Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.03.1965, Blaðsíða 44
Þessi skipting er ekki nákvæm, en einföld í notkun. Hæðarmörk
þau sem hér eru nefnd íyrir hin einstöku belti, gilda auðvitað aðeins
fyrir innsveitirnar í Eyjafirði. 1 öðrum landshlutum liljóta þau að
vera önnur, og yfirleitt mun lægri.
Mörkin má einnig miða við hæðarmörk einstakra plantna eða, sem
hetra væri, plöntuflokka. Mörkin milli runnabeltis og dvergrunna-
lreltis (hrísbeltis—grasvíðibeltis) mætti t. d. miða við 30% Ch-tegunda
eða 10% G-tegunda, og mörkin milli dvergrunnabeltisins og háfjalla-
jurtabeltisins við 40% Ch eða (og) 5% G.
SAMANIÍURÐUR Á HÆÐARMÖRKUM PLANTNA Á EYJA-
FJARÐARSVÆÐINU OG í NORÐUR-NOREGI.
-.1
Til frekari fróðleiks og prófunar á eyfirzku hæðarmörkunum, höf-
um við borið saman efri rnörk þeirra tegunda, sem finnast ofan 1250
m h., við efri mörk sömu tegunda í Tromsfylki í Noregi. Hæðartöl-
urnar eru teknar eftir Jörgensen.
Enda þótt Tromsfylki í Noregi liggi allmiklu norðar en Eyjafjarð-
arsvæðið er þó veðráttan vel santbærileg á báðum svæðunum. Meðal-
hiti ársins í Tromsö er 2,86 en á Akureyri 3,9. Mismunur þessi stafar
einkum af vetrarliitanum, sem er lægri í Tromsö. Hins vegar er sum-
arhitinn í Tromsö eitthvað hærri, sem sést af því að meðalhiti júlí-
mánaðar í Tromsö er 11,8 en á Akureyri 10,9. Hins vegar mun sum-
arið á Akureyri vera eitthvað lengra, vegna suðlægari hnattstöðu, og
getur það jafnað metin.
Eins og sjá má á eftirfarandi töflu, er munurinn á efstu mörk-
um háfjallaplantnanna, hér og í Norður-Noregi mjög óverulegur. Er
og hugsanlegt, að nánari athugun í 1350—1500 m h. á Eyjafjarðarsvæð-
inu eigi eftir að leiða í ljós hærri mörk fyrir sumar þessa plöntur. Þá
er það að athuga, að hæsta fjallið hér er aðeins um 1540 m, en hæsta
fjallið i Tromsö virðist vera um 100 m hærra. Virðist ekkert því til
fyrirstöðu, að sumar þessara tegunda gætu lifað í 1600 nr h. hér við
Eyjafjörðinn, ef þar fyndist svo hátt fjall. Þess má og geta, að Ran.
pygmaeus og Deschampsia alpina, hafa báðar fundizt í 1630 m h. í
Kverkfjöllum, samkv. Eyþ. Einarssyni. (Hugsanlegt er hins vegar, að
samanburðartölur yrðu aðrar, ef teknar væru þær plöntur, sem fara
hæst í Troms, og hámörk þeirra borin saman við hámörk sömu teg-
unda við Eyjafjörð.)
40 Flóra - tímarit um íslenzka grasafræði