Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2007, Qupperneq 2
Frístundakort á Skagaströnd Foreldrum barna á Skaga- strönd gefst nú kostur á að fá 15 þúsund króna styrk fyrir hvert barn sem tekur þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Kortin tóku gildi á laugardaginn og gilda í eitt ár. Magnús B. Jónsson, sveit- arstjóri Skagastrandar, segir að frístundakortin dragi tölu- vert úr kostnaði fyrir stórar fjölskyldur. Þar með jafni þau möguleika ungmenna til að taka þátt í slíku starfi, óháð efnahag fjölskyldna þeirra. Kortin ná til starfsemi íþróttafé- laga auk hvers konar skipulagðs félags- og tómstundastarfs. Auk þess gilda kortin fyrir aðra tóm- stundaiðkun eins og tónlistar- eða listnám. mánudagur 3. september 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Bæjarstjóri Seltjarnarness er sakaður um að hafa þvingað fram skjaldborg sér til stuðnings. Stuðningsyfirlýsingar starfsmanna bæjarskrifstofu og bæjarfulltrúa flokks- ins stangast alfarið á við orð heimildamanna DV innan bæjarstjórnar og utan. Fullyrt er að trúnaðarbrestur ríki innan meirihlutans og uppsögn bæjarstjórans sé væntanleg en bæjarstjórinn vísar því á bug. LEYNIFUNDIR Í LANDSVIRKJUN „Það eru ýmis mál sem hafa komið upp. Kvartanir hafa borist og meiri- hlutinn hefur verið að funda til þess að ræða stöðu bæjarstjórans,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir, forseti bæjar- stjórnar Seltjarnarnesbæjar. Hún stað- festir jafnframt ólgu innan raða sjálf- stæðismanna á Seltjarnarnesi. Starfsmenn á bæjarskrifstofu Sel- tjarnarnesbæjar og bæjarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins hafa lýst yfir stuðningi við Jónmund Guðmunds- son, bæjarstjóra Seltjarnarnesbæj- ar. Það er þvert á orð heimildamanna DV úr innsta hring Sjálfstæðisflokks- ins á Seltjarnarnesi sem fullyrða um trúnaðarbrest innan meirihlutans og að uppsögn bæjarstjórans hafi verið rædd síðustu daga eftir að starfsmenn bæjarins hafi kvartað undan vinnu- framlagi hans undanfarið. Stuðningur starfsmanna og bæjarfulltrúa stang- ast því alfarið á við viðmælendur DV innan bæjarstjórnarinnar og utan, sem vegna áralangs samstarfs við bæjarstjórann sjálfan og hversu við- kvæmt málið er treysta sér ekki til að koma fram undir nafni, sem furða sig á afneitun Jónmundar og yfirlýstum stuðningi við hann. Í stað þess að funda á bæjarskrif- stofum Seltjarnarness eða í höfuð- stöðvum Sjálfstæðisflokksins var fund- að í húsnæði Landsvirkjunar, án þess að fulltrúaráð eða félagar sjálfstæðis- félaganna hafi verið kallaðir saman. Heimildamenn segja það undirstrika þann trúnaðarbrest sem uppi er innan meirihlutans. Sjálfur vísar Jónmundur trúnaðarbresti á bug og segir bæjar- fulltrúa ræða málin af fullri einurð. Þvingaðar yfirlýsingar Stuðningsyfirlýsingar voru fengnar fram með óeðlilegum hætti, að mati viðmælenda úr röðum sjálfstæðis- manna á Seltjarnarnesi, sem eru ósátt- ir við hvernig yfirlýsing forystumanna flokksins í bænum var þvinguð fram á fundi fyrir helgi. Eins og áður sagði var fundurinn haldinn í húsnæði Lands- virkjunar og stóð yfir stóran hluta dags. Hver og einn bæjarfulltrúi var þangað boðaður á fund þar sem á móti sátu Stefán Pétursson, formaður fulltrúaráðs Sjálstæðisflokksins á Sel- tjarnarnesi, og Jónmundur Guðmars- son, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar. Hart var lagt að hverjum og einum að undirrita stuðningsyfirlýsinguna og undrast viðmælendur DV úr röðum sjálfstæðismanna fyrirkomulagið þar sem nærri ómögulegt hafi verið fyrir nokkurn að mótmæla. Svipaðar aðstæður eru sagðar hafa verið daginn eftir þegar allir starfs- menn bæjarins voru kallaðir saman til fundar. Þar las fjármálastjóri bæj- arins upp stuðningsyfirlýsingu sem starfsmennirnir voru hvattir til að sam- þykkja. Viðmælendur DV segja að- stæður hafa útilokað nokkur mótmæli. Ómarktækur stuðningur Þær upplýsingar fengust hjá Lands- virkjun að fundurinn hafi ekki verið haldinn með samþykki fyrirtækisins og það væri ekki hluti starfsemi þess að blanda sér í málefni sveitarstjórna. Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafull- trúi Landsvirkjunar, bendir á að fjöldi starfsmanna fyrirtækisins tengist stjórnmálum með ýmsum hætti. „Þeir starfsmenn sem halda slíka fundi hjá okkur verða að svara fyrir slíkt sjálfir enda ekki um málefni okkar að ræða. Við höfum um nóg að véla svo við séum ekki að blanda okkur í sveitarstjórnarmál,“ segir Þor- steinn. Viðmælendur DV innan raða Sjálfstæðisflokksins furða sig á því hvers vegna ekki hafi verið kallað til fjölmenns alls- herjarfundar hjá Sjálfstæðisfé- lagi Seltirninga og Sjálfstæðis- félaginu Baldri til þess að ræða stuðning við bæjarstjórann. Þeir benda á að slík sé reglan hjá flokknum til þess að hægt sé að senda út marktæka yf- irlýsingu í nafni félaganna. Ef stuðningurinn hefur hvorki verið samþykktur né borinn undir félagana telja viðmælendur hann ómark- tækan og því sé hann aðeins undan rifjum örfárra fulltrúa flokksins runninn. TrausTi hafsTeinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is fundað í höfuðstöðvunum bæjarstjórinn og formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisflokksins á seltjarnarnesi kölluðu starfsmenn og bæjarfulltrúa á sinn fund í höfuðstöðvum Landsvirkjunar. nýtur trausts starfsmenn og bæjarfulltrú- ar seltjarnarnesbæjar keppast við að lýsa yfir stuðningi við bæjarstjórann. Viðmæl- endur dV segja stuðningsyfirlýsingarnar hafa verið þvingaðar fram með hraði. Þegar skóladegi lýkur í dag munu 1.200 börn ekki fá inni á frístunda- heimilum Reykjavíkurborgar. Þetta segir Soffía Pálsdóttir, æskulýðs- fulltrúi Íþrótta- og tómstunda- ráðs Reykjavíkurborgar. Illa hefur gengið að manna frístundaheimili borgarinnar á undanförnum árum. Ástandið hins vegar aldrei verið jafnslæmt og í ár og segir Soffía að það sé að hluta til litlu atvinnuleysi um að kenna, auk þess sem 350 fleiri umsóknir hafi legið fyrir í haust. „Í síðustu viku voru fjórtán hundruð börn komin inn en á sama tíma voru þrettán hundruð manns á biðlista. Fyrir helgi náðum við að koma hundrað fleiri börnum inn á frístundaheimili.“ Soffía segist búast við því að bið- listarnir munu styttast enn frekar á næstu vikum. Þegar líða fer á sept- ember verði ástandið erfiðara og færra fólk muni fást til starfa. „Við erum bjartsýn og við gerum okkar besta. Við gerum okkur grein fyrir því að þetta verður erfiðara þegar líða fer á veturinn.“ Aðspurð hvort biðlistinn gæti farið niður fyrir þúsund börn fyr- ir enda septembermánaðar segir Soffía að hún sé ekki bjartsýn á það. „Það væri óskandi að geta náð því á næstu vikum. Það er samt kannski fullbratt en við erum alltaf að reyna að ná í gott fólk. Því fyrr því betra,“ segir Soffía. ÍTR hefur reynt að beina þeim til- mælum til foreldra barna að hjálp- ast að með því að skiptast á að sækja börn í skóla eða passa þau. Hún segir að foreldrar hafi tekið vel í það þótt margir eigi erfitt um vik vegna vinnu. Í ár hafa aldrei borist fleiri um- sóknir inn á frístundaheimilin en þeim fjölgaði um 350 í ár frá árinu í fyrra. Soffía segir að það sé erfitt að bregðast við þessum aukna fjölda en á sama tíma í fyrra voru undir þúsund manns á biðlista. Útlendingar hafa verið ráðnir í störf á frístundaheimilunum og seg- ir Soffía að það hafi gefist vel. Það þurfi þó að vera ákveðið jafnvægi og það megi helst ekki vera fleiri en einn útlendingur á hverju heimili. Aðspurð hvernig koma megi í veg fyrir að slíkir biðlistar endurtaki sig segir Soffía að það sé erfitt að segja meðan atvinnuástandið er jafngott og það er um þessar mundir. „Við sem stöndum að þessu verðum að leita lausna í sameiningu.“ einar@dv.is Erfiðlega hefur gengið að manna frístundaheimili í Reykjavík: 1.200 börn í vanda eftir skóla soffía Pálsdóttir segir að biðlistarnir muni styttast enn meira á næstu vikum. Vinstri græn bæta við sig Vinstri græn bæta við sig þriggja prósenta fylgi samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup, jafn- miklu fylgi og Sjálfstæðisflokkur- inn tapar milli kannana. Sjálfstæðisflokkurinn fer úr 45 prósentum í 42 prósent og Samfylkingin úr 28 prósentum í 29 prósent samkvæmt könnun- inni sem birtist í Morgunblað- inu. Vinstri græn fara úr þrettán prósentum í sextán. Framsóknar- flokkurinn mælist með níu pró- senta fylgi og Frjálslyndi flokkur- inn tæplega helming þess, fjögur prósent. Engin nauðsyn á Saga Class-hliði Öryggishliðið, sem komið var upp í Leifsstöð fyrir farþega á Saga Class, er ónauðsynlegt, segir Björn Bjarnason. Hliðið var sett upp fyrr á þessu ári og var því ætlað að hjálpa far- þegum sem flugu á Saga Class með Icelandair að komast hjá því að bíða í langri röð til að gangast undir örygg- isskoðun. „Tilraunin með sér- stakt öryggishlið fyrir farþega á Saga Class mun hafa leitt í ljós, að það sé ónauðsynlegt,“ segir Björn á vefsíðu sinni. Auka álagningu Verðhækkanir olíufélaganna eru óréttlætanlegar að mati Run- ólfs Ólafssonar, framkvæmda- stjóra Félags íslenskra bifreiða- eigenda. Öll olíufélögin, að undanskildum Atlantsolíu og Orkunni, hækkuðu verðið um 2 krónur á lítrann fyrir helgi. „Ekki er hægt að réttlæta hækkanir gömlu olíufélaganna með því að verið sé að mæta hækkun á kostnaðarverði elds- neytis. Hlutfallsleg álagning á bensín og dísilolíu hefur aukist hjá íslensku olíufélögunum í sumar. Þessar nýjustu hækkanir eru vísbending um að olíufélögin séu ekki hætt á þeirri braut,“ segir Runólfur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.