Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Page 54

Nýtt Helgafell - 01.04.1959, Page 54
48 HELGAFELL meira á hinu við að fletta blöðum frá þess- um árum, hve lítið var um það rætt. Sam- þykktir þingmálafunda voru frumvarpinu yfirleitt andvígar. Þetta hvorttveggja, og umræðurnar á Alþingi 1907, sýnir, að þjóð- in hafði enn eigi til fulls áttað sig á ný- mælinu. Tillögur Hannesar Hafsteins um kjör- dæmin voru þessar, og er tilgreind íbúatala hvers þeirra eftir manntalinu 1903: 1. kjördæmi (6 þm.): Reykjavík, Gullbringu- og Kjósarsýsla .... 13270 2. kjördæmi (5 þm.): Árnesssýsla, Rangárvallasýsla, Vestmanna- eyjar og af Vestur-Skaftafells- sýslu Dyrhóla-, Hvamms- og Álftavershreppar ........... 12052 3. kjördæmi (5 þm.): Borgarfjarð- arsýsla, Mýrasýsla, Snæfells- ness- og Hnappadalssýsla, Dalasýsla og Austur-Barða- strandarsýsla ............... 11288 4. kjördæmi (4 þm.): Vestur- Barðastrandarsýsla, ísafjarð- arsýslur báðar, ísafjörður .... 9438 5. kjördæmi (5 þm.): Stranda- sýsla, Húnavatnssýsla, Skaga- fjarðarsýsla og Hvanneyrar-, Þóroddsstaða- og Svarfaðar- dalshreppar ............... 11898 6. kjördæmi (5 þm.): Aðrir hrepp- ar Eyjafjarðarsýslu, Akur- eyri, báðar Þingeyjarsýslur, Skeggjastaða- og Vopnafjarð- arhreppar ................. 11373 7. kjördæmi (4 þm.): Aðrir hrepp- ar Norður-Múlasýslu, Seyðis- fjörður, Suður-Múlasýsla, Austur-Skaftafellssýsla og Vestur-Skaftafellssýsla að Kúðafljóti ................. 9220 Samtals ....................... 78539 Fram að þessu hafði leit manna að réttu hlutfalli í kosningum eingöngu miðazt við íbúatölu kjördæmanna, og sýslunefndirn- ar og þingmálafundirnir stóðu þar enn í sömu sporum. Flokkamyndun var ný í landinu. Flokkadrættir höfðu að vísu ver- ið um einstök mál eins og kláðamálið, en um höfuðmálin stóðu menn saman, þótt mis-einarðlega væri, alla tíð Jóns Sigurðs- sonar og lengur. Flokkaskipun um þjóðmál hefst í rauninni með Valtýskunni rétt fyr- ir aldamót. Þótt flokkaskipun væri enn í mótun, sá Hannes Hafstein það, að hún hlaut að fær- ast í fastara horf. Vafalaust hefir hann talið það öruggt, að sér tækist með velvild Friðriks 8. að leysa sambandsmálið við Danmörku um langa framtíð, og þá færðist flokkaskipun hér meira 1 hið sama horf og með öðrum þjóðum. Þótt úrslit þessa mikla máls ættu eftir að valda honum vonbrigð- um og lausn þess tefðist um áratug, sýnir það framsýni hans, hve ríka áherzlu hann lagði á kjördæmamálið. Hann vildi eigi að- eins tryggja, að meiri hluti þjóðarinnar fengi að ráða, heldur og hitt, að minni hlut- inn fengi áheyrn. „Allt nýtt“, sagði Hannes, ,,sem er satt og rétt er upphaflega í minni hluta. Því er skylda að tryggja minni hlutanum ein- hvern rétt.“ (Alþt. 1907, B. 2106). í framsöguræðu sinni segir Hannes: „Hér er komið í veg fyrir þau rang- indi, er vel geta átt sér stað eftir nú- gildandi lögum, að jafnvel minni hluti kjósenda geti algjörlega ráðið úrslitum kosninga, og þeirri hættu hrundið á bug, að nokkur flokkur manna innan hvers kjördæmis fái meira fulltrúamagn en honum ber að tiltölu. Jafnframt er hverjum flokki veitt trygging fyrir því að geta komið að fulltrúum eftir réttu hlutfalli, og þjóðkunnum mönnum, er vel má vera að skorti kjörfylgi í ein- stakri sýslu eða kaupstað, enda þótt þeir hafi talsvert fylgi víðsvegar, greiddur vegur til þingsetu, án þess þó að rétti einstakra héraða til að framfylgja sínu þingmannsefni sé 1 nokkru misboðið". N Tefnd sú, sem fjallaði um kjördæmamál- ^ ið á Alþingi 1907, klofnaði. Meiri hlut- inn — en framsögumaður hans var Jón Magnússon, síðar forsætisráðherra — vildi

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.