hins vegar er eins og áður er sagt kynningin svo ófullkomin, að ég lief ekki rétt til að dæma, þó að ég telji mig skynja fleiri misfellur. 5. H. N. Hávaðamál PAULSMITH Reykjavík . Símar: 1320 og 1321 . Símn.: Elektrosmith . Pósthólj: 188 UMBOÐSMAÐUR FYRIR: ASE, Vásteras: Rafmagnsvélar og búnaður. A/II Karlstads Mek. Verkstad, Karlstad: Vatnstúrbín- ur og KaMeWa skipaskrúfau. Jungnerbolaget, Stockholm: Ljósavélar, geymar o. fl. í báta og skip. Skandinavisk Trerör A/S, Oslo: Trépípur fyrir aflstöðvar, neyzluvatnsleiffslur, votheys- þrær. Landis & Gyr S. A., Sviss: Rafmagnsmælar. Whirlpool Corporation, U. S. A.: Strauvélar, sjálfvirkar þvottavélar og aðrar heimilisvélar. Og fleiri 1. flokks verksmiðjur. Sprengiefni. Carbid. Allt er að rajmagni lýtur. Sagt er, að nú séu til nvjar reglur um notkun bifhjúla. Ekki mun vanþörf á slíkum reglum. Hin mikla slysahætta, er þessi farar- tæki virðast hafa í för með sér, hefur orðið mörgum áhyggjuefni, ekki sízt foreldrum óþroskaðra unglinga, er komast yfir þessi tæki. Munu hin nýju fyrirmæli fjalla um þessa hlið málsins fyrst og fremst. Til er þó önnur hlið á þessu máli, ekki ómerkileg. Hávaðinn af þessum farartækj- um, sem ekki hafa neinn umbúnað til hljóð- deyfingar, er að verða plága. Skellirnir og hvinirnir í þessum reiðskjótum eru stund- um svo óstjórnlegir, að þeir minna helzt á hríðskotabyssur og styrjöld. Þetta er ekki boðlegt fólki, sem vill hafa friff — að minnsta kosti svefnfrið. Skarkalinn af öðr- um farartækjum ætti alveg að nægja, þótt ekki sé á hann bætt. Þetta er samt ekki nóg! Olóðir rnenn æpa á götum úti um miðjar nætur. Á torgum og gatnamótum ■eru hátalarar spúandi ranun- fölskum jassi og klámsöngvum. Og þar erit einnig lifandi hátalarar ógnandi vegfarend- um með helvíti og kvölunum, svo að vinnu- friður er enginn í nálægum húsum. I flestum minniháttar veitingahúsum hafa gestirnir hvorki matfrið né málfrelsi fyrir ámáttleg- ustu tegundum af „músik“ og söng frá út- varpi. Á þetta verður þú að ldusta, annars færðu engan mat hér! Hinn sívaxandi hávaði borganna er vanda- mál, sem krefst úrlausnar, enda eru víða gerðar ýtarlegar ráðstafanir til að draga úr plágunni og nefndir sérfræðinga settar á rökstóla í því skyni. Þeir sem stjórna heil- brigðismálum og lögreglu, eiga hér að sjálf- sögðu hlut að máli. Hljóðið er máttugt og ekki æfinlega til góðra hluta, þótt það geti læknað gigt og drepið gerla, að sögn. Þaff verður ekki mælt eða vegið, hve víð- tæk áhrif þessi skarkalap’ága kann að bafa á andlega og líkamlega heilsu borgarbúans. Hitt er víst, að flestir reyna að forða sér undan plágunni, ef þeir eiga kost á friðar- stund. Sig. Guðmundsson. Byrjum bráðlega jramleiðslu á hurðum og gluggum úr anodize- máluðu alúminíum samkvœmt svissnesku einkaleyfi (Koller). Talið við oss í tíma. BYGGIR H. F. SAMBAND ÍSL. BYGGINGARFÉLAGA Reykjavík . Sími 6069 FRAUÐSTEYPA Frauðsteypa er seld í plötum, blokkum og í lausu máli. (Cellebeton) er ólífrænt einangrunarefni. Einangrunarhæfileikinn byggist á ótal loftbólum, sem eru inni- lokaðar í steypunni (3000—8000 pr. cm3). Varmaleiðslutala h-m-°c kcal Eðlisþyngd: 0,3 t/m3. BYGGINGARLISTIN 33

x

Byggingarlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.